Innbrot í eldisbú alvarleg þróun
Brotist hefur verið inn í þrjú eldisbú síðan í maí; svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi, Reykjabúið, hænsna- og kalkúnabú í Mosfellsbæ og nú síðast í minkabúið Dalsbú í Mosfellsdal. Innbrotin hafa reynst skaðleg búskap og haft alvarlegar afleiðingar fyrir dýr og nærumhverfi.






