Annað innbrot í svínabúið
Mynd / Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Fréttir 10. september 2026

Annað innbrot í svínabúið

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Aftur var brotist inn á Svínabú Stjörnugríss 2. september síðastliðinn. Líkt og í innbrotinu í maí voru hurðir og stíur opnaðar svo að dýrin gengu laus um húsið og átta dýr voru komin út á tún. Fimm smágrísir drápust og eina gyltu þurfti að aflífa vegna fótbrots.

Verksummerki voru með svipuðum hætti og í fyrra innbrotinu, en í þetta sinn var rúða brotin og farið inn um glugga. Þetta er fjórða innbrotið í eldisbú á fjórum mánuðum en fyrir utan innbrotin tvö í svínabú Stjörnugríss var brotist inn í alifuglabúið Reykjabúið og minkabúið Dalsbú.

Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss.

Afleiðingar skaðlegar fyrir dýrin

Aftur eru afleiðingar innbrotsins alvarlegar fyrir dýrin, auk þeirra sem drápust eru fjölmörg dýr særð og með áverka og voru sóttvarnir búsins rofnar. Líkt og eftir síðasta innbrot má búast við frekari afleiðingum á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, líkt og minnkaðri mjólkurframleiðslu hjá gyltum og mögulegum fósturlátum. Eftir innbrotið í maí urðu sjö fósturlát.

„Okkur er mjög brugðið yfir því að þetta skuli hafa endurtekið sig, sérstaklega í ljósi þess hversu alvarlegar afleiðingar fyrra innbrotið hafði fyrir velferð dýranna,“ segir Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss, í samtali við blaðið. „Ég átta mig ekki á því hvað er í gangi, þetta er að valda dýrunum skaða, ég get ekki séð neitt sem bendir til þess að þetta fólk sem brýst inn sé að berjast fyrir betri aðbúnaði eða dýravelferð.“

Innbrotin þaulskipulögð

Búið var að skipta um hurðir, setja rammgerðari hurðir og betri lása hjá Stjörnugrís en nú var brotist inn um glugga. Að sögn Geirs er ljóst að innbrotin séu þaulskipulögð. „Ég tel að ef þetta fólk vilji komast inn þá mun það gera það. Þetta fólk er greinilega vel búið, kom fótgangandi, ekki á bíl, og eru með hanska og eflaust andlitsgrímur. Þeir skildu ekkert eftir, svo lögreglan er ekki með neitt í höndunum,“ segir Geir.

Að sögn Geirs er það í vinnslu að setja upp frekara öryggiskerfi á búinu. „Við vorum byrjuð að skoða öryggismyndavélabúnað en bjuggumst ekki við öðru innbroti og það svo fljótt.“ Það er að mörgu að huga við öryggismál en á svo stóru búi eru fjölmargar hurðir inni og utan á húsinu. Geir segir að því séu þau enn að skoða hvað myndi virka best.

„Við erum ráðþrota, það eina sem við getum gert er að setja upp meiri öryggisbúnað en lögreglan verður að gera eitthvað í málinu,“ segir Geir.

Lögreglan með lítið í höndunum

Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir engar fréttir af málinu, sem er í rannsókn. „Við höfum ekkert til að tjá okkur um í bili,“ segir Hjördís í samtali við blaðið. Innbrotin fjögur eru öll rannsökuð sem stök mál þar til annað kemur í ljós. „Við höfum ekki sannanir fyrir því að þetta sé einn og sami aðilinn og eru málin því rannsökuð sitt í hvoru lagi,“ segir Hjördís.

Lögreglan biðlar til þeirra sem eru með dýra- og eldisbú að huga að öryggisráðstöfunum. „Það er hjálplegt þegar öryggiskerfi og myndavélar eru til staðar,“ segir Hjördís. „Bæði er það fráhrindandi fyrir fólk í þessum erindagjörðum að það sé öryggiskerfi, og hefur lögreglan þá einnig meira á milli handanna, einhvern tímaramma, svo auðvitað myndefni. Þá er til dæmis hægt að sjá hvort að fólk komi á bíl og hversu margir eru á staðnum, þá höfum við meira úr að moða.“ Aðspurð hvort lögreglan muni hafa aukinn viðbúnað við eldisbúin sem áður hefur verið brotist inn í segir Hjördís að lögreglan hafi ekki tök á að fylgjast sérstaklega með þessum stöðum. Hún segir að lögreglan sinni áfram sínu almenna eftirliti og reyni að vekja athygli fólks á að það þurfi að vera vart um sig.

Skylt efni: stjörnugrís | innbrot

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...