Ævintýralegt spil í úrslitunum
12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni um síðustu helgi.
Á níu borðum voru spiluð þrjú grönd og uppskeran 8-13 slagir!
Eitt par spilaði 5 tígla og vann slétt, tvö pör fóru í slemmuna. Aðeins annað þeirra vann hana, lítum á handbragðið hjá Kristni Kristinssyni og Matthíasi Imsland, en sá síðarnefndi er framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands og hafði í ýmsu að snúast milli þess sem hann lét andstöðuna finna til tevatnsins. Matthías á það til að draga ekki af sér í sögnum. Og þá er eins gott að makker sé vel með á nótunum í úrspilinu.
Líkt og stöðumyndin sýnir voru sagnir Matta og makkers hans dálítið glannalegar. Eftir góða hækkun í opnunarlit makkers velur Matthías að stökkva í ásaspurninguna. Hefðu flestir gefist upp og meldað 5 tígla þegar 5 laufa svarið sagði til um aðeins eitt lykilspil. Matthías vildi meira.
Út kom laufás og meira lauf. Kristinn fór inn í blindan á spaða, spilaði tíguldrottningu, lítið hjá norðri, nokkur umhugsun, Kristinn stakk svo upp ásnum sem felldi trompkóng blankan. Þá var ekki annað eftir síðar í spilinu en að svína fyrir hjartakóng. Sem gekk líka.
Hvers vegna vann Kristinn sitt spil? Sennilega svínaði hann ekki tíglinum þótt svíning væri með líkum vegna þess að suður hindraði ekki á þremur laufum heldur meldaði tvö lauf. Það benti til að hann ætti opnunarstyrk í punktum eða nálægt því. Eins gott að vera vakandi og huga alltaf að öllu sem gerist við borðið. 13 impar, takk fyrir.
Annars er það að frétta af úrslitunum að sveit Infocapital varð Íslandsmeistari eins og vanalega, Grant Thornton í öðru sæti, sveit Doktorsins náði bronsinu, nokkuð óvænt en með glæsibrag og Málning varð í fjórða sæti.
Umsjón: Björn Þorláksson
bjornthorlaksson[hjá]gmail.com
