Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagslundi í Flóahreppi í nágrenni Selfoss og var fundurinn vel sóttur. Trausti Hjálmarsson formaður og Margrét Ágústa Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Bændasamtakanna fóru yfir helstu mál. Þau ræddu meðal annars um um geðheilsu bænda, ágang álfta og tilkynntu um nýtt fjármagn til stuðnings við kaup á kæligeymslu í útiræktun grænmetis.
Bændur sem sóttu fundinn gátu stigið í pontu sem margir gerðu bæði til að spyrja spurninga, hrósa starfinu og benda á einstök mál. Hringferðin hófst í dag og henni lýkur þann 11. nóvember.
Trausti sagði frá málum á borði Umhverfis- og loftslagsráuneytisins, til að mynda áframhaldandi fjárfestingarstuðningi í ylrækt. Fyrir áramót stæði til að úthluta nýju fjármagni til að styðja við útiræktendur á grænmeti til að setja upp hagkvæmari og orkusparandi geymslur. Einnig að áfram verði stutt við kaup á nákvæmisdreifingarbúnaði á áburði auk annara verkefna sem snerta lítil fyrirtæki á landbyggðinni þar sem landbúnaður fellur vel að. Margir sem stigu í pontu vildu ræða ágáng álfta og inntu eftir lausnum. Trausti sagði á fundinum að álftin væri stórt vandamál en að Bændasamtökin væru í góðu samtali við ráðuneytið og væru nær því en áður að ná árangri á álftamálum. Hann sagði að stefnt væri að því að hafa lausnir á borði næsta vor.
Geðrækt og geðheilbrigðismál bænda voru til umræðu sem og hækkanir ýmissa gjalda sem eru í kortunum, þar á meðal kílómetragjaldsins og hækkun úrvinnslugjalds á plastumbúðum og heyrúlluplasti. Margrét fjallaði um hvernig hækkun þessara gjalda yrðu íþyngjandi fyrir fólk á landsbyggðinni og þá sérstaklega í dreifbýli. Margrét fór auk þess yfir nýleg mál í hverri búgrein fyrir sig sem Bændasamtökin hafa unnið að.
Valur Þorsteinsson markaðsstjóri Bændasamtakanna fór auk þess yfir sýnileika og vitundarvakningu með notkun samfélagsmiðla. Hann ræddi sérstaklega nýlega herferð Bændasamtakanna, umræðuna í kringum ESB aðild og hvernig það gagnist hagsmunabaráttu bænda að fólk tengi við og skilji það sem sé að gerast í sveitum landsins.
