Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands og Krónunnar færir nemendur nær atvinnulífinu og styrkir tengsl skólans, bændasamfélagsins og matvörumarkaðarins.

„Samstarfið við Krónuna gefur nemendum okkar tækifæri til að fylgja matvælum lengra eftir virðiskeðjunni, skilja þarfir markaðarins og þróa lausnir við raunverulegum áskorunum,“ segir Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands.

Raunveruleg viðfangsefni

Landbúnaðarháskólinn rekur meðal annars sauðfjár- og mjólkurbú og ræktar korn og er frumframleiðsla veigamikill hluti af náminu. Sérstök áhersla verður lögð á að tengja nám í búfræði og búvísindum við neytendamarkaðinn og skoða virðiskeðju matvæla í heild sinni, frá býli að borði.

Nemendur verða kynntir fyrir starfsemi og verkferlum Krónunnar og fá tækifæri til að tengja þekkingu sína við raunveruleg viðfangsefni matvörumarkaðarins, meðal annars með tengslum við samstarfsaðila svo sem bændur, matvælaframleiðendur og birgja.

„Við viljum stytta bilið frá býli að borði. Það felast mikil tækifæri í því að tengja þekkingu bænda og næstu kynslóðar fagfólks í landbúnaði betur við það sem við sjáum gerast á markaðnum og hjá neytendum á hverjum degi. Með þessu samstarfi getum við deilt þeirri þekkingu sem við höfum en ekki síður lært af nemendum og hugmyndum þeirra. Markmiðið er að finna leiðir sem skapa meiri verðmæti úr íslenskri matvælaframleiðslu og nýtast bændum, framleiðendum og neytendum,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Sjónum beint að lífrænni framleiðslu

Nemendur munu fylgja allri virðiskeðjunni og einnig beina sjónum að tækifærum til að efla lífræna matvælaframleiðslu á Íslandi. Það mun meðal annars fela í sér að skoða hvernig má auka sýnileika lífrænna matvæla og auðvelda neytendum að taka upplýstar ákvarðanir.

Samstarfið er í anda umhverfis- og matvælastefnu Evrópusambandsins, „Farm to Fork“, sem miðar að aukinni sjálfbærni í matvælakerfum með því að gera þau sanngjarnari, heilsusamlegri og umhverfisvænni.

Skylt efni: Krónan | LbhÍ

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f