Olíuverð áfram hátt og sveiflukennt
– Hækkun kílómetragjalds leggst þyngra á landsbyggðina
Eldsneytisverð hefur hækkað verulega frá áramótum og Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), segir horfur næstu mánaða óvissar. Við þetta bætist fyrirhuguð 15,9% hækkun kílómetragjalds um áramót, sem hann segir koma sérstaklega niður á fólki sem þarf að aka langar vegalengdir, ekki síst á landsbyggðinni. FÍB telur hækkunina einnig geta aukið kostnað við vöruflutninga og stuðlað að verðbólguþrýstingi.
Samkvæmt upplýsingum Runólfs hefur verð á bensíni hjá N1 farið úr 216,7 krónum á lítra í ársbyrjun í 289,4 krónur í lok október sem jafngildir um 34% hækkun. Dísilverð hjá félaginu hefur á sama tíma farið úr 237,7 krónum í 340,5 krónur á lítra, eða hækkað um 43%.
Svipuð þróun hefur orðið hjá öðrum söluaðilum. Costco hefur áfram boðið lægsta verðið að sögn Runólfs en þar hefur verðið einnig hækkað verulega frá áramótum.
Hann segir mestu verðhækkunina hafa orðið frá byrjun september þegar verð tók stökk upp á við hjá öllum söluaðilum. Þar hafi meðal annars haft áhrif að tímabundin lækkun virðisaukaskatts var aflögð og ólga jókst við Hormússund.
Runólfur segir álagningu íslensku olíufélaganna háa og að hún hafi vaxið samhliða samdrætti í sölu eldsneytis. Samdráttinn megi meðal annars rekja til orkuskipta og sparneytnari brunahreyfilsbíla.
„FÍB teldi eðlilegt að stjórnvöld settu hömlur á álagningu á fákeppnismarkaði með olíu þegar fyrirtækjunum er ekki treystandi til að stunda heilbrigða samkeppni,“ segir Runólfur.
Óvissa um verðþróun næstu mánaða
Runólfur segir horfur á eldsneytismarkaði næstu misseri afar óvissar. Kolefnisgjald muni hækka um 2,5% um næstu áramót og áætlar hann að sú hækkun bæti um einni krónu við lítraverð eldsneytis.
Þá ríki mikil óvissa um þróun heimsmarkaðsverðs á olíu. Spenna og hernaðarátök í MiðAusturlöndum, þar á meðal tengd Íran, áframhaldandi stríð í Úkraínu og ófyrirsjáanleg stefnumótun bandarískra stjórnvalda geti haft veruleg áhrif á framboð, eftirspurn og verð á alþjóðlegum olíumörkuðum.
„Við núverandi aðstæður er því erfitt að spá fyrir um þróun eldsneytisverðs á næstu mánuðum, en helstu vísbendingar benda til þess að verð verði áfram hátt og sveiflukennt,“ segir Runólfur.
Meiri áhrif á þá sem þurfa að aka langt
Við hækkandi eldsneytisverð bætist fyrirhuguð 15,9% hækkun kílómetragjalds um næstu áramót. Runólfur segir hana hafa neikvæð áhrif bæði á rekstur heimilisbíla og vöruflutninga.
Áhrifin eru að hans mati sérstaklega mikil fyrir þá sem búa utan höfuðborgarsvæðisins og þurfa að aka langar vegalengdir til vinnu, skóla eða til að sækja þjónustu.
Fyrir fólksbíl sem ekið er 15 þúsund kílómetra á ári segir Runólfur hækkunina þýða að kílómetragjaldsreikningurinn hækki um 16.500 krónur á ári. Sé bílnum ekið 20 þúsund kílómetra hækkar reikningurinn um 22 þúsund krónur.
„Þótt kostnaðaraukning fyrir hvern einstakan ökumann kunni að virðast hófleg í krónum talið verður samanlögð hækkun bifreiðakostnaðar heimilanna umtalsverð þegar tekið er tillit til eldsneytis, trygginga, viðhalds og annarra gjalda,“ segir Runólfur.
Getur skilað sér út í verðlag
Hækkun kílómetragjaldsins hefur samkvæmt mati FÍB jafnframt áhrif á atvinnulífið. Gjaldið sé beinn kostnaðarliður við vöruflutninga, dreifingu og aðra þjónustu sem krefst mikils aksturs og telur Runólfur að flutningafyrirtæki muni að óbreyttu velta kostnaðarhækkuninni út í verðlag.
Vegna landfræðilegra aðstæðna hér á landi geti aukinn flutningskostnaður meðal annars komið fram í verði matvæla, byggingarvara og annarra neysluvara. Áhrifin á hverja einstaka vöru kunni að vera takmörkuð en samanlagt geti þau aukið verðbólguþrýsting.
Runólfur bendir jafnframt á það sem hann telur ákveðna þversögn í fyrirhugaðri hækkun. Kílómetragjaldið eigi að hækka um 15,9% á sama tíma og stjórnvöld og opinberir aðilar hafi lagt áherslu á að takmarka gjaldskrárhækkanir við um 2,5% til að styðja við verðbólgumarkmið.
Að mati Runólfs mega því bæði heimili og fyrirtæki búast við áframhaldandi þrýstingi á samgöngukostnað á árinu 2027. Hækkun kílómetragjalds muni þar bætast við hátt eldsneytisverð og geti að einhverju leyti skilað sér í hærra vöruverði og viðvarandi verðbólguþrýstingi.
