Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Aðalinngangurinn að þjóðþingi Dana.
Aðalinngangurinn að þjóðþingi Dana.
Mynd / Anders Hviid - Folketinget
Fréttir 3. september 2026

Bændur uggandi

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Stjórnvöld í Danmörku hafa boðað skarpan samdrátt í leyfilegri notkun köfnunarefnis og plöntuvarnarefna í landbúnaði til þess að bæta vatnsvernd. Bændur segja stjórnvöld innleiða breytingarnar of geyst.

Árið 2024 var gerður samningur um græna Danmörku þar sem bændur, matvælaframleiðendur, sveitarfélög, iðnrekendur og náttúruverndarsamtök miðuðu að því að minnka losun gróðurhúsalofttegunda, endurheimt vistkerfa og eflingu vatnsbúskapar. Bændur voru ánægðir með þann samning, en ákvæði hans átti að innleiða í þrepum og var innbyggður hvati til samdráttar í losun.

Nú hafa stjórnvöld hins vegar bætt verulega í kröfurnar eftir að vatnsverndarmál voru eitt helsta kosningamálið í Danmörku í vor. Skömmu áður hafði verið gefin út skýrsla sem sýndi fram á að vatnsból voru víða með nítrat yfir heilsuverndarmörkum. Eins hefur nítrat safnast upp í fjörðum og vötnum meðfram sjónum sem hefur leitt til súrefnisþurrðar. Nítrat getur safnast upp í jarðvegi og grunnvatni þegar lífrænn og/eða tilbúinn áburður með köfnunarefni er notaður í miklu magni. Það sem ekki situr eftir í jarðveginum og grunnvatni skolast út í sjó.

Lagabreytingin, sem miðar að því að frá og með næsta ári verði sett mikil höft á notkun áburðar og bann lagt við notkun plöntuvarnarefna, verður tekin fyrir á Folketinget, þjóðþingi Dana, í september. Bændur segja fótunum kippt undan sínum búrekstri með svo miklum breytingum á svo skömmum tíma. Landbrug & Fødevarer, sem eru systursamtök Bændasamtaka Íslands, hafa kallað til fjöldafundar 31. ágúst til að mótmæla áformum stjórnvalda. Eins hafa samtökin Bæredygtigt Landbrug boðað til mótmæla fyrir utan Folketinget þegar málið verður tekið til annarrar umræðu þann 1. september.

Skylt efni: Danmörk

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...