Skrílsháttur
Leiðari 15. maí 2026

Skrílsháttur

Höfundur: Þröstur Helgason

Sláandi fréttir bárust af innbroti í svínabúið Stjörnugrís í vikunni. Eins og fram kemur í blaðinu hér í dag bendir umfang og framkvæmd verknaðarins til þess að fleiri en einn hafi verið að verki. Af verksummerkjum megi einnig ráða að brotið hafi verið framið undir yfirskini dýravelferðar. Samt sem áður bitna afleiðingar innbrotsins ekki síst á dýrunum en tíu smágrísir drápust og einn þeirra þurfti að aflífa vegna kjálkabrots. Þá eru fjölmargar gyltur með áverka, meðal annars haltar og rispaðar, og tvö fósturlát höfðu þegar orðið þegar síðast fréttist. Búast má við frekari afleiðingum á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, mjólkurmissis hjá gyltum og mögulegra fleiri fósturláta, eins og segir í fréttatilkynningu frá Stjörnugrís.

Ef það er rétt að innbrotið sé framið undir yfirskini dýravelferðar er augljóst að það gengur gegn málstaðnum. Aðgerðir sem skaða dýrin, sem yfirlýst markmið er að verja, geta einfaldlega ekki talist forsvaranlegar. Með þeim vinna aðgerðarsinnar þvert á móti gegn málstað sínum.

Greinilega er hér um brot að ræða gegn löglegri atvinnustarfsemi í landinu. Auk þess hafa svínabændur á undanförnum árum ráðist í miklar úrbætur á búum sínum í þágu betri aðbúnaðar eins og lög og reglugerðir gera ráð fyrir. Eftirlit er sömuleiðis strangt af hálfu Matvælastofnunar og forstjóri Stjörnugríss bendir raunar á að svínaeldi lúti hvað mestu eftirliti af þeim búgreinum þar sem fengist er við dýraeldi.

Bændum er annt um velferð dýra sinna. Þeir fara að lögum og reglum um dýrahald þó að einstaka undantekningar megi finna þeirra á meðal eins og á öllum sviðum mannlífsins. Sé fólk ósátt við lög og reglur um dýravelferð væri rétt að það beindi spjótum sínum að löggjafanum en ekki bændum, búum þeirra og dýrum. Annað er skrílsháttur og lögbrot sem taka verður hart á.

Hvað segja bændur?

Ríflega helmingur bænda, eða 53%, telur aðstæður í efnahagslífinu á Íslandi vera slæmar fyrir búrekstur sinn. Aðeins 8% telja þær góðar og 39% segja þær hvorki góðar né slæmar.

Þetta eru niðurstöður könnunar sem birtist í síðasta Bændablaði og hljóta að teljast afdráttarlausar um rekstrarumhverfi íslensks landbúnaðar.

Bændablaðið hefur varpað ýmsum spurningum á bændur innan Bændasamtaka Íslands undanfarna mánuði og birt í blaðinu undir yfirskriftinni Hvað segja bændur? Tilgangurinn með þessu er einfaldlega að kanna viðhorf bænda til ýmissa hluta sem snerta rekstur þeirra, störf og daglegt líf.

Á meðal athyglisverðra niðurstaðna er til dæmis sú að meira en helmingur bænda sinna störfum utan bús. Sú staðreynd segir kannski meira en mörg orð um afkomu íslenskra bænda.

Bændablaðið mun halda áfram að kanna viðhorf bænda til ýmissa hluta á næstu mánuðum og misserum. Blaðið þakkar þeim sem hafa tekið þátt í þessum könnunum og hvetja alla sem vilja hafa áhrif á upplýsta umræðu að svara þeim.

Þröstur Helgason

Skrílsháttur
Leiðari 15. maí 2026

Skrílsháttur

Sláandi fréttir bárust af innbroti í svínabúið Stjörnugrís í vikunni. Eins og fr...

Borg grámans
Leiðari 30. apríl 2026

Borg grámans

Reykjavíkurborg krefst þess að Gróðrarstöðin Mörk í Stjörnugróf fari af hluta ló...

Úr takti við tímann
Leiðari 16. apríl 2026

Úr takti við tímann

Ný atvinnustefna ríkisstjórnarinnar er úr takti við tímann í mikilvægum atriðum....

Nú þarf að láta verkin tala
Leiðari 7. apríl 2026

Nú þarf að láta verkin tala

Bændur komu saman á Búnaðarþingi í lok mars. Umfjöllunarefni þingsins var umfram...

Jarmað, hneggjað og baulað
Leiðari 13. mars 2026

Jarmað, hneggjað og baulað

„Það er óviðunandi og óþolandi að þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir tefjist um...

Upplýsingar vantar
Leiðari 12. mars 2026

Upplýsingar vantar

Umræðan um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið er nú ko...

Jarmað, hneggjað og baulað
Leiðari 4. mars 2026

Jarmað, hneggjað og baulað

LED-ljósavæðing gróðurhúsa landsins skapar ný tækifæri í ylrækt. Rannsókn Daniel...

Fjárfestum í framtíðinni
Leiðari 4. mars 2026

Fjárfestum í framtíðinni

Í fréttaljósi hér á síðunni koma fram nýjar tölur frá Hagstofu Íslands um afkomu...