Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning
Fréttir 6. nóvember 2026

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Íslenskur sjávarútvegur hefur tekið stórkostlegum breytingum á síðustu áratugum, sem rekja má til nýrrar stefnu í fiskveiðistjórnun, tækniþróunar og almennra samfélagsbreytinga.

Sveinn Agnarsson.

Samþjöppun í greininni hefur leitt til þess að útgerð hefur dregist saman á vissum stöðum og samsetning heimaflotans breyst. Sem dæmi er uppsjávarvinnsla nú að mestu bundin við átta til níu hafnir og stór hluti bolfiskaflans fer til vinnslu í tæknivæddum fiskiðjum þar sem stærðarhagkvæmni er fullnýtt. Þótt sjávarútvegur blómstri í mörgum sveitarfélögum, hefur þróunin verið á annan veg í smærri og brothættari byggðum þar sem greinin á verulega undir högg að sækja.

Ný rannsókn Rannsóknaseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum (RBS) við Háskólann á Bifröst bendir til þess að sértækur byggðakvóti hafi jákvæðari áhrif á efnahagsþróun í sjávarbyggðum en aðrar byggðaráðstafanir innan fiskveiðistjórnunarkerfisins. Heiti rannsóknarinnar er: Strandveiðar og byggðakvótar: Verður auknum umsvifum í strandveiðum og byggðakvótum vart í auknum atvinnutekjum eða útsvarstekjum viðkomandi sveitarfélaga?

Vífill Karlsson.

Niðurstöðurnar þykja að sumu leyti athyglisverðar, sér í lagi hvað varðar strandveiðar og línuívilnun. Í rannsókninni, sem unnin var af þeim Vífli Karlssyni og Sveini Agnarssyni, voru metin áhrif fimm mismunandi byggðaaðgerða á tímabilinu 2008–2024. Þær aðgerðir sem litið var til eru strandveiðar, línuívilnun, almennur og sértækur byggðakvóti, auk skel- og rækjubóta. Stuðst var við yfirgripsmikil gögn til að greina tengsl þessara þátta við útsvarstekjur sveitarfélaga, atvinnutekjur íbúa, misskiptingu þeirra, atvinnuleysi, íbúafjölda, búferlaflutninga og þróun fasteignamarkaðar.

Meginniðurstaðan sýnir að sértæki byggðakvótinn, sem Byggðastofnun úthlutar, skilar mælanlega besta árangrinum. Marktæk, jákvæð fylgni kom fram á milli þessarar úthlutunar og aukinna útsvarstekna, hærri atvinnutekna, fjölgunar íbúa og fleiri íbúðakaupa. Þá sýndu gögnin jafnframt fram á minna atvinnuleysi samfara aðgerðinni. Sérstaklega vakti athygli að jákvæð tengsl við atvinnutekjur reyndust rúmlega helmingi sterkari meðal kvenna en karla.

Aðrar byggðaaðgerðir sýndu mun óljósari niðurstöður. Skel- og rækjubætur komu næstbest út og almenni byggðakvótinn þar á eftir, en línuívilnun og strandveiðar höfðu minnst áhrif í samanburðinum. Segir í skýrslunni að „Jafnframt hafi mælst neikvæð fylgni við atvinnuleysi auk þess sem jákvæð fylgni við atvinnutekjur var meira en tvöfalt sterkari hjá konum en körlum.“

Rannsóknin leiðir jafnframt í ljós að mikilvægi strandveiða er mjög mismunandi eftir svæðum. Sem dæmi má nefna Árneshrepp á Ströndum, þar sem strandveiðiafli hefur numið allt að 90% af heildar botnfiskafla á árunum 2020–2024, á meðan hlutfallið er mun lægra í flestum öðrum sjávarútvegssveitarfélögum. Hlutdeild strandveiða í byggðaráðstöfunum jókst úr 40% í 46% á milli fiskveiðiáranna 2020/2021 og 2024/2025 á landinu öllu. Svipaður munur í svæðisbundnu mikilvægi er að finna í öðrum úrræðum; línuívilnun telur mest um 60% af lönduðum afla í Strandabyggð og Kaldrananeshreppi, og almenni byggðakvótinn vegur hvað þyngst í Húnaþingi vestra, Súðavíkurhreppi og Strandabyggð.

Fiskveiðar hafa almennt mjög breytileg áhrif á efnahag sveitarfélaga. Þau sex sveitarfélög þar sem áhrifanna gætir mest eru Snæfellsbær, Kaldrananeshreppur, Sveitarfélagið Skagaströnd, Grýtubakkahreppur, Vestmannaeyjabær og Grundarfjarðarbær.

Höfundar telja niðurstöðurnar gefa mikilvægar vísbendingar um mismunandi efnahagslega þýðingu byggðaaðgerða í sjávarútvegi. Þótt ekki sé hægt að fullyrða um orsakasamhengi, benda tölfræðilegu greiningarnar til þess að sértæki byggðakvótinn hafi sterkari jákvæð tengsl við efnahagsþróun sjávarbyggða en aðrar sambærilegar aðgerðir. Þá útiloka niðurstöðurnar ekki að einstök úrræði geti haft mikla þýðingu fyrir afmörkuð byggðarlög, jafnvel þótt slík áhrif komi ekki skýrt fram í heildargreiningunni.

Áður hafi verið gerð sambærileg rannsókn en niðurstaðan á svipuðum nótum. Þá hafi verið skoðuð fylgni milli kerfanna og veiddum afla, lönduðum afla og unnum afla. Allt magntölur. Núverandi rannsókn hafi verið tilraun til að meta þetta út frá efnahagslegum stærðum og með öflugri líkönum og víðtækari gögnum.

Segir Vífill Karlsson áform áframhaldandi rannsókna vera í bígerð, en dæmi séu um að útgerðir sem fái úthlutað almenna byggðakvótanum leigi frá sér kvóta á móti.

„Að úthlutun ýti undir leigu. Erfiðara er að setja fram tilgátur um skel- og rækjubætur sem og línuívilnun. Það er hins vegar eitthvað sem við munum fara næst í að skoða. Það er ekki áhlaupaverk því þetta eru flókin samhengi.

Rannsóknin var unnin með styrk frá Byggðarannsóknasjóði og var gefin út í ritröð RBS í október árið 2026.

Aukin framleiðsla í september
Fréttir 6. nóvember 2026

Aukin framleiðsla í september

Framleiðsla á kindakjöti jókst um þrjú prósent í septembermánuði miðað við í fyr...

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning
Fréttir 6. nóvember 2026

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning

Íslenskur sjávarútvegur hefur tekið stórkostlegum breytingum á síðustu áratugum,...

Viðhorf almennings til sauðfjárbúskapar
Fréttir 6. nóvember 2026

Viðhorf almennings til sauðfjárbúskapar

Könnun á viðhorfi almennings til sauðfjárræktar stendur nú yfir. Hún er hluti af...

Verð heldur áfram að hækka
Fréttir 6. nóvember 2026

Verð heldur áfram að hækka

Á tilboðsmarkaði með greiðslumark mjólkur 2. nóvember hélt jafnvægisverð áfram a...

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir
Fréttir 6. nóvember 2026

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir

Von er á nýrri prentaðri Hrútaskrá 16. nóvember, þar sem sauðfjárbændum verður k...

Hringferðin hafin
Fréttir 5. nóvember 2026

Hringferðin hafin

Fyrsti fundurinn í árlegri hringferð Bændasamtaka Íslands var vel sóttur. Ferðin...

Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...