Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Þeir Magnús og Halldór eru jafnan á heimavelli í sumarbridds.
Þeir Magnús og Halldór eru jafnan á heimavelli í sumarbridds.
Mynd / BSÍ
Líf og starf 9. september 2026

Slysalegur toppur í sumarbridds

Höfundur: Björn Þorláksson

Stundum gera spilarar allt rétt við borðið en enda með blóðnasir er kemur að skori. Þannig var það hjá Magnúsi SverrissyniHalldóri Þorvaldssyni, goðsögnum í bronsstigaheiminum, í spili dagsins í sumarbridds á dögunum.

Vestur gefur – allir á hættu

Bölvun félaganna hófst þegar ónefndur og ekkert allt of einbeittur suður dró upp vitlausan sagnmiða í opnunarsögn. Taldi sig vera að melda 1 tígul með sterku spilin en sagði óvart lauf með þrjú lauf en fjóra tígla. Þetta leiddi til þess að Halldór stakk inn einum tígli (sem átti eftir að reynast örlagaríkt). Norður doblaði, Magnús í austur meldaði einn spaða en suður hoppaði í 3 grönd.

Út kom spaði sem sagnhafi dúkkaði einu sinni en stakk upp ás í öðrum slag þegar ljóst var hvernig spaðinn brotnaði. Næst var hjarta spilað á ás og tígli á níuna! Harla líklegt eftir sögn Halldórs að það bæri árangur, sem gekk eftir. Sagnhafi sá að vestur átti líklega öll þau mannspil sem enn voru óstaðsett þar sem austur átti spaðapunktana. Annars hefði Halldór varla átt fyrir tígulsögninni? Næst var því tíguldrottningu spilað, Halldór drap og gerði vel með því að spila áfram tígli sem gaf engan slag en sviðið var sett. Suður drap, tók hjartakóng og gat valið um hvaða rauðu spili skyldi spilað. Vestur drap, gat tekið einn tígulslag en var svo endaspilaður og þurfti í 10. slag að spila laufi frá drottningunni þriðju.

Fullkomin vörn en mínus 600 og nánast botn. Mest vegna þess að suður dró upp vitlausan sagnmiða í fyrsta hring!

Úrvalsdeildin áfram

Þau gleðitíðindi hafa borist frá Bridgesambandi Íslands að ákveðið hefur verið að halda áfram með Úrvalsdeildina í bridge. Spilað verður á sunnudagskvöldum í beinni útsendingu. Verður hægt að fylgjast með spennandi viðureignum milli bestu sveita landsins í gegnum Rafíþróttir á Símanum, Twitch eða Youtube. Mótaröðin sló í gegn í fyrravetur og hefst leikur á ný í september, að sögn Matthíasar Imsland, framkvæmdastjóra Bridgesambands Íslands.

Umsjón: Björn Þorláksson,

bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Skylt efni: bridds

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 8. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin má eiga von á, nú með nýju tungli, að reynt verði á samskipta- og/eða sams...

Ungir vinna Haustmótið
Líf og starf 7. október 2026

Ungir vinna Haustmótið

Haustmót Taflfélags Reykjavíkur kláraðist í síðustu viku með öruggum sigri Jósef...

Ásaspurning – en hvað er tromp?
Líf og starf 7. október 2026

Ásaspurning – en hvað er tromp?

Þegar ég lærði bridds fyrir hálfri öld voru ásarnir í spilinu bara fjórir. Og of...

Vönduð óþekkt
Líf og starf 6. október 2026

Vönduð óþekkt

Haustið er mætt og það þýðir að nú er kominn tími til að stokka aðeins upp í fat...

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
Líf og starf 6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtisti í 17. tölublaði Bændablaðsins.

Hugrekki persónulegrar tjáningar
Líf og starf 6. október 2026

Hugrekki persónulegrar tjáningar

Safnasafnið, vel kynnt höfuðsafn íslenskrar alþýðulistar, hefur um áraraðir unni...

Horfinn er séra Oddur
Líf og starf 6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Sveinn Pálsson, náttúrufræðingur og læknir, hélt dagbók öll sín fullorðinsár og ...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 24. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin blómstrar í vinnu eða skóla og finnur fyrir mikilli hvatningu til að klára...