Hér sést Lárublómabreiða hjá Svartifossur í Þórshöfn.  Mynd fengin frá Jenskjeld.info
Hér sést Lárublómabreiða hjá Svartifossur í Þórshöfn. Mynd fengin frá Jenskjeld.info
Mynd / Mynd fengin frá Jenskjeld.info
Skoðun 2. október 2026

Lárublómin í Færeyjum

Höfundur: Breki Einarsson
Breki Einarsson.

Arnþrúður Lára Pétursdóttir var fædd 6. apríl 1898 á Fremrihlíð, Hofssókn á Vopnafirði. Pabbi hennar, Pétur Kristjánsson, var fæddur í S-Múlasýslu og mamma hennar, Jónína Sigurðardóttir, kom úr Einarsstaðarsókn í S-þingeyjasýslu. Þau giftust 3. maí 1896, og 1901 bjuggu þau í Hvammsgerði á Vopnafirði. Þannig var það að Pétur fékk berkla og lést en Jónína fékk krabbamein og lést stuttu eftir mann sinn 19. júlí 1916. Þar með var Lára og litli bróðir hennar orðin munaðarlaus.

Lára fór þá til Bakkafjarðar og varð vinnukona hjá Halldóri Runólfssyni, þar kynnist hún Einari Einarssyni frá Víkurgerði við Fáskrúðsfjörð en Einar var aðstoðarmaður Halldórs og þeir góðir vinir. Einar var þá í rauninni líka orðinn munaðarlaus þar sem faðir hans var dáinn og móðir hans fór vestur ásamt öllum systkinunum. Einar og Lára giftust 8. desember 1917, þau bjuggu saman í Halldórshúsi á Bakkafirði um tíma og eignast 1918 elsta son sinn. Í Halldórshúsi voru oft færeyskir sjómenn sem gistu í húsinu og varð það til þess að Einar og Lára kynntust nokkrum bræðrum úr Rituvík og ákváðu þau, ásamt bróður Láru, að fylgja þeim til Færeyja 1919 í leit að betra lífi.

Arnþrúður Lára Pétursdóttir.

Í nokkur ár bjuggu þau hjá bræðrunum í Rituvík. Einar vann þar sem sjómaður og þau hjónin eignast 2 börn á þessum tíma. Þau hafa samt ekki strax gefist upp á Íslandi því þau snúa þangað aftur 1925 og nokkrum dögum eftir að þau koma í land eignast þau Lára annað barn. Það gekk ekki vel á Íslandi því börnin þráðu að fara aftur til Færeyja og elsti sonur þeirra reyndi að smygla sér í færeyskum fiskibát.

Þau ákváðu því að flytja aftur árið eftir, haustið 1926 snúa þau aftur heim til Færeyja. Þegar þau komu aftur til Rituvíkur byrjaði Einar að byggja handa fjölskyldu sinni stærðarinnar steinhús sem þau flytja inn í 1928. Lára var fljót að gera sér jurtagarð áður en húsið kláraðist því hún hafði tekið með sér minjagrip úr heimalandinu.

Lára var stór hluti af samfélaginu í Rituvík, það eru margar sögur til af henni og allir sem þekktu hana minnast hennar gríðarlega vel. Afi minn, Einar D. G. Gunnlaugsson, sem er barnabarn Láru hitti hana einu sinni þegar hann fór með móður sinni til Danmerkur og stoppaði í einn dag í Færeyjum. Hún fór þá alla leiðina í Tórshavn og þegar hún sá hann sagði hún: „Loksins fæ ég að sjá þig, elsku drengurinn minn,“ og hann sagði að hún hafi haldið utan um hann megnið af tímanum sem þau eyddu saman. Þetta var í júní 1956 og afi þá á 10. ári, en hún Lára deyr svo 1969 og var því lýst sem miklum missi fyrir samfélagið.

Mynd af Lárublómi í Saksun, Færeyjum.

En þessi minjagripur sem Lára tók með sér voru blóm, blómin heita apablóm á íslensku (Mimulus Guttatus / Erythranthe Guttata á latínu.) Hún ræktaði þessi blóm í garðinum sínum í Rituvík en Færeyingum fannst þau virkilega falleg. Ættingjar mínir í Færeyjum minnast þess að margir komu við með skóflur og fötur í gegnum árin og fengu afleggjara hjá henni Láru.

Þetta leiddi til þess að blómið varð kallað „Laurusa blomstur“ á færeysku, sem þýðir einfaldlega „Lárublóm“ á íslensku, því Arnþrúður Lára Pétursdóttir var kölluð Laura Einarsson í Færeyjum. Lára var nefnilega fyrsta manneskjan til þess að koma með þetta blóm til Færeyja. Allir þessir afleggjarar sem fólk fékk frá Láru leiddu til þess að blómið dreifðist hratt um allt landið, blómið er líka duglegt í að dreifa sér sjálft og er harðgert og í dag er Lárublómið mjög algengt víðs vegar í Færeyjum.

Blómategundin var meðal annars tekin fyrir í ritgerð undir þessu nafni og skrá um færeyskar plöntur sem birt var í „Nordic Journal of Botany“.

Það versta er að margir sem skrifa um þessa blómategund nota bara færeysku þýðinguna á danska heiti blómsins. Blómið heitir á dönsku „Abeblomst“ og er það þýtt á færeysku sem „Blettut apublóma“ en það eru margir mótfallnir þessu þar sem þetta er ekki alfæreyskt nafn, eins og „Laurusa blomstur“ er. Einn hefur lýst þessu sem „ljótu nafni á fallegu blómi“. Þetta blóm hefur orðið lifandi minni Láru hjá fólkinu sem þekkti hana og í því samfélagi sem hún var svo stór partur af.

Þessa þýðingu er því miður líka að finna hjá tvímála orðabókum Árnastofnunar og hjá Íslex, það væri frábært ef hægt væri að breyta eða í það minnsta bæta „Laurusa Blomstur“ nafninu við sem færeysku heiti. Það myndi viðhalda arfleifð Láru um ókomin ár.

Höfundur er sagnfræðinemi og langalangömmubarn Láru.

Heimild:Jensen, J.-K., ThorningLund, F. and Hammer, S. (2023), Supplement to Faroe Islands botanical list with 64 species or subspecies including rare, new and potentially invasive species with comments. Nordic Journal of Botany, 2023: e03586. https://doi. org/10.1111/njb.03586

Skylt efni: blóm | Færeyjar

Lárublómin í Færeyjum
Skoðun 2. október 2026

Lárublómin í Færeyjum

Arnþrúður Lára Pétursdóttir var fædd 6. apríl 1898 á Fremrihlíð, Hofssókn á Vopn...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 28. september 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Stundum þarf ekki stóra rannsókn til að afhjúpa áhugaverðan veruleika. Í síðasta...

Landsbyggðin og jafnræði
Skoðun 28. september 2026

Landsbyggðin og jafnræði

Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna það þykir eðlilegt að auknar álögur le...

Ég er ostur
Skoðun 25. september 2026

Ég er ostur

Tollflokkun á pálmaolíublönduðum mozarellaosti, sem í daglegu máli er ýmist kall...

Opið bréf til Náttúruverndarstofnunar, áður Umhverfisstofnun, og Húnaþings vestra
Skoðun 19. september 2026

Opið bréf til Náttúruverndarstofnunar, áður Umhverfisstofnun, og Húnaþings vestra

Ég starfa sem leiðsögumaður og hef ég stoltur ferðast með ferðamenn, innlenda se...

Atkvæðisréttur í veiðifélögum
Skoðun 16. september 2026

Atkvæðisréttur í veiðifélögum

Hinn 17. desember 2025 kvað Hæstiréttur upp dóm í máli nr. 16/2025 sem varðar gr...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 11. september 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Ríkisstjórnin virðist ætla að taka alla slagi sem bjóðast í íslenskri pólitík. N...

Hið raunverulega verkefni er fram undan
Skoðun 11. september 2026

Hið raunverulega verkefni er fram undan

Eftir marga mánuði af samræðum, viðræðum, rökræðum og hreinu rifrildi var niðurs...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f