Hvaða flaska er best fyrir umhverfið?
Umbúðir vega gjarnan þungt þegar kolefnisspor matar- og drykkjarvara er skoðað. Vínflaskan er þar engin undantekning en 40% af kolefnisspori vínflöskunnar eru umbúðirnar. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) hefur frá árinu 2018 birt áætlað kolefnisspor umbúða á vöruspjöldum Vínbúðanna til að gera þessar upplýsingar sýnilegar neytendum.
Jafnvel þó að neytandinn helli sér glaður í vínglas úr glerflösku, sem er náttúruvænni kostur en plast, þá er kolefnissporið ekki endilega minna. Kolefnisspor glerflöskunnar er stórt þar sem framleiðslan er orkufrek og umbúðirnar sjálfar þungar. ÁTVR og systurfyrirtæki á Norðurlöndunum hafa látið rannsaka umhverfisáhrif umbúða og kolefnisspor þeirra.
Léttari umbúðir, minna kolefnisspor
Lífsferilsgreiningar sem ÁTVR og áfengiseinkasölur á Norðurlöndunum hafa látið vinna til að greina umhverfisáhrif vara sinna sýna að glerið vegur þar þyngst. Lífsferilsgreining felur í sér að vara er greind frá fæðingu til neyslu og allt er skoðað. Hvert skref er tekið fyrir, ræktun, framleiðsla og flutningur og þannig er hægt að sjá hvaða liðir hafa mest áhrif á umhverfið.
Samkvæmt útreikningum sem ÁTVR hefur birt á vef sínum getur munurinn milli umbúða verið mikill. Þar má sjá að kolefnisspor hefðbundinnar 540 gramma glerflösku er áætlað 675 g CO2e á hvern lítra drykkjar en 420 gramma léttglerflösku 525 g. Léttglerið, sem er að hámarki 420 grömm, er því með mun minna kolefnisspor en gler. Léttari endurvinnanlegar umbúðir hafa almennt minna kolefnisspor, líkt og 3 lítra kassi, eða belja, þar sem áætlað kolefnisspor eru 70 g CO2e á hvern lítra.
Upplýsingar um þyngd umbúða og reiknað áætlað kolefnisspor birtast á vöruspjaldi hverrar vöru og sömuleiðis á vef ÁTVR og þar er til dæmis hægt að leita sérstaklega að vörum í léttgleri. Í upplýsingum frá ÁTVR kemur fram að á vöruspjöldum má finna raunveruleg dæmi, ekki bara fræðilega útreikninga, líkt og þar sem 505 gramma glerflaska er metin með 475 g CO2e kolefnisspor umbúða, en 590 gramma flaska með 550 g CO2e.
Þyngdarviðmið í Noregi
Eins og kom fram í frétt í síðasta blaði hafa nýjar reglur Evrópusambandsins sem draga úr umbúðarúrgangi valdið evrópskum glerframleiðendum og framleiðendum áfengis áhyggjum. Helstu áhyggjurnar beinast að því að reglurnar geti dregið úr sérstöðu þekktra vörumerkja og að þær takmarki tækifæri framleiðanda til að nota sérhannaðar umbúðir sem hluta af markaðssetningu.
Áfengiseinkasölur norðurlandanna, Víbúðin á Íslandi, Alko í Finnlandi, Systembolaget í Svíþjóð, Vinmonopolet í Noregi og Rúsdrekkasøla Landsins í Færeyjum, sem og áfengiseinkasalan SAQ í Kanada gerðu með sér sameiginlega aðgerðaráætlun í loftlagsmálum sem miðar að því að minnka kolefnisspor verslunarkeðjanna um helming fyrir 2030. Samvinna áfengiseinkasalanna gerir þeim kleyft að halda úti rannsóknarverkefnum, vinna saman að glæðamálum og stuðla að samfélagslegri ábyrgð til dæmis er varða umhverfismál.
Aðferðir landanna til að lágmarka losun eru mismunandi. Áfengissölur á Norðurlöndunum hafa til að mynda kallað eftir léttari flöskum. Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR hefur Vinmonopolet í Noregi sett þær reglur að frá ársbyrjun 2026 mega 0,75 lítra glerflöskur fyrir kyrr vín undir 250 norskum krónum að jafnaði ekki vega meira en 420 grömm. ÁTVR hefur ekki tekið ákvörðun um að setja sambærileg hámarksþyngdarviðmið.
Frá flöskunni til vínsins
ÁTVR vinnur nú að því í samstarfi við norrænu áfengiseinkasölurnar að reikna kolefnisspor vörunnar í heild sinni. Verið er að þróa svokallað PCF (Product Carbon Footbrint) reiknivél sem getur sýnt kolefnisspor einstakra vara. Þar er markmiðið að ná utan um stærri hluta virðiskeðjunnar en bara umbúðir og taka inn í jöfnuna ræktun, framleiðslu, umbúðir og flutninga. Stefnt er að því að bæta slíkum upplýsingum við þær sem birtast nú þegar um umbúðir á vef Vínbúðanna. PCF-reiknivélin er hluti af loftslagsáætlun ÁTVR.
ÁTVR leggur einnig áherslu á vottaðar vörur, svo sem lífrænar, sjálfbærnivottaðar og Fairtrade-vörur, enda geta slíkar vottanir stuðlað að ábyrgari ræktun, vernd líffræðilegrar fjölbreytni og bættum félagslegum skilyrðum í virðiskeðjunni. Þessar merkingar má sömuleiðis finna á vef Vínbúðanna.
„Það hefur áhrif að setja kröfur á markaðinn“
Sigurpáll Ingibergsson gæðastjóri hjá ÁTVR segir í samtali að breytingar taki tíma en að þau sjái framfarir. „Það tók um áratug fyrir léttgler að ná almennilegri fótfestu á markaðnum. Það hefur áhrif að setja kröfur á markmaðinn. Flöskuframleiðendur eru að reyna að aðlagast til að koma í veg fyrir að fólk velji sér frekar aðrar umbúðir. Hefðbundin 750 millilítra vínflaska var um 600 grömm en nú eru framleiðendurnir að huga mun meira að þyngdinni og framleiða léttglersflöskur allt niður í 300 grömm“. Sigurpáll segir að betri gögn séu ekki markmið í sjálfu sér heldur tæki til að sjá hvar í virðiskeðjunni mestu áhrifin liggja og hvar breytingar geta skilað mestum árangri. Að hans mati vantar upp á að fyrirtæki á Íslandi kortleggi alla virðiskeðjuna.
Þegar vínbúðin fór fyrst að merkja vörur með kolefnisspori umbúða segir Sigurpáll að neytendur hafi sýnt þeim áhuga og sala víns í léttgleri hafi aukist. „Mér finnst athyglin á þessu hafa minnkað aðeins aftur. Ég sé hins vegar tækifæri í að gera upplýsingarnar enn sýnilegri fyrir neytendur, til dæmis með litakóða. Slík upplýsingagjöf gæti jafnframt skapað hvata fyrir framleiðendur til að létta umbúðir eða bæta framleiðsluna ef þeir væru ekki ánægðir með þann litaflokk sem vara þeirra lenti í.“
Markmið ÁTVR er einfalt að sögn Sigurpáls: að draga úr losun og auðlindanotkun og stuðla að framleiðslu og neyslu í meiri sátt við náttúruna.
