Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Hér tefla þeir Egill Steinar og Jakob Steinn á æfingamóti Skákskólans.
Hér tefla þeir Egill Steinar og Jakob Steinn á æfingamóti Skákskólans.
Mynd / Tómas Tandri
Líf og starf 9. september 2026

Æfingamót Skákskólans hafið!

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Æfingamót Skákskólans er í fullum gangi þessa dagana. Mótið var upphaflega hugsað sem upphitun fyrir skákferðir erlendis hjá ungu kynslóðinni komandi haust, en eins og þekkt er, er minna um kappskák yfir hásumarið á Íslandi. Það þýðir því lítið að mæta æfingalaus til leiks að hausti. Mótið er skipað nemendum Skákskólans og landsliðsfólki í bland við skákáhugamenn sem vilja halda sér í æfingu með því að tefla við aðra metnaðarfulla skákmenn. 

Fyrirkomulagið er þannig að tefldar eru sjö kappskákir, tvær á viku í ágústmánuði, en hægt er að taka frjálsar hjásetur gegn hálfum vinningi allt mótið. Þannig geta menn teflt kappskákir í amstri dagsins, tekið hlé þegar þess þarf, en geta þó teflt fáeinar skákir. Til að undirstrika að um æfingamót er að ræða, er þátttaka ókeypis og engin verðlaun en mótið samt reiknað til kappskákstiga. Nú þegar hafa ungir skákmenn fengið mörg góð tækifæri til að kljást við reyndari og sterkari skákmenn.

Hér heima er það helst að frétta úr skákinni að Minningarmót Friðriks Ólafssonar, sem skákáhugamenn hafa beðið í ofvæni eftir að yrði auglýst, er komið á dagskrá og skráning er hafin. Mótið er haldið í samstarfi Skáksambands Íslands og Taflfélags Reykjavíkur, en Friðrik var liðsmaður TR frá 11 ára aldri og þar til hann lést, 90 ára. Líklega hafa fáir verið samfleytt eins lengi í T.R. Vart þarf að kynna Friðrik hér, en ég minni þó á bók Helga Ólafssonar sem ber einfaldlega nafnið – Friðrik Ólafsson. Bókin er skyldueign þeirra sem vilja kynna sér feril okkar besta manns. Mótið verður 24. nóvember til 1. desember. Ekki veit ég hvort það sé tilviljun, en það er vel við hæfi að binda enda á mót til minningar um þjóðhetjuna Friðrik, á fullveldisdegi Íslands. Helgina fyrir mótið verður einnig haldið stórmót á Mývatni. Mótin tvö munu því eflaust laða að erlenda keppendur.

Í annarri umferð æfingamóts Skákskólans fékk undirritaður tækifæri til að binda endi á skák sína með skemmtilegum drottningarvinningi, sem lesendur fá að kljást við. Í stöðumyndinni sem hér fylgir á hvítur leik, og vinnur.

Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband.

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

gauti.pj[hjá]hotmail.com

Skylt efni: Skák | skákskólinn

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 8. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin má eiga von á, nú með nýju tungli, að reynt verði á samskipta- og/eða sams...

Ungir vinna Haustmótið
Líf og starf 7. október 2026

Ungir vinna Haustmótið

Haustmót Taflfélags Reykjavíkur kláraðist í síðustu viku með öruggum sigri Jósef...

Ásaspurning – en hvað er tromp?
Líf og starf 7. október 2026

Ásaspurning – en hvað er tromp?

Þegar ég lærði bridds fyrir hálfri öld voru ásarnir í spilinu bara fjórir. Og of...

Vönduð óþekkt
Líf og starf 6. október 2026

Vönduð óþekkt

Haustið er mætt og það þýðir að nú er kominn tími til að stokka aðeins upp í fat...

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
Líf og starf 6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtisti í 17. tölublaði Bændablaðsins.

Hugrekki persónulegrar tjáningar
Líf og starf 6. október 2026

Hugrekki persónulegrar tjáningar

Safnasafnið, vel kynnt höfuðsafn íslenskrar alþýðulistar, hefur um áraraðir unni...

Horfinn er séra Oddur
Líf og starf 6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Sveinn Pálsson, náttúrufræðingur og læknir, hélt dagbók öll sín fullorðinsár og ...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 24. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin blómstrar í vinnu eða skóla og finnur fyrir mikilli hvatningu til að klára...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f