Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Gestum og gangandi var boðið upp á bollakökur í tilefni dagsins.
Gestum og gangandi var boðið upp á bollakökur í tilefni dagsins.
Mynd / Rúnar Hreinsson
Fréttir 8. september 2026

Hótel- og matvælaskólinn fagnaði 30 ára afmæli

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Síðastliðinn laugardag, 5. september, fagnaði Hótel- og matvælaskólinn í MK 30 ára afmæli. Haraldur J. Sæmundsson, framkvæmdastjóri skólans, segir að aðsóknin hafi farið fram úr björtustu væntingum.

Hátíðahöldin stóðu frá 11 til 16 og segir Haraldur að grillaðar hafi verið tæplega 1000 pylsur, 800 kleinuhringir seldust upp og allt seldist úr kjötbúðinni. Haldið var matreiðslunámskeið þar sem undirstaðan í kimchi-gerð var kennd ásamt fleiri viðburðum

Keppt var í kleinuhringjagerð, gúrkuskurði og haldin var undankeppni í Artic Young Chef, en keppnin verður haldin í MK á næsta ári. Þar mætast ungir og efnilegir kokkar frá Íslandi, Færeyjum, Noregi og Grænlandi. 

Myndir tók Rúnar Hreinsson.

Kennd var undirstaðan í gerð kimchi á matreiðslunámskeiði. Mynd / RH 
Kleinuhringjakeppnin var hörð. Tólf útfærslur á þessu vinsæla sætabrauði voru í keppninni. Mynd / RH
Keppendur í kleinuhringjabakstri. Mynd / RH
Haraldur J. Sæmundsson, framkvæmdastjóri skólans segir að tæplega 1000 pylsur hafi verið grillaðar fyrir svanga gesti. Mynd / RH 
Keppt var í undankeppni Artic Young Chef, en aðalkeppnin fer fram í MK á næsta ári. Mynd / RH 
Allt seldist úr kjötborðinu. Mynd / RH
Hægt var að bragða á alls kyns góðgæti, meðal annars ostum. Mynd / RH

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f