Leiðtogar og landbúnaður
Mynd / ál
Líf og starf 2. nóvember 2026

Leiðtogar og landbúnaður

Höfundur: Kristján B. Jónasson

Þegar Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov (eða Garbatsjov eins og á víst að segja) hittust á fundi í Reykjavík dagana 11. til 12. október árið 1986 til að ræða hvernig lækka mætti hitann undir vígbúnaðarpotti stórveldanna vakti það ekki síst lukku meðal Íslendinga að í för með aðalritara kommúnistaflokks Sovétríkjanna var eiginkona hans, Raísa Gorbatsjova. Hún hafði komist í alþjóðakastljósið um það bil ári fyrr þegar eiginmaður hennar tók við hinu valdamikla embætti og varð stjórnandi víðlendasta ríkis heims. Það var nýjung í sögu Sovétríkjanna að „konan bak við manninn“ væri svo áberandi. Aðalritararnir höfðu að mestu staðið einir á sviði sögunnar fram að því. Eftir að nokkrir helstu ellismellir kommúnistaflokksins höfðu fengið að spreyta sig á aðalritarastörfum árin á undan, en jafnan látist í embætti, þótti tilkoma þessara geðugu hjóna á besta aldri kærkomin nýjung. Raísa var brosmild og hugguleg og hafði kennt marx-lenínísk fræði á háskólastigi og gat því rætt fínni blæbrigði díalektískrar efnishyggju ef þannig stóð á. Fyrst og fremst var hún þó útfarinn diplómat sem með lipurð og þekkilegheitum kynnti veraldarsýn sovétkommúnismans fyrir hverjum sem heyra vildi.

Ferð í sveitina

Á meðan leiðtogarnir sátu á rökstólum í Höfða laugardaginn 11. október flakkaði Raísa um Reykjavík í pelsum frá færustu feldskerum Sovétríkjanna. Hring um hana slógu sérinnfluttir öryggisverðir sem bökuðu sér vinsældir meðal íslenskra fjölmiðlamanna fyrir hve léttir og alþýðlegir þeir voru. Gestgjafi Raísu og leiðsögukona var Edda Guðmundsdóttir, eiginkona Steingríms Hermannssonar forsætis- ráðherra. Raísa leit inn í Alþingishúsið og hitti forseta Alþingis og skrifstofustjóra, Friðrik Ólafsson stórmeistara, sem naut virðingar hinna skákóðu Sovétmanna. Litið var á blessuð handritin og Þjóðminjasafnið skoðað og síðan gefinn gaumur íslenskri æsku og íslenskum listamönnum. Daginn eftir, sunnudaginn 12. október, var síðan ferðinni heitið austur fyrir fjall. Tilhlýðilegt þótti að fara með Raísu á Þingvelli og treysta á að haustlægðirnar myndu þyrma hópnum um stund, sem gekk nú raunar ekki alveg eftir.

Raísa hafði nefnilega óskað þess að fá að heimsækja íslenskt sveitaheimili og þótti einboðið að slá saman Þingvallaferðinni og þeirri heimsókn. Fyrir valinu varð vildarjörðin Búrfell í Grímsnesi. Þar bjuggu hjónin Lísa Thomsen og Böðvar Pétursson ásamt börnum sínum og var með skömmum fyrirvara hnippt í þau og þau fengin til að undirbúa komu hins tigna gests. Böðvar var náfrændi Eddu Guðmundsdóttur, forystumaður í sinni sveit og á jörðinni falleg sveitakirkja. Aðstæður gátu vart verið heppilegri. Komu fulltrúar sovéskra stjórnvalda í snögga heimsókn að Búrfelli og skyggndust um í hlöðu og húsum og mátu hættuna á tilræði af hálfu húsdýra hverfandi.

Á sunnudeginum breyttust hins vegar áætlanir. Ákveðið var að stefna beint í Grímsnesið og kom Raísa þangað því nokkru fyrr en gert hafði verið ráð fyrir. Raísa ók um sveitir í sérinnfluttri skotheldri bifreið og með henni var Edda forsætisráðherrafrú sem rabbaði við Raísu með aðstoð túlks. Á hlaðinu á Búrfelli stóð heimilisfólk prúðbúið og voru yngstu dætur þeirra Böðvars og Lísu á íslenskum búningi. Er til falleg fréttamynd frá þessum degi sem sýnir þá yngstu, Láru, í fangi pelsskrýddrar og brosandi Raísu.

Kirkjan ómar öll

Kirkjan á Búrfelli er í sígildum hlutföllum, með fallegri kirkjum í sveit á Íslandi og elsta timburkirkjan í gamla Skálholtsbiskupsdæmi. Inn í hana bauð Böðvar Raísu og fylgdarliði. Þar lék hann og söng sálminn „Ó, syng þínum Drottni“ eftir fyrrum prófast Árnessprestakalls og stórskáld, Valdimar Briem. Greindi Böðvar frá sögu kirkjunnar og helstu gripum. Lét Raísa þess getið að hún sem fylgjandi marxískrar efnishyggju tryði varlega á tilvist óefnislegra fyrirbæra, en bæri slíka virðingu fyrir þeim sem það gerðu að hún sæi ekki ástæðu til að amast við sérviskunni.

Eins og Böðvar greindi Raísu frá var forsmiður Búrfellskirkju Bjarni Jónsson og lauk hann við byggingu hennar árið 1845. Því til sannindamerkis var vígsluárið steypt í kopar og fest á fjöl yfir kirkjudyrum. Hvatamaður að byggingu kirkjunnar og sá sem kostaði hana að mestu var Jón Halldórsson á Búrfelli, stórauðugur héraðsforkólfur um sína daga. Hann hafði komið í Búrfell fyrir tilstilli Steingríms biskups Jónssonar í Laugarnesi, hafði verið ráðsmaður hans og biskupi þótt hann slíkur dugnaðarmaður að hann mælti með honum sem mannsefni til handa Ragnhildi Jónsdóttur, prestsdóttur frá Klausturhólum, sem þá var orðin ekkja eftir Björn Jónsson á Búrfelli, merkisbónda og hreppstjóra Grímsneshrepps.

Ragnhildur var tuttugu árum yngri en Björn og því kannski ekki að undra að hann hefði farið fyrr en hún. Þau eignuðust þrjú börn, tvo syni, sem báðir hétu Jón, og svo dótturina Margréti.

Þegar Jón Halldórsson kom að Búrfelli tók hann til óspilltra málanna og jók enn á auð búsins. Var sama hvert horft var, alls staðar lét Jón að sér kveða með dugnaði sínum og hagsýni. Hann reisti kirkjuna sem enn stendur en einnig húsaði hann staðinn svo Búrfell var í hópi fegurstu býla. Eitt var þó sem amaði að. Jóni var svo umhugað um Margréti stjúpdóttur sína að hann gat ekki unnt henni að giftast neinum. Margir urðu til að impra á hjúskap en Jón stóð jafnan í vegi. Eftir því sem tíminn leið og Margrét eltist þótti þetta háttalag sífellt annarlegra. Margréti er þannig lýst að hún hafi verið með fallegri konum, en auk þess einkar lundgóð og blíð. Liðu nú árin og bar Jón bóndi hana á höndum sér og þótti aldrei nóg gert til að gera veg hennar sem mestan. Var Margrét orðin þrjátíu og tveggja ára og enn ólofuð þegar að garði bar vaskan og vitran mann sunnan af Vatnsleysuströnd, Guðmund Guðmundsson, elsta son Guðmundar Brandssonar, útvegsbónda í Landakoti og alþingismanns. Segir sagan að frú Ragnhildi hafi ekki þótt lengur hægt að standa í þessari vitleysu og bundist samtökum við Guðmund um að nema Margréti á brott. Giftust þau Guðmundur og Margrét á Kálfatjörn árið 1868 og fóru að búa á Landakoti, en Guðmundur Brandsson alþingismaður hafði drukknað fáeinum árum áður þegar hann sigldi heim í Landakot frá Hafnarfirði. Bjuggu þau Guðmundur og Margrét síðan alla ævi þar suður frá við mikinn orðstír og voru framfarafólk jafnt í útgerð sem landbúnaði. Raunar líktist Guðmundur um margt Jóni, stjúpa Margrétar, því hann hafði forgöngu um ótalmargt í samfélagi sínu til heilla, til að mynda var hann sífellt að gera sóknarkirkju sinni á Kálfatjörn eitthvað gott.

Brotthvarf Margrétar varð stjúpa hennar þungbært. Hann stökk upp á Búrfellið, sem er gamall eldgígur og er þar uppi lítið stöðuvatn eða tjörn og sat hann þar lengi dags en drattaðist svo heim, opnaði skattholið og taldi fram föðurarf Margrétar og bað Ragnhildi konu sína að koma fénu til skila. Það greip hann slíkt óyndi að hann gat ekki hugsað sér að búa áfram á Búrfelli og seldi jörðina. Hann kvaddi sveitunga sína og vini með auglýsingu sem hann birti í Þjóðólfi í júní 1868 og við kveðjumessu í kirkjunni á Búrfelli gaf hann öllum ungmennum og börnum sem þar voru einn ríkisdal, sem þótti fáheyrt örlæti. Þau Ragnhildur fóru síðan vestur í Mýrasýslu til sonar Ragnhildar, Jóns Björnssonar, prests í Hítardalsþingum, en undu þar ekki lengi. Ári síðar keypti Jón SuðurReyki í Mosfellssveit en þar búnaðist þeim ekki vel. Jón var stöðugt líkt og annars hugar, lenti brátt í kröggum og brasi og þegar Ragnhildur dó 1876 undi hann ekki lengur við búskapinn, seldi jörðina, setti kaupverðið allt í að greiða upp skuldir og fór síðan á vergang, var á flækingi hingað og þangað um Kjalarnes, Mosfellssveit og Kjós næstu árin, rúinn öllu því sem hann eitt sinn hafði átt. Reynt var að koma honum á hans gamla hrepp í Grímsnesi en það gekk lengi ekki vel, uns hann var orðinn svo örvasa að hann lét undan. Hann dó háaldraður á Kiðjabergi í Grímsnesi, þar sem nú er leikið golf, aldamótaárið 1900. Var vel um hann þar hugsað og sagt er að húsfreyja hafi jafnan þérað þennan aldna stórbónda sem eitt sinn bar höfuð og herðar yfir aðra búendur í Grímsnesi. Ekki mun fundum hans og Margrétar hafa borið aftur saman.

Enginn veit fyrr en reynir á

Raísa Gorbatsjova undi sér vel á Búrfelli. Dagskrá hennar var þéttskipuð og brátt fór aðstoðarfólk hennar að reka á eftir henni en hún svaraði með þjósti að hún þyrfti að vera nokkra stund enn hjá þeim Lísu og Böðvari. Þegar bílalestin loksins lagði af stað vildi þó ekki betur til en svo en einn hinna rússnesku öryggisvarða gleymdist. Hann hafði staðið vaktina í útihúsum nokkuð frá íbúðarhúsinu og uggði ekki að sér né tók nokkur eftir að hann vantaði. Sem betur fer voru starfsmenn Ríkisútvarpsins enn í hlaði á Búrfelli og buðu honum far í bæinn. Raísa fór síðan af landi brott með Míkhaíl, manni sínum. Þremur árum síðar brutu íbúar Berlínar gat á múrinn sem skildi að yfirráðasvæði Sovétmanna og Vesturveldanna í borginni og fimm árum síðar liðuðust Sovétríkin í sundur. Raísu varð svo mikið um að hún fékk hjartaáfall. Nokkrum árum síðar veiktist hún svo af hvítblæði. Hún lést í Münster í Þýskalandi árið 1999 þegar hún leitaði sér þar lækninga og er jarðsett í Moskvu.

Skylt efni: sagnaþáttur

Leiðtogar og landbúnaður
Líf og starf 2. nóvember 2026

Leiðtogar og landbúnaður

Þegar Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov (eða Garbatsjov eins...

Dagur sauðkindarinnar
Líf og starf 30. október 2026

Dagur sauðkindarinnar

Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu fór fram 10. október síðastliðinn. Fjöl...

Grikk eða gott?
Líf og starf 29. október 2026

Grikk eða gott?

Í tilefni hrekkjavökudagins sem nú hefur hægt og sígandi fest sig í sessi hérlen...

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...