Áætluð eignamörk 1.150 jarða birt til umsagnar
– Eignarhald kortlagt á yfir 80% af flatarmáli Íslands, Norðausturland og Austurland nú til umsagnar
HMS hefur lokið við að áætla eignamörk um 1.150 jarða á Norðausturlandi og Austurlandi. Jarðirnar ná samanlagt yfir um 20.000 ferkílómetra og með þeim hækkar hlutfall afmarkaðs lands í landeignaskrá yfir 80% af flatarmáli Íslands . Drögin verða birt 22. október og þá fá landeigendur sex vikur til að skoða áætlunina og koma athugasemdum eða frekari upplýsingum á framfæri.
Alls fá um 2.550 landeigendur bréf í pósthólf sitt á Ísland.is. Flestir þeirra eða um 2.200 eru einstaklingar en í hópnum eru einnig 184 fyrirtæki og stofnanir. Einnig 166 dánarbú. Í bréfinu verður vísað á vefsjá landeignaskrár þar sem hver og einn getur skoðað drögin sem varða viðkomandi jörð. Mikilvægt er að landeigendur kynni sér gögnin, hvort sem þeir telja áætlunina rétta eða vilja benda á annað. Þekking landeigenda á staðháttum, eldri merkjum og fyrirliggjandi gögnum getur skipt miklu við lokavinnslu áætlunarinnar.
Nú er boltinn hjá landeigendum
Frá birtingu draganna, 22. október, er athugasemdafresturinn sex vikur. Á þeim tíma geta landeigendur sent HMS ábendingar, leiðréttingar og gögn sem varpa frekara ljósi á legu eignamarka. Verkefnið snýst um að áætla eignamörk á loftmyndum út frá þeim heimildum og upplýsingum sem eru tiltækar, svo sem landamerkjaskjölum, þinglýstum gögnum, kortum, örnefnalýsingum og staðháttum. Ekki er gerð krafa um að landeigendur mæli upp mörkin eða láti gera merkjalýsingu innan frestsins, því áætluð eignamörk breyta hvorki eignarrétti né þinglýstum réttindum. Tilgangur verkefnisins er að draga fram bestu fáanlegu mynd af legu eignamarka og sýna jafnframt hvar óvissa eða ágreiningur er fyrir hendi. Þegar sex vikna frestinum lýkur fer HMS yfir allar innsendar athugasemdir, metur gögnin og hefur eftir atvikum samband við landeigendur til að fá frekari skýringar. Stefnt er að því að birta niðurstöður áætlunarinnar um eða eftir áramót.
Um 3.500 jarðir á þremur árum
Áður hefur HMS áætlað eignamörk um 2.350 jarða á Vestfjörðum og Norðurlandi. Þær jarðir ná yfir um 23.300 ferkílómetra. Nú með nýju drögunum fyrir Norðausturland og Austurland hefur HMS því á þremur árum áætlað eignamörk um 3.500 jarða á samtals um 43.000 ferkílómetrum. Þegar þessi vinna hefur verið tekin með eru afmarkanir komnar inn í landeignaskrá fyrir um 83% af flatarmáli Íslands.
Mikill árangur hefur náðst á skömmum tíma, þar sem verkefnið bætir úr langvarandi skorti á upplýsingum um eignamörk í dreifbýli. Mörg eignamörk hafa aldrei verið færð á samræmdan kortagrunn og heimildir geta verið gamlar eða vísað til örnefna, kennileita og mannvirkja sem hafa breyst eða horfið. Því er ekki alltaf hægt að draga eina ótvíræða línu. Með áætlun eignamarka er upplýsingum safnað saman, þær túlkaðar með samræmdum hætti og niðurstaðan gerð sýnileg. Þar sem góðar heimildir liggja fyrir getur áætlunin gefið skýra mynd af legu markanna. Þar sem heimildir vantar getur áætlunin á sama hátt bent á hvar stoppa þarf í götin.
Skýrar upplýsingar skapa verðmæti
Skýrari upplýsingar um legu jarða hafa fjölþætt notagildi. Fyrir landeigendur verður auðveldara að átta sig á afmörkun eigna, hvar óvissa er til staðar og hvaða gögn liggja að baki. Verkefnið felur jafnframt í sér mikla forvinnu sem getur nýst eigendum sem vilja síðar staðfesta eignamörk sín með lögformlegum hætti með gerð merkjalýsingar. Betri yfirsýn getur einnig einfaldað alla ráðstöfun eigna, svo sem kaup og sölu, útleigu eða uppskiptingu.
Gögnin geta einnig stutt við stefnumótun, skipulagsgerð og ákvarðanir um nýtingu lands. Þegar ráðist er í innviðauppbyggingu, svo sem vegagerð, orkuframkvæmdir eða fjarskiptaverkefni, skiptir máli að fyrir liggi hverjir eiga það land sem framkvæmd snertir. Sama gildir um leyfisveitingar og samráð við landeigendur. Betri upplýsingar draga úr tíma sem fer í að leita að eigendum, minnkar líkur á misskilningi og gerir stjórnvöldum og framkvæmdaraðilum kleift að undirbúa mál betur.
Gögn sem þegar hafa verið birt eru farin að skila áþreifanlegum ávinningi. Sem dæmi hafa Landsnet og Vegagerðina nýtt áætlun eignamarka við undirbúning framkvæmda sem hefur gefið góða raun. Betri grunnupplýsingar gerir þeim kleift að finna rétta landeigendur fyrr, hefja samráð á traustari grunni og vinna skilvirkar með eignarréttindi.
Fleiri dæmi sýna hagnýtt gildi gagnanna. Á Norðurlandi hafa fyrirtæki í þyrluskíðaferðum notað þau til að finna landeigendur og semja um leyfi til að nýta fjalllendi. Gögnin hafa einnig verið lögð til grundvallar sölu leyfa til rjúpnaveiða. Á Austurlandi má ætla að gögnin geti með sambærilegum hætti stutt við útreikning og skiptingu arðs vegna hreindýraveiða.
Það liggur fyrir að heildstæð landeignaskrá skapar betri grundvöll fyrir stefnumótun og eftirfylgni með eignarhaldi lands. Í jarðalögum eru takmarkanir á því hversu mikið land einn aðili getur átt án samþykkis ráðherra. Meginreglan er að einstaklingur þurfi heimild ráðherra fari eignarhald hans yfir 1.500 hektara og almennt er ekki gert ráð fyrir heimild til eignarhalds umfram 10.000 hektara. Til að unnt sé að fylgja slíkum reglum eftir þarf áreiðanlegt yfirlit yfir eignir, afmörkun þeirra og eignarhald.
Umræða um eignarhald jarða á Norðausturlandi var einmitt ein af kveikjum áðurnefndrar lagasetningarinnar og verkefnisins um áætlun eignamarka. Með birtingu draganna nú liggja í fyrsta sinn fyrir samræmdar upplýsingar um áætluð eignamörk jarða á þessu svæði.
Landeigendur hafa tekið verkefninu vel
Langflestir bændur og aðrir landeigendur hafa tekið verkefninu vel og margir hafa miðlað gögnum og staðbundinni þekkingu til HMS. Gæði heimilda eru þó mismikil eftir svæðum. Stundum er auðvelt að staðsetja eignamörk á loftmynd, en annars staðar er óvissan meiri. Landamerkjalýsingar geta til dæmis vísað til varða eða landslagseinkenna sem erfitt er að greina á loftmyndum, auk þess sem landslag kann að hafa breyst á þeim rúmu hundrað árum sem liðin eru frá því að margar lýsinganna voru skráðar. Þess vegna er þátttaka landeigenda mikilvæg til að bæta gögnin og gera óvissuna sýnilega.
Landeigendur búa oft yfir staðbundinni þekkingu sem ekki kemur fram í opinberum gögnum. Þeir kunna að hafa undir höndum eldri uppdrætti, samninga, ljósmyndir eða aðrar heimildir. Sem og persónulega þekkingu á örnefnum á sínu landi. Með því að senda athugasemd geta þeir hjálpað til við að bæta gæði áætlunarinnar áður en niðurstaðan er birt. Einnig er það verkefninu mjög gagnlegt að láta vita ef eigandi telur drögin í samræmi við sína vitneskju.
Hægt er að koma athugasemdum á framfæri með formlegum hætti á vef HMS en einnig er hægt að hafa samband við HMS í síma, senda fyrirspurnir með tölvupósti á netfangið jardir@hms.is eða bóka viðtal á starfsstöðvum HMS í Reykjavík eða á Akureyri. Á næstu dögum verða jafnframt undirbúnir fundardagar á Austurlandi þar sem landeigendum gefst kostur á að fara yfir drögin með sérfræðingi og koma athugasemdum á framfæri.
Framhald verkefnis ræðst af fjárheimildum
Árið 2027 stefnir HMS að því að áætla eignamörk jarða á Suðausturlandi og Vesturlandi, að því gefnu að HMS hafi fjárheimildir til áframhaldandi vinnu. Loks er stefnt að því að ljúka verkefninu á árunum 2028 og 2029 með áætlun eignamarka á Suðurlandi og Reykjanesi.
Verkefnið er umfangsmikið en ávinningurinn vex með hverju svæði sem bætist við. Það er því er mikilvægt fyrir landeigendur að samfella í vinnu verði tryggð þannig að þekking tapist ekki með því markmiði að ljúka verkefninu fyrir landið allt á tilætluðum tíma.
Eigendur jarða á Norðausturlandi og Austurlandi eru hvattir til að skoða drögin í vefsjá landeignaskrár og senda athugasemdir innan sex vikna frá 22. október. Nánari upplýsingar um verkefnið, gögnin og leiðir til að senda inn athugasemd má finna á vef HMS, hms.is/eignamork.
Tryggvi Már Ingvarsson er framkvæmdastjóri fasteigna hjá HMS og Friðrik Bjarnason sérfræðingur hjá HMS.
