Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði
Öldum saman hafa íbúar fjarðarins búið við margs konar hættur sem náið sambýli við náttúruna býður upp á. Hætturnar einskorðast þó ekki við þennan fjörð og eru til staðar á heimsvísu.
Sagt hefur verið að nóg sé til handa öllum í heiminum, en að vandamálið sé fámennur hópur auðkýfinga sem aldrei fær nóg. Þeirra vegna þyrfti heimurinn að halda áfram á þessari braut sem við nú erum á sem mun leiða til mikilla hörmunga fyrir mannkynið allt ef við bregðumst ekki við. Nú er augljóst að ofnýting auðlinda, framleiðsla og notkun jarðefnaeldsneytis og notkun alls kyns framandi efnasambanda og eiturefna ógnar mannkyni og færir okkur nær hengifluginu á ógnarhraða. Gróðafíkn sem peningaöflin ala með sér eirir engu. Risavaxin alþjóðafyrirtæki sölsa undir sig afmarkaðar líftegundir og beita fyrir sig eitri, lyfjum, hátækni og samfélagslegum yfirgangi af sannfæringarkrafti peningavaldsins. Þessi ofuráhersla fyrirtækja á nýtingu fárra tegunda er á kostnað líffræðilegs fljölbreytileika. Það er kallað einræktunarbúskapur (monoculture) þegar heilu svæðin eru tekin undir eina tegund. Nokkur vel þekkt dæmi eru byggfræ fyrirtækisins Monsanto og eitrið Round-up sem drepur allar plöntur nema Monsanto bygg. Eyðing regnskóganna á sér stað á ógnarhraða (sem samsvarar um 30 fótboltavöllum á mínútu) til þess eins að komast að verðmætum sem þar liggja undir, – olía, verðmætir málmar og til að rækta nautgripi. Pálmaolía, sojabaunarækt og eftirsókn í harðvið kemur þar við sögu einnig. Þessi aðferðafræði byggist almennt á því að drepa og jafnvel útrýma tegundum sem eru ekki þóknanlegar framleiðendum. Þetta truflar eða eyðileggur hringrás lífs sem þróast hefur í aldanna rás. Röskun á lífkeðjum hefur oft mjög alvarlegar afleiðingar. Nærtækasta dæmið um einræktunartilburði hér um slóðir er laxeldi í sjókvíum sem æ fleiri sjá sem dæmi um einræktunarbúskap. Á mörgum stöðum hefur þessi búskapur verið bannaður með öllu og á enn fleiri stöðum stefnir umræðan í þá átt.
Eftir höfðinu dansa limirnir. Stóru alþjóðafyrirtækin eiga sínar rætur í nýlenduofbeldi fyrri tíma. Þá eins og nú sækjast þau eftir því að móta samfélögin þar sem þau starfa, að sínum hagsmunum. Fremst á spjótinu eru yfirleitt loforð um eitthvað sem viðkomandi samfélag vanhagar um eða sem okkur er talin trú um að skorti. Fyrirtækin eru sífellt að leita að auðlindum til að nýta. Helst auðlindir sem íbúar vita ekki um eða nýta hóflega. Auðlindir sem fyrirtækin vilja fá endurgjaldslaust. Almenningur er oft grunlaus um aðferðir fyrirtækjanna og hvaða hlutverki umhverfi íbúanna getur gegnt í peningamaskínunni. Samfélög sem verða fyrir svona auðlindaráni og misnotkun átta sig oft og tíðum ekki á skemmdum sem verða á samfélagi og náttúrulegu umhverfi þeirra fyrr en skaðinn er skeður og þá gjarnan óafturkræfur.
Við sem búum hér á Seyðisfirði erum ágætt dæmi um samfélag sem er að verða fyrir árásum af þessum toga. Fram að þessu höfum við litið á náttúruna hér í kring sem fyrirbæri sem við nýtum að mestu sameiginlega. Auðlind sem við höfum leyfi til að nýta en ekki eithvað sem gengur kaupum og sölum á erlendum verðbréfamörkuðum. Þar förum við um og dáumst að selunum, æðarfuglinum með ungana sína, fossunum og hvölunum. Við njótum þess að skoða marglyttur og furðulegt þang, virðum fyrir okkur fiskana sem stökkva og synda upp og niður ána. Um þetta ræðum við okkar á milli. Við tölum um veðrið, snjóalög, úrkomuna og höfum sameiginlegar áhyggjur og skoðanir á hættunum sem geta steðjað að þegar veður og vindar vilja. Er krían komin? Hvernig gengur æðarvarpið? Hvernig gengur heyskapurinn? Eru góðar heimtur? Var eithvað að hafa þarna undir Bjarginu? Hvernig er annars berjasprettan í ár? Berin rata stundum heim í eldhús og stundum beint upp í okkur. Við viljum ekki hafa mannaskít eða grút í fjörunum eða mengandi rusl á víðavangi. Við viljum fara frjáls um fjöllin og dalina, heyra fuglasönginn, hlusta á lækjarnið og fossahljóð. Horfum til himins, finnum fyrir vindinum og njótum sólarinnar. Veiðum jafnvel fisk. Fáum okkur stundum göngutúr í fjörunni og fleytum kerlingar. Ræktum garðinn okkar. Þannig verðum við þátttakendur í náttúru sem nærir heiminn allan.
Við viljum ekki fá gesti sem kunna ekki mannasiði og hafa ekki samráð við okkur íbúana um fyrirtækjarekstur sem kemur til með að hafa afar neikvæð áhrif á líf okkar hér og gefur jafnvel lítið til samfélagsins, þótt eigendur græði fúlgur fjár. Við tökum ekki á móti gestum sem vilja koma með fyrirtæki sín og breyta skipan mála á heimili okkar, þrátt fyrir augljósa andstöðu okkar sem hér búum. Við viljum ekki fá til okkar fyrirtæki sem eru með yfirgang og sýna tilvist okkar í hringrásinni hér ekki tillitssemi. Við sættum okkur ekki við yfirgang af því tagi sem laxeldið ætlar að beita. Við viljum ekki stjórnarfar sem virðir ekki staðbundna menningu okkar, mannréttindi og vilja. Við viljum ekki drepa lífríkið undir haffleti fjarðarins. Við viljum ekki flagð undir fögru skinni og segjum kurteislega og ákveðin:
LAXELDI? NEI, TAKK!
Höfundur er búfræðingur.
