Skáldaþing á Egilstöðum og Seyðisfirði
Mynd / Aðsend
Fréttir 13. maí 2026

Skáldaþing á Egilstöðum og Seyðisfirði

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Ljóð munu flæða um götur, sundlaugar, veggi og verslanir á Egilstöðum og Seyðisfirði í lok maí. Skáldaþing, systurhátíð ljóða- og listhátíðarinnar Skáldasuðs, verður verður haldin dagana 20.-31. maí á Egilstöðum og Seyðisfirði. Á hátíðinni koma saman ný skáld og aðrir listamenn í samtali við gesti og áhorfendur. Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin á Egilstöðum og Seyðisfirði.

Katla Rut Pétursdóttir, verkefnastjóri hátíðarinnar og Gunnhildur Þórðardóttir, höfundur Skáldasuðs, hafa skipulagt Skáldaþingið fyrir austan. Hátíðin er í samstarfi við samfélagið í báðum bæjum og hafa nemendur grunnskóla Seyðisfjarðar til dæmis samið ljóð sem sýnd verða á Vesturvegg Skaftafells. Einnig verða ljóð eftir ný og þekkt ljóðskáld við göngustíga, í búðum og í sundlaugum Seyðisfjarðar og Egilstaða. Skáldin hafa öll tengingu við svæðin fyrir austan og á Suðurnesjum. Hér er hægt að skoða viðburðinn betur hér.

Hátíðin Skáldasuð hefur þrívegis verið haldin í Reykjanesbæ en þetta er í fyrsta sinn sem sköpuð er tenging landshluta á milli og hátíðin Skáldaþing haldin á Egilstöðum og Seyðisfirði. 

Sýning Skáldasuðs, Heilun, hefur að þessu tilefni ferðast frá Duus Safnahúsum úr Reykjanesbæ austur og verður sýningin sett upp í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Sýningin inniheldur allt verk sem hafa texta að leiðarljósi, eru hugmyndir að ljóðverkum eða verk sem hafa heilun sem innblástur eða pólítíska skírskotun. Ókeypis er inn á alla viðburði. 

Hátíðleg brautskráning hjá Landbúnaðarháskóla Íslands
Fréttir 8. júní 2026

Hátíðleg brautskráning hjá Landbúnaðarháskóla Íslands

Fjöldi nemenda brautskráðist frá Landbúnaðarháskóla Íslands 5. júní síðastliðinn...

Óku á kjörstað á gömlu dráttarvélunum sínum
Fréttir 5. júní 2026

Óku á kjörstað á gömlu dráttarvélunum sínum

Fjölskyldan á Litlu-Grund í Reykhólahreppi reynir alltaf að fara á gömlum drátta...

Eignarhald á landbúnaðarlandi í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 4. júní 2026

Eignarhald á landbúnaðarlandi í Útvarpi Bændablaðsins

Ný skýrsla um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi sýnir fram á að meirihluti...

Búvörusamningar framlengdir um eitt ár
Fréttir 4. júní 2026

Búvörusamningar framlengdir um eitt ár

Búvörusamningar hafa verið framlengdir um eitt ár en þeir hefðu annars runnið út...

Tilurðarsaga Skaftfells komin út á bók
Fréttir 4. júní 2026

Tilurðarsaga Skaftfells komin út á bók

Útgáfu bókarinnar var fagnað í Skaftfelli á Seyðisfirði á 100 ára afmæli Garðars...

Minni heimsins
Fréttir 4. júní 2026

Minni heimsins

UNESCO-dagurinn var haldinn hátíðlegur í byrjun maí, en í ár var fjallað sérstak...

Landgræðsluskólinn hefur útskrifað 240 nemendur
Fréttir 4. júní 2026

Landgræðsluskólinn hefur útskrifað 240 nemendur

Á undanförnum mánuðum hefur GRÓ Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu staðið fyrir vi...

Þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi næstu helgi
Fréttir 3. júní 2026

Þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi næstu helgi

Þungarokkshátíðin Sátan verður haldin í Stykkihólmi dagna 4.-6. júní. Þetta er í...