Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir að allar afurðastöðvar landsins hættu eitt af öðru verkun alvöru vamba.
Sláturfélag Suðurlands (SS) var síðasta afurðastöðin til þess að leggja niður verkun á svokölluðum kalónuðum vömbum. Haustið 2023 seldi SS 2.250 pakkningar með þremur vömbum og var ákveðið að halda framleiðslunni ekki áfram í sláturtíðinni 2024. Núna selur SS skolaðar vambir úr landi til dýrafóðurframleiðslu.
Ákvörðun SS að hætta að selja vambir til sláturgerðar vakti sterk viðbrögð meðal ákveðins hóps neytenda. Margir sem gera slátur sjálfir telja að alvöru vambir gefi betra bragð en próteinkeppir sem eru einnig kallaðir gervivambir. Árið 2025 var efnt til söfnunar undirskrifta á island.is þar sem skorað var á SS að hefja aftur sölu á vömbum til sláturgerðar. 131 einstaklingur setti nafn sitt við listann.
Sala á vömbum til sláturgerðar hefur hins vegar ekki fallið niður á landinu, því að um haustið 2024 tók til starfa lítið einkarekið sláturhús á Refsstað í Vopnafirði sem hefur frá upphafi selt vambir meðfram öðrum hefðbundnari vörum. Skúli Þórðarson, bóndi á Refsstað, segir í samtali að hann sé með dyggan hóp viðskiptavina, marga af eldri kynslóðum, sem séu tilbúnir til þess að borga hátt verð fyrir alvöru vambir.
Salan hefur aukist ár frá ári, en í fyrstu sláturtíðinni seldi hann hundrað vambir, í fyrra seldust 300 og í ár stefnir Skúli á að hreinsa 500 vambir sem hann gerir ráð fyrir að seljist allar. Mikil vinna fer í þrifin, en Skúli telur hana borga sig þar sem hann fær gott verð fyrir vambirnar. Eins styrki það aðra sölu og sé ákveðin auglýsing að sláturhúsið á Refsstað sé það eina á landinu sem hreinsar vambir til sláturgerðar.
