Getum við lært af Norðmönnum?
Í aðdraganda endurskoðunar búvörusamninga er áhugavert að rýna í fyrirkomulag stuðningskerfa landbúnaðar í nágrannalöndum okkar. Þannig má sjá að beinar stuðningsgreiðslur í Noregi hafa aukist talsvert á undanförnum árum. En líkt og á Íslandi hafa Norðmenn lagt áherslu á að stuðningskerfi landbúnaðar styðji við fæðuöryggi, byggðafestu, sjálfbærni og starfsumhverfi bænda.
Samkvæmt gögnum OECD, Efnahags- og framfarastofnunar- innar, hafa stuðningsgreiðslur til landbúnaðar þróast með ólíkum hætti í Noregi og á Íslandi. Ef horft er á þróun beinna stuðningsgreiðslna, þ.e. stuðningsgreiðslna án tollverndar, má sjá að frá árinu 2016 til ársins 2024 hafa þær hækkað um 73% í Noregi í norskum krónum á meðan þær hafa hækkað um 29% á sama tíma á Íslandi í íslenskum krónum.
Mesta aukningin hefur orðið í beinum greiðslum sem t.d. eru skilyrtar við búfjárstofn eða landnýtingu. Þar jukust stuðningsgreiðslur um 81% frá 2016 til 2024. Um er að ræða greiðslur í formi gripagreiðslna, framleiðslustyrkur á fóðri, afleysinga- og áfallagreiðslur, svæðisbundinn umhverfisstyrkur o.fl.
Þá hafa aðrar beinar greiðslur svo sem gæðastýring í mjólk og menningarlandslagsgreiðslur aukist um 71% fyrir sama tímabil.
Ýmsir beinir styrkir eða þróunarsjóður (input use) jukust um 45%. Hér má nefna fjárfestingastyrki sem stuðla t.d. að aukinni matvælaframleiðslu eða bættri dýravelferð. Einnig stuðningur til loftslagsaðgerða, skógræktar og ýmissa umhverfis- verkefna.
Framleiðslutengdur stuðningur jókst um 70% frá 2016 til 2024 en það eru t.d. svæðisbundnar álagsgreiðslur í grænmetis- framleiðslu, mjólkurframleiðslu, nautakjötsframleiðslu, svínakjöts- framleiðslu og eggjaframleiðslu. En einnig flutningskostnaður til framleiðslu á kjöti, korni og eggjum.
Ef litið er til samsetningar á heildarstuðningi til landbúnaðar samkvæmt upplýsingum frá OECD fyrir árið 2024 í Noregi, þá nam markaðsverndarstuðningur 22%, beinar greiðslur sem skilyrtar eru t.d. við búfjárstofn, landnýtingu eða tekjur voru 43%. Aðrar beinar greiðslur, svo sem gæðastýring í mjólk námu 16% en þá voru beinar greiðslur sem skilgreindar eru út frá inntaki (input use) eða þróunarsjóður 7% og framleiðslutengdar greiðslur 12%.
Bent hefur verið á að markaðsverndarstuðningur á Íslandi og þar með talið tollvernd sé mun hærri á Íslandi en í nágrannalöndum okkar. Þannig nam sá stuðningur um 53% árið 2024 af heildarstuðningi til landbúnaðarmála á Íslandi samkvæmt gögnum OECD á meðan hlutfallið var 22% í Noregi. Hér þarf þó að hafa fyrirvara á ákveðnum sveiflum milli ára, ekki síst vegna gengisáhrifa og sveiflum í heimsmarkaðsverðum landbúnaðarafurða. Sem dæmi þá hafði markaðsverndarstuðningur á Íslandi farið úr 39% árið 2023 þegar hann fór í 53% 2024. En frá árinu 2016 hafði markaðsverndarstuðningur á Íslandi farið stöðugt lækkandi allt til ársins 2024 samkvæmt gögnum OECD.
Ljóst er að Norðmenn hafa á undanförnum árum lagt áherslu á að styðja við landbúnað með auknum greiðslum í beinan stuðning af ýmsu tagi. Vafalítið eru þetta leiðir sem eiga jafn vel við íslenskar aðstæður til að styðja við þær áherslur í landbúnaðarmálum sem almennt hefur verið sátt um sem tryggir sjálfbæra landbúnaðarframleiðslu um allt land og ásættanlegt starfsumhverfi bænda.
