Afskurður úr prjónaverksmiðjunni Kidka á Hvammstanga.
Afskurður úr prjónaverksmiðjunni Kidka á Hvammstanga.
Mynd / Kidka
Fréttir 29. september 2026

Tilraunir með ullarafganga

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Prjónaverksmiðjan Kidka á Hvammstanga var í tilraunaverkefni þar sem þróað var nýtt garn unnið úr afskurði og ullarafgöngum úr þeirra framleiðslu.

Nýja garnið sem gefið var heitið ReCover var endurunnið í samstarfi við verksmiðju á Bretlandi sem sérhæfir sig í endurvinnslu á ullarefni. Á þessu ári hætti áðurnefnd verksmiðja að taka við ullarafgöngum frá utanaðkomandi aðilum og framleiðslu á ReCover bandi hætt í bili. Í verksmiðjunni var litaflokkaður afskurður tættur niður og spunnið úr honum nýtt ullarband sem blandað var með merino ull. Samsetning garnsins var 40 prósent íslensk ull úr verksmiðju Kidka og 60 prósent ný merino ull. Úr verkefninu kom band í fjórum mismunandi litum og voru spunnin úr því ullarteppi á Bretlandi sem Kidka hefur tekið í sölu.

Stjórnendur Kidka segja verkefnið hafa verið lærdómsríkt og vonast til þess að geta haldið vöruþróun með endurunnu efni áfram. Prjónaverksmiðjan á Hvammstanga fékk úr verkefninu talsvert af bandi sem stendur til að nota í vöruþróun og framleiðslu á ullarfatnaði.

Skylt efni: ullarvörur | ullarvinnsla

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...

Málþing í tilefni af degi landbúnaðarins
Fréttir 8. október 2026

Málþing í tilefni af degi landbúnaðarins

Dagur landbúnaðarins verður haldinn í dag, 8. október, í Sjálfstæðissalnum á Par...

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f