Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Mynd / Páll Imsland
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

Höfundur: Þröstur Helgason

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hryssum til framleiðslu á hormóninu PMSG/eCG, sem notað er til að auka frjósemi búfjár, teljist „tilraun“ í skilningi tilskipunar Evrópusambandsins um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni. Dómurinn var kveðinn upp að beiðni Héraðsdóms Suðurlands sem hefur til meðferðar mál milli Ísteka ehf. og Matvælastofnunar vegna leyfis til blóðtöku úr fylfullum hryssum.

Ísteka framleiðir PMSG/eCG úr blóðvökva fylfullra hryssa á Íslandi. Fyrirtækið hafði sótt um framlengingu á leyfi sínu til blóðtöku en Matvælastofnun hafnaði umsókninni á þeim grundvelli að starfsemin félli undir lög sem innleiða tilskipun 2010/63/ESB og að fyrirtækið þyrfti því að uppfylla skilyrði hennar.

Fyrir EFTA-dómstólnum hélt Ísteka því fram að starfsemin væri ekki vísindatilraun heldur hefðbundin og viðskiptaleg nýting lífræns hráefnis til lyfjaframleiðslu. Dómstóllinn féllst ekki á það. Í niðurstöðunni segir að orðalag tilskipunarinnar um notkun dýra „í öðrum vísindalegum tilgangi“ sé víðtækt og takmarkist ekki við rannsóknir sem miða að nýrri þekkingu. Því geti framleiðsla hormónsins, þótt hún hafi verið stunduð hér á landi í nær fjóra áratugi, fallið undir hugtakið „tilraun“.

Dómstóllinn lagði einnig áherslu á að staðdeyfing og nálarstunga sem notuð er við blóðtökuna sé líkleg til að valda sársauka eða vanlíðan umfram það sem telst venjuleg nálarstunga samkvæmt góðum starfsvenjum í dýralækningum. Þar með sé farið yfir þann þröskuld sem tilskipunin miðar við.

Jafnframt hafnaði dómstóllinn þeirri túlkun að starfsemin nyti undanþágu sem venjuleg landbúnaðarstarfsemi eða viðurkennd aðferð við dýrahald. Bent var á að blóðtaka úr fylfullum hryssum væri aðeins stunduð á Íslandi innan EES-svæðisins og teldist ekki dæmigerð eða venjuleg aðferð við dýrahald þar sem velferð dýranna væri ekki meginmarkmið starfseminnar.

Ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins er ekki endanleg niðurstaða í málinu. Héraðsdómur Suðurlands mun nú taka málið aftur til meðferðar og kveða upp dóm með hliðsjón af niðurstöðu EFTA-dómstólsins.

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f