Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Innbrot í svínabú Stjörnugríss
Fréttir 14. maí 2026

Innbrot í svínabú Stjörnugríss

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Miklar skemmdir og talsvert tjón

Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfararnótt 11. maí, stíur opnaðar og hurðir skildar eftir opnar þannig að dýrin gengu laus um húsin og úti á túni við búið.

Miklar skemmdir voru unnar við innbrotið, segir í tilkynningu frá Geir Gunnari Geirssyni, forstjóra Stjörnugríss, á skrifstofuaðstöðu starfsfólks og í svínahúsum búsins. „Afleiðingar innbrotsins fyrir dýrin eru mjög alvarlegar. Tíu smágrísir drápust í ringulreiðinni sem skapaðist og t.a.m. þurfti að aflífa einn grís vegna kjálkabrots. Þá eru fjölmargar gyltur með áverka, meðal annars haltar og rispaðar, og eitt fósturlát hefur þegar orðið. Búast má við frekari afleiðingum á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, mjólkurmissis hjá gyltum og mögulegra fleiri fósturláta.

Geir Gunnar Geirsson.

Ljóst er að verulega var brotið gegn smitvörnum búsins þar sem dýr úr mismunandi hópum blönduðust saman og sum þeirra fóru út fyrir húsakynni búsins. Umfang og framkvæmd verknaðarins benda til þess að fleiri en einn hafi staðið að innbrotinu. Af verksummerkjum má ráða að brotið hafi verið framið undir yfirskini dýravelferðar, þrátt fyrir að afleiðingar gjörðanna hafi valdið dýrunum verulegu tjóni og þjáningum,“ segir í tilkynningunni. Handskrifað bréf var skilið eftir sem komið er í hendur lögreglu, en innbrotið var kært.

Engar eftirlitsmyndavélar

Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss, segir í samtali við Bændablaðið að í kjölfar innbrota inn á nokkur íslensk minkabú í mars hafi Geir sent útkall til annarra svínabænda um að vera meira á verði gagnvart þessari hættu. Hann viti ekki til þess að settar hafi verið upp eftirlitsmyndavélar, það hafi í það minnsta ekki verið gert á hans búi en mögulega sé það næsta skref sem verði tekið.

Hann segir að svínabændur hafi þurft að þola ómaklega orðræðu sem skotið hafi upp kollinum aftur og aftur, um meintan slæman aðbúnað svína. Það sé hættuleg umræða og geti orðið til þess að æra óstöðuga, sem kannski sannist í þessum verknaði. Það sé líka afar ósanngjörn umræða því svínaræktendur á Íslandi hafi á undanförnum árum ráðist í úrbætur á sínum búum í þágu betri aðbúnaðar. Búgreinin sé auk þess undir ströngu eftirliti Matvælastofnunar og lúti raunar hvað mestu eftirliti Matvælastofnunar af þeim búgreinum þar sem fengist er við dýraeldi. Opinberir aðilar verði að bregðast málefnalega við þegar slík orðræða láti á sér kræla.

Geir Gunnar segir að tjónið sé mest tilfinningalegt fyrir þá sem standa að búinu og starfsfólkið og svo hafi þetta mikil áhrif á líðan dýranna en óvíst sé hversu alvarleg eða langvinn þau verði.

Spenagrísir viðkvæmir

Í tilkynningunni segir að dýrin hafi verið í miklu uppnámi þegar starfsfólk kom til vinnu morguninn eftir. Í óreiðunni hafi þau slasað sig sjálf en einnig hvert annað. Sérstaklega hafi verið þungbært að finna dauða grísi eftir nóttina.

„Mjög alvarlegt er þegar ró raskast hjá gyltum með got. Spenagrísir eru afar viðkvæmir fyrstu dagana og ef þeir týna móður sinni eða lenda hjá rangri gyltu getur hún hafnað þeim. Þá fá þeir hvorki næga næringu né vernd og geta veikst eða drepist á skömmum tíma. […] Við viljum jafnframt hvetja þá sem stóðu að þessum verknaði til að gefa sig fram og axla ábyrgð á gjörðum sínum. Við skiljum vel að fólk hafi áhuga á og áhyggjur af dýravelferð og það er af hinu góða að velferð dýra sé í hávegum höfð í samfélaginu.

Það er eitt að mótmæla eða hafa skoðanir á búrekstri, en allt annað að valda dýrum þjáningu, meiðslum og dauða, raska ró þeirra og eyðileggja umhverfi þeirra í nafni málstaðar síns.

Ég tel að allir hljóti að fordæma verknað af þessu tagi. Mótmæli eiga aldrei að bitna á dýrunum sjálfum,“ segir í tilkynningunni.

Ávinningur matvælarannsókna
Fréttir 16. júní 2026

Ávinningur matvælarannsókna

Árlegt málþing Matís, með yfirskriftinni Ávinningur matvælarannsókna, fór fram í...

Mikilvægi moldar
Fréttir 16. júní 2026

Mikilvægi moldar

Mikilvægi moldar var rætt á málþingi í Norræna húsinu 4. júní síðastliðinn. Þar ...

HÍ og Hólaskóli í Háskólasamstæðu
Fréttir 16. júní 2026

HÍ og Hólaskóli í Háskólasamstæðu

Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum sameinast undir merkjum háskólasamstæðu Hás...

Landsmótsandi á Hólum
Fréttir 16. júní 2026

Landsmótsandi á Hólum

Metfjöldi miða seldist í forsölu á Landsmót hestamanna sem fer þetta árið fram a...

Landbúnaðarsýning í október
Fréttir 15. júní 2026

Landbúnaðarsýning í október

Sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 verður haldin í Laugardalshöllinni dagana 9....

Svörtustu sviðsmyndirnar út af borðinu
Fréttir 15. júní 2026

Svörtustu sviðsmyndirnar út af borðinu

Vísindamenn í loftslagsmálum hafa afskrifað verstu sviðsmyndir loftslagsbreyting...

Litur eyrnamerkja gefinn frjáls
Fréttir 15. júní 2026

Litur eyrnamerkja gefinn frjáls

Litur eyrnamerkja í sauðfé er gefinn frjáls í drögum að reglugerðarbreytingu um ...

Karólína Rós nýr blaðamaður
Fréttir 15. júní 2026

Karólína Rós nýr blaðamaður

Karólína Rós Ólafsdóttir er nýr blaðamaður á Bændablaðinu en hún mun starfa við ...