Besta skyrið að mati dansks fagfólks
Að mati dansks fagfólks er vanilluskyrið frá Cheasy það besta. Þetta var niðurstaðan eftir keppni á milli mismunandi mjólkurafurða í Danmörku, þar sem skyr, jógúrt, ostar og smjör var dæmt eftir útliti, áferð, lykt og bragði.
Ráðstefnan International Food Contest fór fram 27. október síðastliðinn í bænum Herning í Danmörku. Þar var efnt til keppni á milli hinna ólíku mjólkurarfurða og vinningshafi krýndur. Samkvæmt dómurum, sem komu frá hinum ýmsu mjólkurvinnslum, var vanilluskyrið frá Cheasy hlutskarpast þegar kom að besta skyrinu. Í öðru sæti var óbragðbætt skyr frá Thise og í þriðja sæti skyr með skógarberjabragði frá Cheasy.
Í frétt frá DR.dk segir að dómarar hafi átt erfitt með að velja sigurvegarann, en vanillubragðið hafi skapað hið rétta jafnvægi milli hins súra bragðs sem einkennir skyr og sætleikans.
