Jarmað, hneggjað, baulað ...
Frumvarp Loga Einarssonar til breytinga á lögum um Ríkisútvarpið vekur hörð viðbrögð eins og við mátti búast. Í því er ekki að finna neinar raunverulegar lausnir á starfsumhverfi einkarekinna fjölmiðla í landinu. Og varla er blakað við fílnum í stofunni, Ríkisútvarpinu, sem fær áfram að vera á auglýsingamarkaði. Tekjuþak á auglýsingasölu RÚV upp á 2,8 milljarða er varla að fara að hafa veruleg áhrif á fyrirferð ríkisfjölmiðilsins á auglýsingamarkaði og sú hugmynd að tíu prósent auglýsingateknanna eigi að renna til einkafjölmiðla er fjarstæðukennd eins og farið hefur verið yfir hér í blaðinu áður. Einkamiðlar geta selt sínar auglýsingar sjálfir og óska einungis eftir því að ríkið viki af markaðnum.
Flestir virðast ganga út frá því að ekki sé pólitískur vilji fyrir því að RÚV víki af auglýsingamarkaði. Enginn þarf að vera hissa á því vegna þess að umræðan er að mörgu leyti skökk. Í umsögn Sýnar um frumvarpið er samanburður á rekstrarfyrirkomulagi RÚV og norrænna almannaútvarpa til dæmis leiðréttur. Hann er sem stendur ekki réttur í frumvarpinu og hefur lengi verið farið rangt með í þeim efnum í umræðunni hér. RÚV sker sig nefnilega frá norrænu ríkismiðlunum, sem sagt DR, NRK, SVT, SR og YLE, að því leyti að það fær að selja auglýsingar. TV2 í Danmörku er ekki ríkisfjölmiðill í sama skilningi. TV2 er almannamiðill sem nýtur ekki beins ríkisframlags eða almenns skattfjár samhliða auglýsingatekjum sínum.
En hvers vegna ekki að krefjast þess að RÚV víki af auglýsingamarkaði? Er ekki kominn tími til að ríkið taki fulla ábyrgð á rekstri síns miðils og veiti þar með einkamiðlum það svigrúm sem þeir þurfa til að þrífast betur? Að öllum líkindum þyrfti raunar meira til eins og staðan er orðin.
En það væri mikilvægt skref að taka RÚV af auglýsingamarkaði, ekki bara fyrir fjölmiðlamarkaðinn heldur einnig Ríkisútvarpið sjálft, einkum innra starf þess, samsetningu dagskrár, dagskrárgerðina sjálfa, þróun miðlaframboðsins og þannig mætti áfram telja.
Það þarf að gefa RÚV tækifæri til þess að sinna kjarnahlutverkum sínum sem snúa umfram allt að fréttum og menningu. Fréttastofa RÚV er stærsta og mikilvægasta fréttastofa landsins og hana þarf enn að styrkja og efla. RÚV er sömuleiðis mikilvægasti menningarmiðill landsins en sem slíkur stendur hann æ veikar. Í Ríkissjónvarpinu eru til dæmis aðeins tveir menningarblaðamenn starfandi, Egill Helgason og Guðrún Sóley Gestsdóttir. Það eru engar menningarfréttir í Ríkissjónvarpinu og enginn menningarþáttur, ef frá er talin Kiljan. Menningarumfjöllun í einkareknum fjölmiðlum hefur dregist verulega saman á undanförnum árum og því hefði verið æskilegt að RÚV yki sína umfjöllun.
Logi Einarsson segir ekki koma til greina að veikja Ríkisútvarpið. En með því að endurskoða fjármögnun þess og skerpa á hlutverkinu væri RÚV ekki veikt heldur styrkt. RÚV yrði markvissara og betra.
Ráðherra vísar til þess að blönduð fjármögnun með ríkisfé og auglýsingatekjum sé algengasta fyrirkomulag ríkisfjölmiðla í Evrópu. Þetta er að hluta til rétt. En sé skýrsla EBU frá því fyrr á þessu ári um fjármögnun almannaútvarpa skoðuð kemur í ljós að RÚV er mun háðara beinni auglýsingasölu en almannaþjónustumiðlar Evrópu að meðaltali. Skora er á ráðherra að finna annan almannamiðil í Evrópu sem aflaði tæplega 28% rekstrartekna árið 2025 með auglýsingasölu.
