Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og 6. september næst komandi á Stokkseyri. Þetta er í sjötta sinn sem hátíðin er haldin.
Hátíðin ber undirtitilinn „menning er matarkista“. Fjöldi höfunda hefur heimsótt Stokkeyri yfir hátíðina síðustu ár og í ár munu sjö höfundar stíga á stokk. Það eru: Nína Ólafsdóttir, Ingi Markússon, Lóa H. Hjálmtýsdóttir, Una Margrét Jónsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Ægir Þór.
Fjölbreytt dagskrá
Aðalviðburðurinn á Haustgildi í ár verður upplestur Lóu H. Hjálmtýsdóttur og Unu Margrétar Jónsdóttur. Harpa Rún Kristjánsdóttir, rithöfundur, ritstjóri og útgefandi, heldur utan um spjall um skrif þeirra og veltir fyrir sér gildi þess að kátína og komedía fái að njóta sín í samtímanum.
Ingibjörg Elsa Turchi og Hróðmar Sigurðsson spila á Fjöruborðinu laugardaginn fimmta september kl. 15 ásamt Magnúsi Trygvasyni Eliasen trommara.
Jónas Sig og hljómsveit spila svo á Haustgildi í ár. Tónleikarnir hefjast í ár kl. 17 á sunnudeginum sjötta september. í Stokkseyrarkirkju. Markús & the diversion sessions munu hita upp.
Listamenn á Stokkseyri opna dyrnar á galleríum sínum. Það verður hægt að skoða handverk í Gussi Gallerí, Gallerí Gimli, Heba keramík og Gallerí Svartakletti. Eins verður markaður á Haustgildi og boðið upp á framleiðslu og vörur úr nágrenninu.
Þau sem standa á bakvið Haustgildi eru Bókabæirnir austanfjalls sem hefur fengið styrki úr Uppbyggingasjóð Suðurlands til að standa að hátíðinni ásamt stuðningi frá Sveitarfélaginu Árborg.
Frekari upplýsingar verður hægt að nálgast á haustgildi.is.
