Kornræktartilraunir kynntar á Kornþinginu á Hvanneyri.
Kornræktartilraunir kynntar á Kornþinginu á Hvanneyri.
Mynd / James Einar Becker / LbhÍ
Viðtal 30. september 2026

Hveititilraunir eru óplægður akur

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

„Við sjáum alveg á tölunum úr tilraunareitunum sem búið er að þreskja að þær eru mjög lofandi,“ segir Helgi Eyleifur Þorvaldsson, aðjunkt og brautarstjóri Ræktunar og fæðu hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Á Kornþingi og spildudögum, sem Landbúnaðarháskólinn hélt í byrjun september, voru kynntar niðurstöður tilrauna sem standa yfir á ræktun á byggi og svokölluðu vetrarhveiti sem er sáð að hausti og uppskorið ári síðar. Helgi segir lifun á vetrarhveiti hafa verið mjög mikla og sáð hafi verið aftur í tilraunareiti síðsumars. Kynbætur á byggi eiga sér áratugalanga sögu en í rannsóknarstarfi á hveiti segir Helgi blaðið vera autt, en spennandi tímar séu fram undan.

Helgi Eyleifur Þorvaldsson.

Vilja fá bændur út á akur skólans

„Við erum að vona að í einhverjum af þessum rúmlega þúsund reitum séum við með næsta íslenska yrkið,“ segir Helgi um byggtilraunirnar. Hann segir að til að setja nýtt yrki á markað þurfi það að vera 5-10% betra en það sem fyrir er á markaði. „Við erum þegar orðin nokkuð bjartsýn um að ná því,“ segir Helgi.

Helgi segir markmiðið með Kornþinginu vera að segja frá verkefnum sem eru í gangi á sviði kornræktar og fá bændur og áhugasama um kornrækt út á akurinn til að skoða tilraunirnar. Hann segir þá þó hafa verið of fáa sem sáu sér fært að mæta. Erfiðara sé orðið að halda stutt þing og fá fólk til að koma, margir þurfi að keyra um langan veg. „Við viljum helst reyna að fá fólk út á akurinn, það er rosalega mikill breytileiki í tilraununum sem er fróðlegt að sjá með eigin augum og fá tækifæri til að ræða málin.“

Kynbætur útskýrðar á hundavaði

Markmiðið með plöntukynbótastarfi er fjölþætt en verkefnið snýr að því að aðlaga erlendar tegundir að krefjandi umhverfisaðstæðum á Íslandi. Snemmþroska og veðurþolin yrki sem þróuð hafa verið erlendis fyrir norðlægar slóðir geta hentað á Íslandi en kynbæta þarf yrki til að henta sérstaklega við íslenskar aðstæður.

Núverandi hveitikynbótastarf hjá LbhÍ hófst með því að fá fræ af ólíkum yrkjum úr Norræna genabankanum. Fræjunum er sáð í litla tilraunareiti og vetrarlifun, þroski og fleiri eiginleikar metnir. Minnstu reitirnir eru innan við fermetra, og eftir því sem tilrauninni vindur fram er sáð í stærri reiti, á fleiri stöðum, en sáð var í 4.000 nýja hveititilraunareiti haustið 2026 á fjórum stöðum um landið.

Völdum einstaklingum er svo kerfisbundið víxlað saman eftir erfðamengjaspá með það að markmiði að búa til föður- og móðurbetrunga. Nýr einstaklingur (stök planta) verður þannig til. Tugir víxlana verða gerðar og þannig verða þúsundir einstakra einstaklinga til.

Einstaklingar eru erfðagreindir snemma á vaxtartímabilinu hjá sænska fyrirtækinu Lantmännen. Kynbótamat einstaklinga sem byggir á erfðagreiningum myndar erfðamengjaspá um afkomu einstaklings við íslenskar aðstæður með nokkurri nákvæmni. Erfðamengjaúrvalið flýtir því mjög fyrir ferli kynbótastarfsins og gerir vinnuna nákvæmari og margfalt umfangsmeiri.

Álitlegustu arfgerðirnar eru síðar sendar erlendis í fjölgun. Þaðan koma þær aftur til Íslands, fræ sem sáð er í tilraunareiti, eða svokallaðar kynbótalínur í akur LbhÍ.

Eftir endurtekna ræktun í tilraunareit fæst nokkur vissa um hvaða einstaklingar eru álitlegastir. Að endingu er tekin ákvörðun um hvert verður nýjasta yrkið á markaði og því er fjölgað. Fjölgunin á sér svo stað með veldisvexti, þar sem fáar plöntur eru í upphafi og lítið af fræi. Framboð af sáðkorni eykst þannig við hvert ræktunartímabil.

Fljótlega sjálfbær í byggi

Ákveðið var að byrja á byggi þegar fjármagn fékkst til áframhaldandi kynbóta í plöntukynbótaverkefninu Völu, sem gengur út á yrkjaprófanir og kynbótastarf. Bygg hefur nú verið í kynbótaræktun í tvö og hálft ár í þessu nýja kynbótaverkefni.

„Reitunum í kynbótastarfinu hefur verið fjölgað gríðarlega mikið,“ segir Helgi. Nú eru um 3.000 reitir undir bygg- og hafraræktun og 1.200 í hveitiræktartilraunir. „Við getum fljótlega farið að bera kennsl á einstaklingana sem verða nýjasta yrkið.“

Helgi segir það raunhæft markmið að Ísland verði sjálfbært með ræktun á byggi innan fárra ára. Eitt af markmiðum skýrslunnar Bleikir akrar, aðgerðaáætlun til eflingar í kornrækt, var að stækka innlendan kornmarkað. Þar var vísað bæði til kornræktar fyrir búfénað, alifugla, fisk í eldi og til manneldis.

25% af vetrarhveitinu lifði veturinn

Um 1.000 arfgerðir af vetrarhveiti, sem sáð var haustið 2024 og uppskorið ári síðar, voru fengnar úr NordGen, Norrænu erfðaauðlindastofnuninni. „Um 250 yrki lifðu veturinn af,“ segir Helgi og að það sé gott hlutfall, „það er mikill úrvalsstyrkur.“ Þeim var öllum sáð aftur haustið 2025 og svo úrvali í dreifðar tilraunir rétt fyrir Kornþingið til að fá betri mynd af lifun hinna ólíku arfgerða. „Út frá því er svo farið að víxla og reyna að búa til yrki sem verða frostþolnari og þroskast betur, eru móður- og föðurbetrungar.“

„Við byrjuðum á hveitinu í fyrra og erum að gera tilraunir með áburðarskammta til að sjá hvar mesta próteinmagnið fæst upp á falltölu og baksturseiginleika,“ segir Helgi. Falltala segir til um hvort korn hafi byrjað að spíra í axinu fyrir uppskeru, sem skiptir höfuðmáli þegar meta á hvort það sé hæft til manneldis. Helgi segir tilraunir í hveiti vera „tabula rasa“, autt blað, enda fáar tilraunir verið gerðar áður og engar af þessari stærðargráðu. 

Hann segir ekki útilokað að tilraunir verði gerðar með vorhveiti síðar, þau hafi einfaldlega þurft að velja og vetrarhveiti hafi verið talið álitlegri kostur.

Hafrar eru ekki formlega orðnir hluti af plöntukynbótaverkefninu Völu. Helgi segir margvíslegar rannsóknir á höfrum þó hafa staðið yfir í skólanum frá árinu 2017, fjármagnaðar með öðrum hætti en kornræktarátaki stjórnvalda, svo sem af Matvælasjóði og aðrar séu samnorræn rannsóknarverkefni.

Mynd / James Einar Becker / LbhÍ

Fóðurkorn og mannakorn

Um hundraðshluti þess korns sem nú er framleitt á Íslandi er hæft til manneldis en aukning hefur verið í kornrækt bænda til nota í eigin búskap. Langmest er ræktað af byggi, minna af höfrum og enn minna af hveiti.

Þó hafrar séu ræktaðir sem fóður er megináhersla í hafraræktun á manneldi. Helgi segir að aðallega þurfi að huga að bragðgæðum í ræktun hafra, sum yrki séu bragðvond ef þau þroskast illa, bragðmunur sé ekki eins mikill í byggi.

Helgi segir að þegar komi að kynbótastarfinu og eflingu innviða nýtist bæði í ræktun til manneldis og í fóður. „Ef þú býrð til gott yrki þá er það þitt val sem bóndi hvort þú nýtir það til manneldis eða í fóður,“ segir Helgi. „Vandinn er að hingað til eru ekki margir sem nýta bygg til manneldis. Það er vanmetið.“ Hann bætir við að korn til manneldis sé verðmætara.

„Draumsýn okkar, sem er rólega að raungerast, er að sílóunum í þurrkstöðvunum fjölgi. Þannig verður hægt að flokka kornið eftir gæðum til manneldis og fóðurs.“

Ákjósanlegt sé þó að hugsa slíka notkun og flokkun við uppbyggingu aðstöðu, til dæmis þurrkstöðva og samlaga sem taka við korni frá bændum, geyma og selja á markað. Þar sé hægt að byggja aðstöðu þannig upp að korn sé flokkað eftir gæðum og geymt í ólíkum sílóum. Til sé tækjabúnaður sem geri slíkt, en hann eigi eftir verða algengari á Íslandi. Hann segir að sílóunum sé þegar að fjölga sem gefi fögur fyrirheit.

Kynbótastarf er langtímaverkefni

Helgi Eyleifur segir bændur á Íslandi hafa ræktað erlend kornyrki með góðum árangri um langt skeið og reynsla þeirra og þekking geti óformlega nýst til rannsóknarstarfsins sem fer fram hjá stofnuninni. „Það eru bændur sem hafa sýnt okkur að þetta er hægt. Þeir sem eru búnir að vera í þessu lengi eru orðnir rosalega góðir.“

Helgi Eyleifur segir það hafa verið stórt skref að hefja kornkynbætur á ný eftir langt hlé. Hann nefnir merkilegan árangur af kynbótastarfi Jónatans Hermannssonar sem skilaði þeim yrkjum sem þegar eru á markaði, svo sem Smyrill og Kría, og hafa reynst vel í ræktun á Íslandi. „Þegar við byrjuðum á bygginu lá fyrir 30 ára ævistarf Jónatans sem er magnað, sérstaklega miðað við þá tækni og mannskap sem hann hafði. En í hveitinu er ekkert til, en þar erum við að sjá spennandi tíma,“ bætir Helgi við.

„Okkar langar mjög að halda áfram í kynbótum, til dæmis á kartöflum og baunum,“ segir Helgi og virðist kitla í puttana. „Það er heldur ekkert kynbótastarf lengur í túngrösum,“ segir hann og vísar í mögulegar viðbætur inn í plöntukynbótaverkefnið Völu sem getur nýst til slíkra tilrauna.

Skylt efni: kornrækt | LbhÍ | kornþing | spildudagar

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára
Viðtal 26. apríl 2022

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára

Baldur Sæmundsson, áfanga­stjóri í Menntaskólanum í Kópa­vogi, þar sem Hótel- og...

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein
Viðtal 8. apríl 2022

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein

Garðyrkjunám sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Su...

Fann mína ástríðu í þessu starfi
Viðtal 8. desember 2021

Fann mína ástríðu í þessu starfi

„Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu þessu fólki í sveitunum, notið gestri...

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“
Viðtal 8. nóvember 2021

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“

„Erfðaskrá er til þess fallin að leysa úr mörgum málum sem annars tæki tíma og o...

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“
Viðtal 13. júní 2021

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“

Talið er að harmonikkur hafi fyrst komið til Íslands með frönskum sjómönnum sem ...

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur
Viðtal 19. mars 2021

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum
Viðtal 12. febrúar 2021

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
Viðtal 12. janúar 2021

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt