María Ýr Daðadóttir keypti Birkiflöt árið 2015 en var með engan bakgrunn í garðyrkju. Hún kynntist svo Þórði Hjálmari Þórðarsyni húsasmíðameistara árið 2018 sem flutti til hennar á Birkiflöt og síðan hafa þau búið þar saman.
María Ýr Daðadóttir keypti Birkiflöt árið 2015 en var með engan bakgrunn í garðyrkju. Hún kynntist svo Þórði Hjálmari Þórðarsyni húsasmíðameistara árið 2018 sem flutti til hennar á Birkiflöt og síðan hafa þau búið þar saman.
Mynd / smh
Viðtal 25. september 2026

Kirsuberjatómatar og blæjuber á Birkiflöt

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Birkibúðin stendur á hlaðinu með forvitnilegar vörur

Garðyrkjustöðin Birkiflöt í Laugarási er einn stærsti framleiðandi kirsuberjatómata á Íslandi.

María Ýr Daðadóttir keypti stöðina árið 2015, en hún hafði áður starfað sem barþjónn í Reykjavík í mörg ár og með engan bakgrunn í garðyrkju. Hún kynntist svo Þórði Hjálmari Þórðarsyni húsasmíðameistara árið 2018 sem leiddi til ástarsambands og hann flutti svo til hennar á Birkiflöt. María sér að mestu um ræktunina en Þórður og dæturnar tvær á heimilinu, Herdís og Karen, aðstoða þegar þörf krefur. Fastir starfsmenn í fullu stöðugildi eru annars þrír.

María með hornmelónu, sem er skyld bæði gúrkum og melónum, en hún er með hlaupkennt aldinkjöt sem bæði er súrsætt og frískandi á bragðið.

Blæjuber, hornmelóna og okrur

Stöðin er um 2.700 fermetrar að stærð, ræktað er á um 2.600 fermetrum og tekur pökkunaraðstaðan um 90 fermetra. Framleiðslan er um 40 tonn á ári að meðaltali.

María segir að hún hafi verið búin að fá nóg af borgarlífinu á þeim tíma sem hún keypti Birkiflöt. Fyrstu árin hafi verið mjög erfið og krefjandi – en hún sjái ekki eftir ákvörðuninni í dag. „Ég fékk mjög góða aðstoð frá þeim sem ég keypti af, Sigurlaugu Angantýsdóttur og Ómari Sævarssyni [viðtal við Ómar er hér einnig á opnunni], en ég hefði varla komist í gegnum þetta án þeirra hjálpar.“

Heirloom tómatar.

Á hlaðinu á Birkiflöt stendur snoturt lítið hús, þar sem þau reka beint frá býli verslunina Birkibúð – þar sem viðskiptavinir afgreiða sig sjálfir. Margt forvitnilegt er þar að finna sem sjaldgæft er að sjá í verslunum; blæjuber, hornmelónu (kiwano), rúgbrauð, bananabrauð, rúsínurúgbrauð, okrur, heirloom-tómata, sýrðar gúrkur, sýrðan eldpipar, kryddblöndur og rifsberjahlaup – svo sitthvað sé nefnt úr vöruúrvalinu. Blæjuber eru lítil appelsínugul ber, umlukin þunnri, pappírskenndri blæju sem þau draga nafn sitt af. Þau eru skyld tómötum og bragðið er nokkuð margslungið, með blöndu af súrum og sætum tónum. Hornmelóna (eða broddmelóna) er skyld bæði gúrkum og melónum, en þær eru með hlaupkennt aldinkjöt sem bæði er súrsætt og frískandi á bragðið. Okra lítur út eins og belgur utan um baunir en er raunar fræfyllt aldin. Þau eru gjarnan græn, aflöng með milt ferskt bragð og talin henta í ýmsa eldaða rétti eða sem meðlæti.

Þórður segir að María eigi allan heiðurinn af þessari hlið búskaparins. „Hún er mjög ævintýragjörn í þessum málum,“ segir hann. 

Blæjuberin eru skyld tómötum.

„Já, mér finnst mjög gaman að prófa ýmislegt í ræktuninni – og er með svolítið svæði í gróðurhúsinu undir þessar tilraunir mínar,“ segir María. „Ég er með nokkrar svona óvenjulegar tegundir í ræktun og reyni þannig að vera með nokkuð stöðugt framboð af afurðum af þeim í búðinni okkar yfir sumartímann – og eitthvað er auðvitað til allan ársins hring. Við vorum einmitt með búðina okkar opna í fyrsta sinn yfir vetrarmánuðina líka, síðasta vetur. Þá eru mest áberandi ýmsar vörur sem koma úr matvinnslunni og bakstrinum. Bananabrauðið er langvinsælast af brauðmetinu og eru fastir viðskiptavinir sem koma til okkar sérstaklega út af því.

Búðin er nauðsynlegur hluti af okkar garðyrkjustöð, því í gegnum hana fæ ég útrás fyrir utan þessa venjubundnu framleiðslu. Ég er mjög meðvituð um að hafa verðlagið í búðinni ekki of hátt, mér finnst það skipta mjög miklu máli. Það gefur okkur heilmikið að fá bein viðbrögð frá ánægðum neytendum í gegnum búðina,“ segir María, en búðin er opin allan sólarhringinn. „Við höfum alveg fengið viðskiptavini á nóttinni líka,“ bætir hún við.

Birkibúðin stendur á hlaðinu þar sem boðið er upp á margvíslegar forvitnilegar sælkeravörur.

Aukin aðsókn með tilkomu baðlóns

Þau segjast finna fyrir því að það hafi lifnað yfir Laugarási með tilkomu baðlónsins Laugaráss Lagoon og veitingastaðarins Ylju sem er við baðlónið. „Við finnum það á aðsókninni í búðina okkar og auðvitað meiri umferð í þorpinu. Svo höfum við komist að því að hérna rétt hjá okkur úti á miðju túni er núna skráð hleðslustöð fyrir mistök inni á Google maps, hjá einhverju orkufyrirtækinu, sem fylgja auðvitað bæði kostir og gallar. Við fáum fyrir vikið kannski aðeins meiri umferð en áreitið er líka meira út af þessu.

Við höfum reynt að láta fjarlægja þetta en án árangurs, þannig að við höfum leyft fólki bara að tengjast við okkar hleðslustöð,“ segir Þórður. 

Kirsuberjatómatar á nokkrum þroskastigum. Þeir verða 15–20 grömm að þyngd og uppskeran gjarnan um helmingi minni á fermetra en í ræktun hefðbundinna tómata. Verðmætin í kílóverði eru hins vegar mun meiri í kirsuberjatómötunum.

Verðmætir kirsuberjatómatar

María og Þórður telja að aðeins tvær til þrjár garðyrkjustöðvar séu með kirsuberjatómata í ræktun á Íslandi sem aðaltegund – og þeirra þar meðtalin. Kirsuberjatómatar eru sérstök afbrigði af tómötum. Ræktun þeirra er mjög svipuð og ræktun hefðbundinna tómata en næturhiti er hafður mun lægri til að blómklasarnir verði stærri og tómatarnir fleiri og sætari. Tómatarnir eru 15–20 grömm að þyngd og uppskeran gjarnan um helmingi minni á fermetra en í ræktun hefðbundinna tómata. Verðmætin í kílóverði eru hins vegar mun meiri í kirsuberjatómötunum.

Þau segja að ræktað sé með lífrænum vörnum á Birkiflöt, þannig að neytendur þurfi ekki að hafa áhyggjur af mögulegri efnanotkun þegar þeirra tómatar eru borðaðir. Notast er meðal annars við sérstakar flugur til að bregðast við óværu og ágengum skordýrum. Býflugur sjá um að frjóvga tómataplönturnar.

Kvarta ekki yfir afkomunni

Þau segja að rekstrarafkoman sé sæmileg, það sé í það minnsta ekki hallarekstur. „Þetta mætti auðvitað vera betra en við getum eiginlega ekki kvartað. Auðvitað finnum við vel fyrir orkukostnaðinum og stundum höfum við hugsað hvort við ættum yfirhöfuð að vera að rækta yfir vetrarmánuðina, en svo komist að þeirri niðurstöðu að það sé þess virði. En auðvitað erum við að safna á sumrin til að geta haldið stöðinni gangandi yfir dimmustu mánuðina.

Því myndi líka fylgja of mikið rask á ýmsum þáttum starfseminnar að gera hlé, sérstaklega væri það óhagkvæmt bara gagnvart starfsmannahaldi – bæði fyrir okkur og starfsfólkið sjálft,“ segir Þórður.

María segir að það sem sé hvað ánægjulegast þegar allt kemur til alls sé að neytendur kunni að meta vöruna og það seljist allt upp sem þau framleiði.

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára
Viðtal 26. apríl 2022

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára

Baldur Sæmundsson, áfanga­stjóri í Menntaskólanum í Kópa­vogi, þar sem Hótel- og...

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein
Viðtal 8. apríl 2022

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein

Garðyrkjunám sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Su...

Fann mína ástríðu í þessu starfi
Viðtal 8. desember 2021

Fann mína ástríðu í þessu starfi

„Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu þessu fólki í sveitunum, notið gestri...

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“
Viðtal 8. nóvember 2021

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“

„Erfðaskrá er til þess fallin að leysa úr mörgum málum sem annars tæki tíma og o...

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“
Viðtal 13. júní 2021

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“

Talið er að harmonikkur hafi fyrst komið til Íslands með frönskum sjómönnum sem ...

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur
Viðtal 19. mars 2021

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum
Viðtal 12. febrúar 2021

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
Viðtal 12. janúar 2021

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt