Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Yfirvofandi kartöfluskortur í haust
Fréttir 3. september 2026

Yfirvofandi kartöfluskortur í haust

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Franskir kartöflubændur sjá fram á mikið uppskerutap í haust og mögulegan skort á kartöflum vegna gríðarlegs hita og mikilla þurrka. Landssamband kartöfluframleiðenda í Frakklandi (UNPT) hefur sagt að þetta uppskerutap sé það stærsta skráða í greininni.

Reiknað er með að meðaluppskera matarkartaflna í Frakklandi í ár nemi 37,4 tonnum á hektara en uppskeran nam 43,5 tonnum á hektara í fyrra, 2025. Ef þessar tölur raungerast er það minnsta uppskeran í rúmlega 30 ár samkvæmt Landssambandi kartöfluframleiðenda, sem er meira tap en varð í miklum þurrkum og hitabylgju árið 2022. Þessu er greint frá á fréttasíðu Euronews.

Þurrkar og hiti hafa bæði áhrif á fjölda kartaflna og gæði þeirra. Kartöflurnar eru minni og margar hverjar ná ekki staðlaðri stærð, sem nemur 5 sentimetrum á radíus, og eru allar líkur á að vinnslufyrirtækin hafni þeim kartöflum. Uppskerutapið gæti þýtt að franskir kartöflubændur geti ekki mætt samningsákvæðum til vinnslufyrirtækja og hafa þeir kallað eftir því að samningarnir séu aðlagaðir raunverulegum uppskerutölum. Landssambandið leggur áherslu á að kartöflubændur beri ekki allt fjárhagstjónið einir vegna slæmra ræktunaraðstæðna og hefur kallað eftir því að ríkisstjórn Frakklands veiti kartöflubændum aðstoð og taki þátt í virku samtali við önnur Evrópulönd um mögulega styrki og úrræði.

Eftir offramleiðslu á kartöflum árið 2025 var kartöfluframleiðsla dregin saman um 9,7%. Kartöflurækt fór úr 192.099 gróðursettum hekturum árið 2025 í 173.415 hektara árið 2026, til þess að sporna við offframleiðslu og matarsóun. Minni ræktun spilar því einnig þátt í yfirvofandi kartöfluskorti Frakklands á næstu mánuðum. Auk þess sem vandamálið hefur vakið upp spurningar hvað varðar ræktun við erfiðar og síbreytilegar aðstæður vegna loftslagsmála er búist við því að verðhækkun verði á kartöflum í verslunum í haust. 


Skylt efni: Frakkland

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...