Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í tvígang og í Reykjabúið í Mosfellsbæ í sumar. Mynd tekin í svínabúi á Íslandi.
Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í tvígang og í Reykjabúið í Mosfellsbæ í sumar. Mynd tekin í svínabúi á Íslandi.
Mynd / ál
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eignaspjöll í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi, Reykjabúsins í Mosfellsbæ og í önnur bú á Suðurlandi og Kjalarnesi. Maðurinn er talinn hafa verið einn að verki.

Vísbendingar sem bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu leiddu til þess að rannsókn hófst á manninum. Verður hann ákærður fyrir innbrot og eignarspjöll. Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn segir í samtali við blaðið að maðurinn hafi játað á sig innbrot í fleiri bú sem ekki voru tilkynnt til lögreglu, þar á meðal innbrot í kjúklingabúið Móa á Kjalarnesi og svo á fleiri staði í eigu Stjörnugríss. Maðurinn er talinn hafa verið einn að verki þar sem hann sést einn á ferð í þeim uppökum sem lögreglan hefur undir höndum og segist sjálfur auk þess hafa starfað einn.

Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í tvígang og í Reykjabúið í Mosfellsbæ í sumar. Bændur hafa verið uggandi yfir innbrotahrinunni og lögreglan hefur kvatt eldisbú til að huga að öryggisráðstöfunum. Að sögn Hjördísar sýna viðburðir sumarsins okkur að mögulega þurfi að hafa aukið eftirlit með búum og sé það samtal sem lögreglan sé einnig að eiga við Matvælastofnun.

Einnig var brotist inn í minkabúið Dalsbú í Mosfellsdal í sumar en maðurinn liggur að svo stöddu ekki undir grun í því máli. Í tilkynningu lögreglunnar segir að innbrotið í minkabúið sé enn til rannsóknar og miði vel en að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar um það að svo stöddu.

Skylt efni: innbrot

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...