Innfluttar landbúnaðarafurðir.
Innfluttar landbúnaðarafurðir.
Mynd / Úr safni
Leiðari 7. apríl 2026

Nú þarf að láta verkin tala

Höfundur: Þröstur Helgason

Bændur komu saman á Búnaðarþingi í lok mars. Umfjöllunarefni þingsins var umfram allt starfsumhverfi landbúnaðarins og mátti heyra á sumum sem sóttu þingið að sú umræða væri orðin full langvinn og að kallað væri eftir skýrari og haldbærari stefnumörkun og aðgerðum af hálfu stjórnvalda. Viðsemjandi bænda er jú ríkið sem felur bændum það verkefni að sjá landsmönnum fyrir kjöti, mjólk, grænmeti og öðrum búvörum gegn stuðningi af ýmsu tagi. Hugmyndin á bak við þetta kerfi hér á landi er sú sama og víðast hvar annars staðar í heiminum, að landið verði sjálfbært þegar að matvælaframleiðslu kemur. Það tryggir fæðuöryggi, matvælaöryggi, minni losun gróðurhúsalofttegunda, heldur landinu í byggð og þannig mætti áfram telja.

Jafn ljóst er að útspil ríkisstjórnarinnar um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið í lok ágúst á þessu ári gerir lítið annað en að þyrla upp ryki, valda enn meiri óskýrleika og tvísýnu í íslenskum landbúnaði. Þetta útspil var ekki til ítarlegrar umræðu á þinginu en formaður Bændasamtakanna benti á í setningarræðu sinni að mögulegar aðildarviðræður væru uppspretta óvissu í íslenskum landbúnaði. Óvissan um það hvað verður í þessum efnum hefði kælingaráhrif og drægi þannig vilja úr bændum til þess að fjárfesta. Þetta bætist ofan á brýna og jafnvel uppsafnaða fjárfestingarþörf í flestum búgreinanna.

Það sem liggur þó einna þyngst á bændum um þessar mundir er hins vegar síaukinn innflutningur á landbúnaðarvörum. Í Bændablaðinu hafa á undanförnum vikum komið fram upplýsingar sem leiða í ljós að innflutningur á landbúnaðarvörum hefur aukist verulega á undanförnum árum. Þar hefur til dæmis komið fram að innflutningur á mjólkurafurðum nam tæplega 2.400 tonnum árið 2025 en innflutningur á osti/smjöri, jógúrt og ís tvöfaldaðist frá árinu 2017 til síðasta árs. Þetta gerist þó að metframleiðsla hafi verið á mjólk á síðasta ári. Í blaðinu í dag kemur enn fremur fram að framleiðsla á nautakjöti hefur minnkað um 2% frá 2017 til 2025 en innflutningur aukist um hvorki meira né minna en 117% á sama tíma. Svipaða sögu má segja af flestum öðrum búgreinum. Hlutdeild íslensks grænmetis hefur dregist saman um tíu prósentustig á undanförnum áratug. Hlutdeild innflutts svínakjöts hefur til að mynda stóraukist og er nú um þrjátíu prósent og áfram mætti telja.

Ástæðurnar fyrir þessu eru ekki þær að hér á landi sé ekki hægt að framleiða meira. Ástæðurnar eru miklu frekar að slaknað hefur verulega á tollvernd bænda, eins og bent er á í Hagtölum blaðsins í dag, en tollverndin er „nauðsynleg til að tryggja sanngjarna samkeppni fyrir innlendan landbúnað“, eins og segir í greininni. Launakostnaður er sömuleiðis hærri hér á landi en víða annars staðar og fjárfestingarstuðningur hins opinbera takmarkaður.

Í þessu samhengi verður einnig að hafa í huga að í mörgum tilvikum eru innfluttu landbúnaðarvörurnar ekki framleiddar við jafn ströng skilyrði og íslenskir bændur starfa við þegar kemur að til dæmis dýravernd og notkun sýklalyfja. Þegar upp er staðið skipta gæði matarins neytendur líklega meira máli en flest annað og þar stendur íslensk framleiðsla vel.

Eins og Hanna Katrín Friðriksson benti á í ávarpi sínu við setningu Búnaðarþings er það eitt af markmiðum stjórnvalda að efla íslenskan landbúnað og styrkja samkeppnishæfni hans. Í landbúnaðarstefnunni segir jafnframt að bæta skuli rekstrarumhverfi greinarinnar. Allt eru þetta góð og mikilvæg markmið. Þetta eru raunar í grófum dráttum megináherslur bænda á Búnaðarþingi. Þeir hafa lengi beðið eftir því að stoðir þessa grunnatvinnuvegar séu styrktar hér. Nú þarf að láta verkin tala.

Nú þarf að láta verkin tala
Leiðari 7. apríl 2026

Nú þarf að láta verkin tala

Bændur komu saman á Búnaðarþingi í lok mars. Umfjöllunarefni þingsins var umfram...

Jarmað, hneggjað og baulað
Leiðari 13. mars 2026

Jarmað, hneggjað og baulað

„Það er óviðunandi og óþolandi að þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir tefjist um...

Upplýsingar vantar
Leiðari 12. mars 2026

Upplýsingar vantar

Umræðan um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið er nú ko...

Jarmað, hneggjað og baulað
Leiðari 4. mars 2026

Jarmað, hneggjað og baulað

LED-ljósavæðing gróðurhúsa landsins skapar ný tækifæri í ylrækt. Rannsókn Daniel...

Fjárfestum í framtíðinni
Leiðari 4. mars 2026

Fjárfestum í framtíðinni

Í fréttaljósi hér á síðunni koma fram nýjar tölur frá Hagstofu Íslands um afkomu...

Réttaröryggi bænda er ekki aukaatriði
Leiðari 12. febrúar 2026

Réttaröryggi bænda er ekki aukaatriði

Frumvarp til breytinga á búvörulögum, sem nú liggur fyrir atvinnuveganefnd, er e...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Leiðari 30. janúar 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Það segir sitt um stöðu einkarekinna miðla hér á landi að forsvarsfólk auglýsing...

Nýliðunarvandi
Leiðari 30. janúar 2026

Nýliðunarvandi

Þetta orð, nýliðunarvandi, hefur heyrst lengi í umræðu um íslenskan landbúnað og...