Frá viðburði á Sogni í Ölfusi á dögunum þegar formlegt átak í endurheimt votlendis á ríkisjörðum var sett af stað og byrjað var að moka ofan í skurði.
Frá viðburði á Sogni í Ölfusi á dögunum þegar formlegt átak í endurheimt votlendis á ríkisjörðum var sett af stað og byrjað var að moka ofan í skurði.
Mynd / Hreinn Óskarsson
Fréttir 10. nóvember 2026

Heildarlög um loftslagsmál

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra mælti fyrir frumvarpi til nýrra heildarlaga um loftslagsmál á Alþingi 13. október.

Markmið frumvarpsins eru þríþætt. Í fyrsta lagi að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka kolefnisbindingu í samræmi við markmið stjórnvalda og alþjóðlegar skuldbindingar með réttlát umskipti, verndun líffræðilegrar fjölbreytni og sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Í öðru lagi að Ísland verði kolefnishlutlaust eigi síðar en 2040 og loks að íslenskt samfélag aðlagist og búi að þoli gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga og stuðli að þoli vistkerfa fyrir þeim.

Viðbrögð við frávikum frá skuldbindingum

Gildandi lög eru frá 2012 og í tilkynningu úr ráðuneyti umhverfis- mála segir að frumvarpinu sé ætlað að styrkja umgjörð loftslagsmála, tryggja eftirfylgni með skuldbindingum Íslands og hraða innleiðingu loftslagsaðgerða.

Í frumvarpinu er að finna nýtt ákvæði sem kveður á um skýr viðbrögð ef losun þróast með þeim hætti að Ísland sé ekki á réttri leið til að standa við loftslagsskuldbindingar sínar. Gefi losunarbókhald til kynna frávik frá skuldbindingum þurfi þannig að meta fjárhagslegan kostnað, gera grein fyrir honum í ríkisreikningi og leggja fram tillögur að markvissari aðgerðum.

Ákvæðinu er ætlað að skapa skýrari lagastoð fyrir eftirfylgni með þeim ferlum sem eiga að tryggja metnað og raunhæfi loftslagsaðgerða og stuðla að því að loftslagsskuldbindingar Íslands verði uppfylltar með sem hagkvæmustum hætti.

Réttlát umskipti

Til að flýta loftslagsaðgerðum hefur verið sett heimild í frumvarpið til að starfrækt verði sérstök framkvæmdateymi sem eiga að hraða innleiðingu loftslagsaðgerða þvert á ráðuneyti og stofnanir. Þá er krafan um réttlát umskipti lögfest þannig að loftslagsaðgerðir taki mið af samfélagslegum áhrifum og stuðli ekki að auknum ójöfnuði.

Í frumvarpinu er lagt til að Loftslagsráð verði vísinda- og sérfræðiráð með aukið sjálfstæði og sterkari faglegan grunn. Einnig verður starfsemi landsnefndar um loftslagsvísindi lögfest í fyrsta sinn. Markmiðið er að ákvarðanir stjórnvalda í loftslagsmálum byggi á bestu tiltæku vísindalegu þekkingu hverju sinni.

Loftslagsstefna fyrir Ísland

Í frumvarpinu eru ákvæði um að mótuð verði loftslagsstefna fyrir Ísland. Stefnunni er ætlað að marka heildstæða framtíðarsýn stjórnvalda í loftslagsmálum og fela í sér bæði langtímamarkmið og skilgreind milli- og skammtímamarkmið.

Þá er í frumvarpinu lagt til að fyrir árslok 2027 fari fram sérstakt mat á forsendum markmiðs Íslands um kolefnishlutleysi árið 2040.

Á grundvelli þess skal ráðherra leggja til viðmið um losun gróðurhúsa- lofttegunda utan landnotkunar og sérstakt viðmið um losun vegna landnotkunar. Jafnframt skal innan sama tímaramma skýra hvernig haga skuli mögulegri notkun kolefniseininga vegna uppgjörs skuldbindinga samkvæmt Parísar- samningnum og hvenær neikvæðri nettólosun skuli náð.

Skylt efni: loftslagsmál

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands
Fréttir 10. nóvember 2026

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undan-arin fimm ár. Fleiri...

Heildarlög um loftslagsmál
Fréttir 10. nóvember 2026

Heildarlög um loftslagsmál

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra mælti fyrir frum...

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni
Fréttir 10. nóvember 2026

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni

Út er komin aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Meðal forgangsaðgerða er ...

Nokkur hundruð kíló ruku út
Fréttir 9. nóvember 2026

Nokkur hundruð kíló ruku út

Matland brást skjótt við áhuga lesenda á að kaupa annars flokks lífrænar gulrætu...

Stefnt á mikla skógrækt
Fréttir 9. nóvember 2026

Stefnt á mikla skógrækt

Fyrirtækið Yggdrasill Carbon ehf., hyggst ráðast í skógrækt í landi Ljárskóga í ...

Áfram hægt að  kaupa hamsatólg
Fréttir 9. nóvember 2026

Áfram hægt að kaupa hamsatólg

Framleiðsla hamsatólgar heldur áfram. Í byrjun hausts leit út fyrir að Stóruvell...

Olíuverð áfram hátt og sveiflukennt
Fréttir 9. nóvember 2026

Olíuverð áfram hátt og sveiflukennt

Eldsneytisverð hefur hækkað verulega frá áramótum og Runólfur Ólafsson, framkvæm...

Betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða
Fréttir 9. nóvember 2026

Betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða

„Verkefnið Mýrarlíf er sjálfstætt en fer vel með aðgerðum stjórnvalda um endurhe...