Afburðagóð reynsla af Ford- dráttarvélum í Hoffelli
Úlfar Helgason, bifreiðastjóri og vélamaður frá Hoffelli í Hornafirði, er sérstakur áhugamaður um Forddráttarvélar og hefur viðað að sér 16 dráttarvélum af þeirri tegund.
Inntur eftir þessum mikla áhuga á Ford umfram aðrar tegundir dráttarvéla svarar Úlfar: „Þetta eru vélar sem eru liprar, gangöruggar og bila ekki! Ég hef góða reynslu af Ford, en á þessum bæ hefur verið til dráttarvél af þessari tegund síðan 1961. Svo á ég einn Allis-Chalmers sem kom hingað þegar ég var þriggja ára. Hann var rauður, en ég málaði hann bláan eins og alla Ford-ararana. Þetta eru allt saman Sjálfstæðisvélar,“ segir Úlfar glettinn.
„Mikið af þessum traktorum hef ég keypt notaða, en ég hef fundið þá á bæjum hingað og þangað. Ef ég hef séð bláan traktor á ferðum mínum hef ég farið að gá og ef það er Ford þá hef ég keypt hann ef menn vilja láta.“
Heflaði flugvöllinn á Fordson
Elsta Ford vélin á bænum heitir reyndar Fordson Super Major og er frá 1961. Þessi traktor var keyptur nýr hingað og hann er búinn að gera mikið verk. Við smíðuðum flaghefil undir hann sem var milli hjólanna. Við bræður unnum á þessu dag og nótt við að slétta tún og vorum líka á þessari vél þegar byrjað var að byggja flugvöllinn. Ætli það hafi ekki verið 1964 eða 65, þannig að það er orðið ansi langt síðan. Við létum lyftuna beina aflinu niður og hún var mjög nákvæm, ólíkt því sem var á Ferguson eða öðrum vélum – þar var lyftan bara annaðhvort uppi eða niðri.
Nýjasta dráttarvélin á bænum er Ford 6640 1993 módel sem ég er búinn að eiga í einhver 20 ár. Hann var upphaflega í Vatnsdalnum, en ég keypti hann í gegnum umboðið á sínum tíma. Þessi dráttarvél er ekki með neinum tölvum eða slíku. Uppáhaldsvélina mína keypti ég nýja árið 1972 og hún hefur aldrei bilað! Hún er af gerðinni Ford 5000 og gengur alltaf eins og klukka! Það gæti verið að ég hafi skipt um legu í vatnsdælu einu sinni, kolin í dýnamóinum og startarann einu sinni, annað er það ekki. Hún var með ámoksturstækjum og var mikið notuð til að moka á vörubíla á stóru svæði á sínum tíma.“
Á County yfir Hornafjarðarfljót
Ein af vélunum sem Úlfar á er á sérstaklega belgmiklum dekkjum að framan og aftan miðað við að hún sé árgerð 1973. „Þetta er svokallaður Ford County sem Rarik notaði á sínum tíma í byggðalínunni. Ég fór á þessum traktor með mælingamenn frá Vegagerðinni til þess að mæla fyrir nýja veginum yfir Hornafjarðarfljót. Það var ekki hægt að komast þarna yfir á hverju sem var, en ég gat sullast þarna á þessum traktor. Núna er mjög lítið eftir af þessum vélum, en það er búið að henda þeim. Ég hef reynt að ná þeim ef ég hef fundið þær.
Svo á ég hérna baggabindivélar frá Ford, eða New Holland, sem ég er eiginlega hættur að nota. Þær eru samt báðar þræddar og tilbúnar til þess að fara að vinna. Ég á líka eitt elsta Kawasaki-fjórhjólið á landinu, en það kom til landsins árið 1977. Ég er búinn að leika mér mikið á því, en held að ég sé hættur því í bili.“
Sennilega elsti ýtukarl landsins
Úlfar varð 81 árs í sumar og tekur enn þá að sér verkefni á vinnuvélum, þá helst á jarðýtum og vörubílum. Honum finnst ekki ósennilegt að hann sé elsti starfandi ýtukarl landsins „Mér finnst þægilegast að vera á ýtum núorðið, en þá siturðu bara í rólegheitunum og getur fengið þér pípu eða vindil á meðan þú sinnir verkunum með hægri hendinni. Ég á tvær Case-ýtur, önnur heitir 850 og er frá 1982 og sú stærri sem ég nota mest heitir 1150E og er frá 1995.
Það hefur engin ýta staðið sig eins vel í sýslunni og hún, en allar hafa bilað nema þessi. Ég hef auðvitað þurft að sinna eðlilegu viðhaldi og endurnýja belti. Ég hef ekki enn þá þurft að skipta um þétti í einum einasta tjakki og rafsuðuteinar sem er búið að sjóða í hana eru teljandi á annarri hendi. Ég hef unnið á þessari ýtu allt frá Prestbakka á Síðu og langleiðina á Djúpavog. Í sumar kýfði ég meðal annars 13 hektara af túnum hérna í næstu sveit, en ég er einn dag með hektarann. Þá fór ég á ýtunni í Lónsöræfi til þess að laga veginn, en það hef ég gert undanfarin 45 ár. Frá þjóðveginum upp á Illakamb eru rúmir 20 kílómetrar.“
