Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. Umhverfis- og orkustofnun (UOS) stóð að viðburðinum þar sem fjallað var um loftslagsmálin frá ýmsum hliðum – til að mynda út frá fæðuframleiðslu og landbúnaði.
Loftslagsdagurinn var haldinn í kjölfar birtingar UOS á bráðabirgðaniðurstöðum úr losunarbókhaldi Íslands fyrir síðasta ár. Í þeim tölum mátti sjá að samdráttur í heildarlosun gróðurhúsalofttegunda mældist 3,9% á milli áranna 2024 og 2025, sem er langt frá markmiðum Íslands sé tekið mið af framtíðarhorfum.
Íslenskur landbúnaður losar tvöfalt meira
Birgir Urbancic Ásgeirsson, sérfræðingur í teymi losunarbókhalds hjá UOS, og Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur á skrifstofu loftslagsmála í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, töluðu á loftslagsdeginum um losun gróðurhúsalofttegunda sem Ísland ber ábyrgð á samkvæmt losunarbókhaldi Íslands og aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.
Fram kom að losunin í flokki landbúnaðar er tvöfalt meiri á Íslandi en á meginlandi Evrópu, sem skýrist af fleiri dýrum sem hér eru á hvern íbúa, auk þess sem losun á hvert dýr er meiri hér á landi.
Þar kom einnig fram að ekki væri auðvelt að draga þar verulega úr losun, þar sem mesta losunin úr þeim flokki væri vegna dýrahaldsins, bein losun frá nautgripum og sauðfé. Spár losunarbókhaldsins gera ekki ráð fyrir miklum samdrætti, þar sem ekki sé hægt að breyta þessu frumframleiðslukerfi matvæla svo auðveldlega.
Ýmsar leiðir til úrbóta
Þau Birgir og Elín sögðu að því væri engin nærtæk lausn á þessum tilteknu áskorunum en þó væru ýmsar leiðir til úrbóta á öðrum sviðum landbúnaðar. Nefnd voru til að mynda tækifæri í lífdísilframleiðslu, bættri nýtingu áburðar með nákvæmnisbúskap og betri orkunýtni í ylrækt með LED-ljósum.
Þau nefndu að binding kolefnis í skógrækt hefði aukist mjög á undanförnum árum, bæði með nýskógrækt og stækkun núverandi skóga. Í raun væri binding á Íslandi helmingi meiri á hvern íbúa en í Evrópu. Það skýrðist að mestu af því að dregið hefði úr hæfni skóga í Evrópu til að binda kolefni, sem gerist þegar skógar eldast.
Hér á Íslandi séu meiri tækifæri í skógrækt og til framtíðar litið sé horft til enn frekari möguleika þar til að binda meira kolefni.
Fjölskrúðugra fuglalíf
Þau töluðu einnig um aðra landnotkun, sem væri langstærsti áhrifaþátturinn. Fram kom að á Íslandi væri þessi losun margföld á við meginland Evrópu. Framræst votlendi væru þar áhrifamest. Hluti af því landi væri í nýtingu sem ræktarland en meirihlutinn ekki.
Þau sögðu að endurheimt vistkerfa fylgdi endurheimt votlendis með fjölskrúðugra fuglalífi. Um fremur einfalda og hraðvirka loftslagsaðgerð væri að ræða og hvöttu þau Birgir Urbancic Ásgeirsson og Elín Björk Jónasdóttir landeigendur til að koma með í þá vegferð.
Innflutt aðföng
Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, flutti erindi um fæðuöryggi. Hún sagði að á yfirborðinu kynni að líta þannig út að við stæðum okkur ekki svo illa. Við værum með háa hlutdeild innlendrar framleiðslu á matvörumarkaði í mjólkurvörum, eggjum og kjöti. Hlutdeildin hefði reyndar farið niður í 40% í grænmetisframleiðslu árið 2009 og aðeins eitt prósent af korni á markaði væri innlend framleiðsla.
Myndin væri önnur þegar horft er til aðfanga, sem eru meira og minna öll innflutt. Ef aðfangakeðjur raskast vegna ytri aðstæðna væri landbúnaðarframleiðslu hratt ógnað með ýmsum hætti. Eftir þrjár vikur án innflutnings væri líklegt að skammta þyrfti eldsneyti í landinu. Svína-, alifugla- og fiskeldi myndi lenda í alvarlegum vanda vegna þess.
Eftir þrjá mánuði myndi starfsemi þessara búgreina stöðvast, auk þess sem mjólkurframleiðsla yrði fyrir verulegu höggi. Kæmi slík staða upp að vori til, að áburðarskip kæmust til dæmis ekki til landsins, hefði það veruleg áhrif á uppskeru ársins.
Hringrásarhagkerfi fyrir landbúnaðinn
Margrét sagði að ýmislegt væri hægt að gera á Íslandi til að auka fæðuöryggið, bæði með því að huga betur að öflun eigin aðfanga og aukinni landbúnaðarframleiðslu.
Nýta megi það sem telst vera lífrænn úrgangur í dag til áburðarframleiðslu og stuðla þannig að hringrásarkerfi fyrir landbúnaðinn. Þegar sé til staðar hrein íslensk raforka og hitaveita sem nota megi til orkuskipta í landbúnaði og til að knýja meiri innlenda framleiðslu, meðal annars í grænmetis- og kornrækt.
Til þess að þetta geti raungerst – og til að fyrirbyggja mögulegt neyðarástand – verði að styrkja innviði íslensks landbúnaðar með traustum rekstrargrundvelli bænda og bestu mögulegri nýtingu allra aðfanga. Einnig þurfi að styrkja áfallaþol matvælaframleiðslunnar með neyðarbirgðum af áburði, sáðkorni og olíu. Loks nefndi Margrét nauðsyn þess að fjárfest verði í nýsköpun og þróun þannig að hægt verði að þróa innlent hringrásarkerfi fyrir landbúnaðinn.
