Fegurð í sofandi safnkosti
Grasagarðurinn er þægilegur staður að koma á. Fólk finnur þar andrými, ró og fegurð. Blaðamaður hitti Hjört Þorbjörnsson, forstöðumann Grasagarðsins, á fallegum haustdegi. Hann segir áherslu lagða á að gestir njóti kyrrðar og að gott sé að koma í garðinn á öllum árstíðum, á vetrum sé vel mokað og bekkjum haldið snjólausum.
Í Grasagarðinn koma um 200.000 gestir árlega. Þar fer fram ríkulegt fræðslu- og rannsóknarstarf og ýmis samstarfsverkefni sem teygja anga sína út í móa, upp á hálendi, inn í skólastofur, út í tjörn og langt út fyrir landsteinana. Ræktun gamalla yrkja af sumarblómum og tilraunaræktun á gulstörum, sem prýða munu endurgerðan hólma Tjarnarinnar í miðbæ Reykjavíkur, eru meðal verkefna.
Helgi ríkir í garðinum
„Það að við erum hluti af opnu almenningsrými Reykjavíkurborgar, er eitt af því sem ég er hvað mest heillaður af í fari Grasagarðsins,“ segir Hjörtur. „Að fólk geti gengið um hann frjálst en það eru auðvitað stífar reglur. Plönturnar hafa forgang. En við leikum þetta hlutverk almenningsgarðs með gleði. Ég tel það vera sóknarfæri til að nálgast fólk og fá fólk í það hugarástand sem það þarf að vera í til að geta lært. Hér er vítt til veggja og hátt til lofts.“
„Við leggjum mikla áherslu á að fólk verði ekki fyrir truflun annarra, að hér sé ekki verið að sinna markaðsstarfi eða öðru slíku. Til að vernda þessa ró, sem fólk þarf að eiga einhvers staðar í borginni, höfum við beint slíku annað. Við verðum að hafa stað í Reykjavík sem býður upp á það. Við höfum þurft að standa vörð um þessa helgi.“
Hjörtur segir fólk almennt ganga vel um þó starfsfólk þurfi stundum að hafa afskipti af gestum. Hann segir um 200 þúsund manns koma í garðinn á ári hverju. Hjörtur segir marga vera eins og klukkur, alltaf koma á sama tíma en aðrir endurtekið yfir árið.
Átta safndeildir
Í Grasagarðinum eru átta safndeildir; Flóra Íslands, fjölærar jurtir, rósir, lyngrósir, skógarbotnsplöntur, trjásafn, steinhæð og nytjajurtagarður. Plöntur eru um 5.000 talsins og heildarfjöldi tegunda, undirtegunda, afbrigða og yrkja rúmlega 3.500. Saman birta þessar plöntur gestum þá miklu fjölbreytni gróðurs sem vex í norðlæga tempraða beltinu. Garðurinn var stofnaður árið 1961.
Viðurkennt safn
Grasagarðurinn er viðurkennt safn af Safnaráði, líkt og önnur söfn, svo sem listasöfn. „Allur safnkosturinn okkar er á sýningarsvæðinu, við erum ekki með neina geymslu svo við vinnum fyrir opnum tjöldum. Þegar það er allt á rúi og stúi í geymslunni, þá sjá það allir,“ segir Hjörtur og hlær.
Í sumar hefur eins konar forvarsla átt sér stað í safndeild íslensku flórunnar. „Íslenska flóran er aðeins erfið safndeild. Sumar íslensku plantnanna eru illgresið í görðunum okkar, við þurfum að vera dugleg að halda þeim frá. Við ákváðum í vor að taka safngripina úr íslensku flórunni, aðgreina og potta og geyma á uppeldissvæðinu. Við þurftum að byrja upp á nýtt, en ég er viss um að okkur mun takast þetta ætlunarverk. Það verða einhverjar tegundir sem geta ekki farið niður aftur. Nú gefum við okkur árið og hreinsum grasbeðið og útrýmum reyrgresinu, sem fer inn í aðra safngripi og drepur þá. Ár er langur tími í lífi fólks, en ekki fyrir plöntur. Við tökum safndeildina í hlutum og vinnum bug á þessum vanda sem hefur byggst upp.“
Tengslanet Grasagarðsins
Uppruni grasagarða eins og þeir þekkjast í dag er í háskólum. „Fyrst voru það lækna- og lyfjadeildir sem hófu ræktun grasagarða,“ segir Hjörtur. „Síðan hafa þeir þróast yfir í að vera tengdir líffræði og grasafræði.“ Hann segir hinn vestræna heim hafa áttað sig á gildi þess að hafa græn svæði í borgum.
Rekstrarform grasagarða eru með ýmsu móti, ýmist í umsjón eins aðila eða samstarfi fleiri, svo sem ríkis, sveitarfélaga og menntastofnana.
Sumir eru tengdir náttúrufræðisöfnum, eins og Grasagarðurinn í Kaupmannahöfn, garðurinn í Osló er hluti af Náttúruminjasafninu, í Gautaborg er hann rekinn af sveitarfélaginu í samstarfi við háskólann. Í Bandaríkjunum eru grasagarðar gjarnan sjálfseignarstofnanir.
Hjörtur segir Grasagarðinn í Reykjavík hafa fengið að dafna vel í umsjá Reykjavíkurborgar þar sem hann heyrir undir umhverfis- og skipulagssvið. Hann segir þau vera í góðu samstarfi við fjölmarga, svo sem Landbúnaðarháskólann, Háskóla Íslands, Garðyrkjuskólann, Leiðsögumannaskólann og mennta- skólana, sem koma mikið í heimsókn. Tengslanetið teygir sig einnig langt út fyrir landsteinana.
Sumarblómvöndurinn
Grasagarðurinn hefur unnið mikið með NordGen, Norrænu erfðaauðlindastofnuninni, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina og sér meðal annars um rekstur alþjóðlega fræbankans á Svalbarða.
„Í ár höfum við til dæmis verið að rækta gömul yrki af sumarblómum sem voru upphaflega ætluð til afskurðar,“ segir Hjörtur. „Sumarblóm eru fallegar garðplöntur en eftir því sem fólk kaupir meira af afskornum blómum, hafa sumarblómin breyst í gegnum tíðina. Þau eru minni, henta síður til afskurðar, blómstra meira, en á stuttum leggjum. Þessi gömlu yrki af sumarblómum sem henta til afskurðar hafa orðið sjaldgæfari í ræktun. Þetta er þróun undanfarinna 50 ára.“
Hann segir ástæðuna að hluta til vera vegna veðráttunnar á Íslandi, „ný yrki eru oft og tíðum lægri, þau falla ekki í rigningu eða vindi,“ en að sama skapi væri gott ef fólk gæti líka ræktað sín eigin afskornu blóm, „útbúið sína eigin vendi“.
Fjölbreytni og endurnýjun í safnkostinum
„Hlutverk grasagarða er að sýna fjölbreytnina, í tegundum og varðveita hana,“ segir Hjörtur.
Grasagarðar eru mikilvægir hlekkir í stórri keðju. Hjörtur segir ræktunina byggja á skipulögðum fræskiptum á milli grasagarða. Það þurfi að varðveita tegundir á fleiri stöðum en einum.
„Við söfnum fræi á haustin og deilum því með öðrum grasagörðum erlendis og Lystigarðinum á Akureyri og sendum reglulega lista yfir okkar plöntur í sameiginlegan gagnagrunn grasagarða.“
Þegar plöntur sem ræktaðar hafa verið úr fræi úr grasagörðum erlendis ljúka líftíma sínum, er þeim stundum skipt út fyrir aðrar tegundir. „Töluvert af plöntum deyr á hverju ári. Sumar plöntur eru einærar, tvíærar eða skammærar og deyja eftir blómgun og þá þurfum við að rækta eitthvað nýtt. Það eru ákveðnar plöntur sem við leggjum okkur fram um að varðveita og tökum þá græðlinga eða varðveitum með annarri aðferð ef hann sýnir merki um vanþrif. Svo það er ákveðin hreyfing á safnkostinum,“ segir Hjörtur.
„Við erum staðsett í miðri borg og samfélagið vill líka geta skoðað ræktuð yrki, eins og eru í garðplöntustöðvunum, svo við sinnum þeim líka. Við erum til dæmis með rósagarð og yrki sem hafa verið sérvalin til ræktunar á Íslandi frá upphafi. Við varðveitum til dæmis brekkuvíði, sigurkvistinn og rósakvistinn Eirík rauða. Þetta eru yrki sem voru algeng í ræktun, en eru ekki endilega algeng í dag.“
Gulstör í Tjörnina
Hólminn í Tjörninni í miðborg Reykjavíkur hefur nú verið endurbyggður. Minni hólmann, sem þó er ekki svo lítill, á eftir að endurgera. Báðir eru nauðsynlegir fuglalífinu í Tjörninni. Verkefnið er hluti af verkefninu Vatnalíf sem Reykjavíkurborg er aðili að ásamt 21 öðrum, sem bæði eru ráðuneyti, sveitarfélög, stofnanir og fleiri.
Vatnalíf miðar að því að hraða og efla innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi og tekur til áranna 2025–2030. Verkefnið hlaut stóran evrópskan styrk, þann stærsta sem íslenskt samstarfsverkefni hefur hlotið, 3,5 milljarða króna. Mörg verkefni heyra undir Vatnalíf, svo sem blágrænar ofanvatnslausnir í Grundarfirði, verkefni tengd fráveitunni í Reykjavík og fyrrnefnd endurgerð á hólmunum í Tjörninni.
En gróðurinn vantar í hólmana. Hann er nú að hluta til í ræktun í Grasagarðinum, þar sem staðið hafa yfir tilraunir á ræktun á gulstör sem Hjörtur telur mögulega góða garðplöntu, tjarnarstör, mýrarstör og fleiri tegundum sem henta öndunum, sem kunna vel við graslendi og stör fremur en stórgerðari plöntur.
Eins og sakir standa bera gulstörin höfuð og herðar yfir aðrar tegundir og virðast munu sóma sér vel í hólmanum. Torf úr mýrum verður líklega einnig sett niður og Hjörtur segir það verða áhugavert að sjá hvernig plöntum í því muni reiða af í samanburði við ræktuðu plönturnar. Hann segir vonir standa til að rækta einnig engjarós og hófsóley til viðbótar.
Kappakstur fræjanna
Fræðslustarf er fyrirferðarmikið í Grasagarðinum og þangað koma árlega um 5.000 manns í markvissa fræðslu og þar af 3.000 skólabörn. Skólaræktunarverkefni geta verið með ýmsu móti, lærdómsrík og nært sköpunarkraft nemenda. Heyrst hefur að nemendur hafi til dæmis stofnað til kappaksturs fræjanna, þar sem spírunarhraði var í brennidepli. Eins fréttist að nemendur í öðrum skóla hefðu safnað græðlingum af pottaplöntum og ræktað upp fyrir vorhátíð með tilheyrandi inngripum við blaðlús og öðrum óvæntum uppákomum þegar á þurfti að halda. Tengsl við moldina, fræið sem spírar, plöntuna sem vex upp og hringrásin í heild sinni er því vettvangur mikils lærdóms.
Garðurinn var samstarfsaðili í verkefninu Sjáðu, sáðu og smakkaðu sem lauk í fyrra og var leitt af NordGen. Verkefnið var samnorrænt fræðslu- og ræktunarverkefni sem fól í sér verklega kennslu og áhersla var á tengsl á milli matvælaræktunar, líffræðilegs fjölbreytileika og loftslagsbreytinga. Hjörtur segir verkefnið hafi verið mjög vel heppnað og að reynslan úr því nýtist vel áfram.
„Ef skólar eru að gera eitthvað sérstakt hjá sér getum við tekið á móti nemendahópum, eða kennurum í fræðslu. Við reynum að gera fólk sjálfstætt og erum til dæmis með tilbúin verkefni sem leiða kennara og nemendur áfram um garðinn. Við höfum sjálf ekki alltaf tök á að fara með fræðslu út úr safninu.“
Fegurð í sofandi safnkosti
Viðburðadagskrá er í Grasagarðinum árið um kring og garðskálinn er opinn allan ársins hring þótt kaffihúsið sé aðeins starfandi yfir sumarmánuðina. „Við erum eitt af svæðum Reykjavíkur þar sem er vel mokað og sandað. Þetta á að vera góður staður að koma á fyrir þá sem eru ekki öruggir til gangs til dæmis. Hér er mikið af bekkjum sem við reynum að halda snjólausum. Garðurinn er góður staður að koma á og njóta yfir veturinn, jafnvel á meðan safnkosturinn sefur,“ segir Hjörtur að endingu, mjúkum rómi og við ljúkum samtali okkar á eilítilli tilhlökkun til vetrarins.
