Tilraunir með ullarafganga
Prjónaverksmiðjan Kidka á Hvammstanga var í tilraunaverkefni þar sem þróað var nýtt garn unnið úr afskurði og ullarafgöngum úr þeirra framleiðslu.
Prjónaverksmiðjan Kidka á Hvammstanga var í tilraunaverkefni þar sem þróað var nýtt garn unnið úr afskurði og ullarafgöngum úr þeirra framleiðslu.
Það er alltaf gaman að koma á bæinn Skarð í Landsveit því þar búa kraftmikil hjón með börnum sínum en fjölskyldan er með risastórt fjárbú. Við erum að tala um þau Guðlaugu Berglindi Guðgeirsdóttur og Erlend Ingvarssyni (alltaf kallaður Elli) og börnin þeirra þrjú. Sumarliði er 15 ára, Helga Fjóla er 12 ára og Anna Sigríður er 9 ára.
Ágúst Þór Eiríksson, eigandi Icewear, er bjartsýnn á að nýting á íslenskri ull í útivistarfatnað eigi eftir að verða lyftistöng fyrir íslenskan sauðfjárbúskap. Hann telur að sérstakir eiginleikar íslensku ullarinnar beri af öðrum tegundum einangrunarefnis í flíkur eins og polyesters og gæsadúns.
„Þegar við fórum að reka kaffihúsið í Litlabæ var ákveðið að hafa þar eitthvað til sölu og í framhaldi af því kviknaði hugmynd um að bjóða upp á prjónaðan varning,“ segir Sigríður Hafliðadóttir í Hvítanesi, en hún hefur í samvinnu við eiginmann sinn, Kristján Kristjánsson, prjónað lopapeysur í gríð og erg.
Í Evrópu er starfandi hópur fólks frá nokkrum ólíkum löndum sem hittist og fundar reglulega. Þetta er þverfaglegur hópur, stofnaður í nóvember 2019, sem kemur að ræktun sauðfjár og ullarvinnslu á ýmsan hátt og eru margir þeirra sérfræðingar á einhverju sviði rannsókna, vinnslu eða nýtingar hráefnis - ekki bara ullar.
Sigurður Sævar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ístex, segir að unnið hafi verið að breytingum á flokkun ullar í samráði við bændur til að auka verðmætasköpun í ullarvinnslu.
„Margítrekaðar tilraunir okkar undanfarin þrjú ár í því skyni að fá stjórnvöld til að gera eitthvað í málinu skiluðu engum árangri, á okkur var ekki hlustað.