Lausnin er landbúnaður
Mynd / ál
Skoðun 26. október 2026

Lausnin er landbúnaður

Höfundur: Trausti Hjálmarsson

Haustið mætti aldeilis með látum á dögunum og minnti okkur á að við búum á Íslandi. Sem betur fer hafa engar fréttir borist af tjóni á búfénaði og almennt varð minna tjón nú en stundum áður. Það má þakka fyrir það.

Veðrátta skiptir alla bændur máli, hvar í heiminum sem þeir eru, því allur landbúnaður er háður úrkomu, vindum og loftslagi almennt. Fyrir íslenska bændur eru áskoranirnar einstakar um margt og setja landbúnaði hér skorður.

Með elju og útsjónarsemi hefur íslenskum bændum hins vegar tekist að brjótast út úr þessum ramma sem loftslagið sló utan um forfeður okkar og -mæður. Í upphituðum og raflýstum gróðurhúsum ræktum við tegundir sem fólk þekkti ekki einu sinni nöfnin á fyrir hundrað árum. Kynbætur hafa gert kornrækt fýsilega og ábatasama og öflug skógrækt byggir á áratuga rannsóknum og kynbótum sömuleiðis.

Hefðbundin stórgripabúskapur hefur einnig tekið stakkaskiptum í gegnum kynbætur og tæknivæðingu. Dilkar eru þyngri og betri að gæðum en áður, nyt mjólkurkúa eykst ár frá ári og svo mætti lengi telja.

Við erum líka duglegri við að koma afurðum okkar í verð en áður og það er afskaplega ánægjulegt að sjá flóruna í landbúnaðarafurðum sem framleiddar eru úti um allt land, af fyrirtækjum stórum og smáum, af einstaklingum og bændunum sjálfum.

Það er nefnilega svo að í íslenskum bændum býr ótrúlegur kraftur til framleiðslu og sköpunar. Þeir vilja framleiða afurðir og vörur sem neytendur vilja kaupa og sást það greinilega á landbúnaðarsýningunni á dögunum, en svæðið þar sem smærri framleiðendur kynntu vörur sínar var alltaf smekkfullt af fólki. Neytendur hafa sama áhuga á hágæða landbúnaðarafurðum og bændur.

Fólk í öllum flokkum talar stundum eins og málefni landbúnaðarins séu flókin og erfið. Jú, þegar farið er ofan í smáatriðin þá verður allt flókið – líka landbúnaður.

En stóra myndin er ekki flókin. Bændur vilja framleiða heilnæmar afurðir í hæsta gæðaflokki og neytendur vilja geta keypt þessar sömu vörur. Við getum haldið áfram og nefnt það að í landbúnaði er hægt að finna lausnir við mörgum þeim vandamálum sem við samfélaginu blasa. Öflugur landbúnaður styður við byggðafestu, styrkir atvinnulíf, eykur kolefnisbindingu og minnkar losun. Öflugur landbúnaður styður við markmið stjórnvalda í þjóðaröryggismálum og vinnur gegn verðbólgu. Þegar rétt er á málum haldið er hægt að finna lausnina við mörgum málum í landbúnaði.

Þá á eftir að minnast á menningarsögulegt gildi landbúnaðar og mikilvægi hans fyrir byggð í landinu, aðra atvinnuvegi og fæðuöryggi þjóðarinnar. Þess vegna skiptir svo miklu máli að starfsumhverfi bænda styðji við bændur og framleiðslu þeirra, en vinni ekki gegn þeim.

Viðræður við stjórnvöld um starfsskilyrði bænda eru hafnar og vonandi munu þær skila okkur niðurstöðu sem styður við bændur, sem og uppbyggingu og nýliðun í landbúnaði. Það er að minnsta kosti markmið okkar í bændaforystunni.

Á næstu vikum förum við í Bændasamtökunum í árlega fundaferð okkar um landið og verður fyrsti fundurinn þann 2. nóvember kl. 12.00 í Félagslundi í Flóa. Yfirskrift fundaferðarinnar er „Lausnin er landbúnaður“, sem vísar í margþætt jákvæð áhrif landbúnaðar á samfélag og náttúru. Nánari upplýsingar um fundarstaði og tímasetningar má finna á vefsíðu Bændasamtakanna. Á fundunum munum við fara yfir þá vinnu sem unnin hefur verið og þá vinnu sem fram undan er. Mikilvægt er að sem flestir bændur mæti á fundina, því með því móti fáum við sem skýrasta mynd af þeim málum sem brenna á bændum.

Ég hlakka því til að sjá ykkur sem flest.

Höfundur er formaður Bændasamtaka Íslands.

Skylt efni: pistill formanns

Lausnin er landbúnaður
Skoðun 26. október 2026

Lausnin er landbúnaður

Haustið mætti aldeilis með látum á dögunum og minnti okkur á að við búum á Íslan...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 26. október 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Frumvarp Loga Einarssonar til breytinga á lögum um Ríkisútvarpið vekur hörð viðb...

Tryggjum raunverulegt fæðuöryggi
Skoðun 23. október 2026

Tryggjum raunverulegt fæðuöryggi

Nýverið greip ég nýútkomna bók eftir bandaríska höfundinn Annie Jacobsen, en sú ...

Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði
Skoðun 21. október 2026

Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði

Öldum saman hafa íbúar fjarðarins búið við margs konar hættur sem náið sambýli v...

Nýjasta þjóðaríþróttin
Skoðun 21. október 2026

Nýjasta þjóðaríþróttin

Það er farið að verða erfitt fyrir Seyðfirðinga að verjast þeirri tilfinningu að...

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna
Skoðun 16. október 2026

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna

Í umfjöllun Bændablaðsins um innflutning frjóvgaðra laxahrogna frá AquaGen Profu...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 13. október 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Íslenskur landbúnaður hefur um langt árabil glímt við þá þversögn að geta framle...

Nóg til og meira frammi?
Skoðun 12. október 2026

Nóg til og meira frammi?

Það getur verið erfitt að taka umræðuna um fæðuöryggi alvarlega þegar hillur mat...