„Ef maður skoðar hagkerfið hér síðastliðin átta ár, þá hafa verið heilmiklar hagvaxtatölur mörg af þessum árum“, segir Ásgeir Brynjar Torfason, sem er hagfræðingur og ritstjóri Vísbendingar. „Þegar þessum tölum er deilt niður á mannfjölda þá hefur í raun nánast ekki verið neinn hagvöxtur.
„Ef maður skoðar hagkerfið hér síðastliðin átta ár, þá hafa verið heilmiklar hagvaxtatölur mörg af þessum árum“, segir Ásgeir Brynjar Torfason, sem er hagfræðingur og ritstjóri Vísbendingar. „Þegar þessum tölum er deilt niður á mannfjölda þá hefur í raun nánast ekki verið neinn hagvöxtur.
Mynd / Heimildin, Davíð Þór
Viðtal 23. október 2026

Hættulegt að einblína á of einfalda mælikvarða

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

„Hagvaxtadrifna efnahagsumgjörðin hefur að hluta til leitt til loftslagsvárinnar. Hún hefur gengið á auðlindir jarðarinnar sem eru ekki óþrjótandi. Hin almenna sýn hagfræðinnar hefur verið að ef eitthvað af hráefnunum klárist taki eitthvað annað við.“ Þetta segir Ásgeir Brynjar Torfason vera dæmi sem gengur ekki upp.

Hann segir innflutta verðbólgu, vegna stríðsreksturs og loftslags- breytinga, muni að öllu óbreyttu leggjast á heimatilbúna verðbólgu sem okkur hafi ekki tekist að ráða að niðurlögum. „Ég held við gerum okkur ekki alveg grein fyrir verðmætum auðlindanna. Við höfum vanist því að athafnasemi og hagsæld komi úr því að vinna meira, plægja meira og grafa fleiri skurði.“ Hann segir Íslendinga stundum fara offari í athafnasemi en sérhverju sinni sé unnið samkvæmt bestu vitund. Nú sé þörf á að gera breytingar á efnahagsstjórninni. Vöxtur vaxtarins vegna sé ekki alltaf til bóta, gæði vaxtarins skipti máli.

Að pissa ekki í skóinn sinn

„Sum lönd ofveiddu fisk, en við settum á kvótakerfi svo hann kláraðist ekki“, segir Ásgeir Brynjar Torfason. „Eins og önnur rík vestræn ríki þurfum við nú algerlega að endurhugsa efnahagsumgjörðina og horfa til þess hvað sé góður vöxtur, svo hann valdi ekki aukinni loftslagsvá, mengun og hnignun líffræðilegs fjölbreytileika.“ Ásgeir Brynjar er hagfræðingur, ritstjóri Vísbendingar vikurits um efnahagsmál og meðhöfundur Kristínar Völu Ragnarsdóttur, prófessors í jarðvísindum og sjálfbærni, að bókinni Creating a Regenerative Economy for Wellbeing sem kom út hjá fræðibókaforlaginu Edward Elgar í vor. 

Raddir Nóbelverðlaunahafans Josephs Stiglitz sem skrifaði í The Guardian í sumar í félagi við fleiri hagfræðinga að hagvaxtardrifið efnahagskerfi sé dauðadæmt, enduróma víða. Í nýlegu erindi Johans Rockström á málþingi Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands fjallaði hann um níu þolmörk jarðar. Hann er einn fremsti vísindamaður heims á sviði sjálfbærni og loftslagsmála og forstöðumaður Potsdamstofnunarinnar um rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga.

Hagstofan birtir mælingar á 40 velsældarvísum og uppfærir þegar nýjar tölur eru tilbúnar.

Þolmörk og vendipunktar

Jarðarbúum hefur fjölgað um helming á undanförnum 50 árum. Eins og fram kemur í bók Ásgeirs Brynjars og Kristínar Völu, þá hefur framleiðsla og neysla þrefaldast á sama tíma, stærð hagkerfis heimsins fjórfaldast og alþjóðaviðskipti tífaldast. Samanlögð áhrif þessara þátta eru gjarnan reiknuð með jöfnunni I = P x A x T. Umhverfisáhrif = fólksfjöldi x auðlegð x tækni.

Í erindi sínu sagði Rockström nauðsynlegt að vita innan hvaða marka sé lífvænlegt að búa á jörðinni svo lífskilyrði séu ásættanleg. Níu þolmörk eru skilgreind og er ástand hvers um sig og þróun nú metin. Skilgreiningarnar byggja á vinnu yfir 60 vísindamanna. Þolmörkin sem eru skilgreind eru loftslagsbreytingar, breytingar í lífhvolfinu, landnotkun, ferskvatnsnotkun, breytingar í náttúrulegri efnahringrás, súrnun sjávar, efnamengun, svifryksmengun og þynning ósonlagsins.

Samkvæmt mati á ástandi þolmarkanna eru sjö þeirra nú þegar yfirstigin, þar af er staða og stefna hringrásar köfnunarefnis og fosfórs, hnignun lífhvolsins auk mengunarálags metið langverst. Svifryksmengun og þynning ósonlagsins eru metin innan þolmarka.

Það sem einkennir þolmörkin er að ef of nærri þeim er gengið kemur að vendipunkti hvaðan ekki verður aftur snúið. Hann nefnir ísbreiður sem dæmi, sem við bráðnun hætta að vera kælandi og verða hitagjafar. Vendipunktur verður þegar sú umbreyting á sér stað.

Áhersla á hámarksnyt ríkjandi

„Hér á landi hefur verið drifin áfram efnahagsstjórn byggð á hugmyndafræði nýfrjálshyggju. Nýverið er farið að horfa á hagvöxt á mann, og ekki bara heildina. Við einblínum gjarnan hér á magn frekar en gæði, hvort sem er í fiskveiðum, orkuvinnslu eða öðru. Áhersla hefur alltof mikið verið á hámörkun.“

Ásgeir Brynjar segir sama gilda um uppbyggingu ferðaþjónustunnar, þar sem áhersla hefur um of verið á fjölda ferðamanna og hraðan vöxt. „Náttúran og menningin er það sem við eigum saman og ferðamenn sækjast eftir. Þar er hægt að leggja áherslu á að laða hingað ferðamenn sem til að mynda kunna að ganga um viðkvæma náttúru.“

Enginn raunhagvöxtur

„Ef maður skoðar hagkerfið hér síðastliðin átta ár, þá hafa verið heilmiklar hagvaxtatölur mörg af þessum árum. Þær hafa hinsvegar verið drifnar áfram af umsvifum og mannfjöldavexti með aðflutningi vinnuafls. Þegar þessum tölum er deilt niður á mannfjölda þá hefur í raun nánast ekki verið neinn hagvöxtur“, segir Ásgeir Brynjar. „Raunhagvöxtur hér hefur verið um einn tíundi af því sem hefur verið í Evrópusambandinu á sama tíma.“ Hann segir aðrar þjóðir hafa lengi reiknað hagvöxt niður á einstakling, en sú áhersla hafi ekki verið hér en mannfjöldavöxturinn meiri, „sem geri hagvaxtartölurnar froðukenndar“.

„Þetta er skýrt dæmi um að við þurfum að horfa á hlutina öðruvísi. Annars verðum við skyndilega hissa þegar það verður stöðnun, eða mikil verðbólga. Það hefði verið hægt að sjá það skýrar og fyrr ef það hefði verið horft á þetta með öðru en magn-gleraugunum.“ Hann segir ástæðurnar að hluta vera komnar úr hugmyndafræði og stemningu í stjórnmálunum og hins vegar þörf fyrir uppsveiflu. „Sterk hagsmunaöfl njóta þess líka þegar það er hraður uppgangur, hægari og betri vöxtur geta hins vegar komið betur út fyrir heildina.“

Velsældarvísarnir

„Lönd þurfa að horfa lengra en til landsframleiðslu“, skrifuðu Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra og Nicola Sturgeon fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands í nýlegri grein í TIME. Þær vísa til nýs ramma Sameinuðu þjóðanna, Beyond GDP.

Fyrir átta árum voru þær meðal stofnenda Wellbeing Economy Governments Partnership, þar sem Wales, Finnland, Kanada og Nýja Sjáland komu strax að borðinu.

Í kjölfarið hófust á Íslandi mælingar á fjörutíu félagslegum, efnahagslegum og umhverfislegum velsældarvísum hjá Hagstofunni. Sem dæmi má nefna eru þar á meðal mælingar á trausti til samborgara, þátttöku í skipulögðu félagsstarfi, fjölda tilkynninga um heimilisofbeldi, hlutfall þeirra sem neitar sér um læknisþjónustu, brotthvarf af framhaldsskólastigi, skuldastöðu heimilanna, starfsánægju, þróun verðlags, lélegt ástand húsnæðis, árangur í landgræðslu, endurvinnslu úrgangs og svifryk.

Mælingar á velsældarvísunum standa enn yfir, en eru enn sem komið er, ekki markvisst reiknaðar inn í efnahagsstjórn landsins. „Það er hættulegt að einblína um of á of einfalda mælikvarða“, segir Ásgeir Brynjar. „Velsældarmælikvarðarnir bæta fleiri breytum við.“ Stofnanir eins og OECD halda utan um samhæfða svipaða mælikvarða og Sameinuðu þjóðirnar hafa núna hafið baráttu fyrir því að við horfum út fyrir hinn einfalda hagvöxt.

Áhrif þeirra sem græða mikil

Aðspurður um hvernig hægt er að virkja velsældarvísana segir Ásgeir Brynjar nauðsynlegt að rifja upp gömlu markmiðin um hvernig við lifum vel saman í samfélagi. „Ekki einvörðungu hvernig við hámörkum hagnað.“

Hann segir fjársterk hagsmunaöfl þeirra sem hafa verið að græða á núverandi ástandi vera gríðarmikil. „Á heimsvísu er meira fjármagn sett í stuðning við olíuiðnað, niðurgreiðslu á olíuafurðum, heldur en sett er í viðbragð við loftslagsvánni. Markaðurinn hefur líka fengið að vera svo frjáls á Íslandi. Það hefur ríkt ofurtrú á markaðslausnir. Hér hefur smæð markaðarins hins vegar leitt til fákeppni og hærra verðs.“

„Þó svo við höfum haft forskot, til að mynda með græna orku, getum við ekki lifað á fornri frægð 100 ára gamallar hitaveitu. Það þarf að gera skurk í því að við náum öðrum þjóðum í fremstu röð við að draga úr áhrifum okkar á jörðina.“

Innflutt verðbólga

„Sett í samhengi við það sem er að gerast í heiminum þá er verðbólga alþjóðlega nú að hækka vegna stríðsátaka og loftslagsváin er að hafa afleiðingar sem verða dýrar að leysa úr. Og eru það nú þegar, eins og uppskerubrestir, flóð og skógareldar“, segir Ásgeir Brynjar.

„Við höfum í mörg ár verið með heimatilbúna verðbólgu hér sem við höfum ekki náð niður. Við erum nú að fara að fá alþjóðlega óumflýjanlega verðbólgu ofan á það ástand. Hún kemur líklega fram í flest öllu innfluttu, nema gengið fari eitthvað að dempa hana.“

Stríðsátökin hafa beinlínis áhrif inn í matvælaframleiðslu heimsins. „Annars vegar innrásin í Úkraínu þar sem minnkuð landbúnaðarframleiðsla er við að valda hungursneyð í löndum sem voru háð því að fá ódýrt kornmeti þaðan. Hins vegar innrás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran, þar sem Hormússundinu var lokað og þar með umferð með jarðefnaeldsneyti, endurunna olíu, áburð og fleira sem hækkar verðið og skilar sér beint út í verðlag.“

Ásgeir Brynjar tengir hér aftur við Rockström og segir að það að gera ekki neitt sé sífellt að verða dýrara. Mun hagkvæmara sé að fara núna strax í róttækar aðgerðir sem svo skila efnahagslegum ávinningi til langs tíma.

Stoppuðum í gat ósonlagsins

Staða ósonlagsins er eitt af þol- mörkum jarðar og Rockström nefnir það sem gott dæmi um hvað og hvernig er hægt að bregðast við vá eins og geisaði með þynningu ósonlagsins. Þar hafi notkun skaðlegra freon-efna verið hætt. Ásgeir Brynjar segir það „gott dæmi um að með opinberri samhæfðri reglugerð sem umbreytir hegðun viðskiptalífsins og neytendanna er hægt að snúa af hinni hættulegu þróun“. Hann segir heimsfaraldurinn hafa verið annað dæmi þar sem hagkerfum heimsins var breytt.

Ef viðskiptaháttum venju samkvæmt verður haldið áfram óbreyttum öldina á enda, þá verður hlýnun jarðar orðin 3 °C og mannkyn sem ætlar þá að skipta yfir í endurnýjanlega orkugjafa, segir Rockström það verða of seint. Aðstæður verði þá komnar út fyrir þau mörk sem hann kallar Corridor of Life, braut lífs, og meirihluti jarðarbúa muni lifa við óbærilegar aðstæður.

Okkar verkefni er næstu 20 ár

„Græn bylting þarf að eiga sér stað á næstu 20 árum, það er okkar verkefni,“ segir Rockström í erindi sínu. Hann segir línulegar breytingar ekki nægja, við þurfum að finna breytingar sem fela í sér veldisvöxt, leiðir sem magna eigin jákvæðu áhrif upp. Hann nefnir að fjölgun kvenleiðtoga í valdastöðum sé mikilvæg og þar sýni Ísland gott fordæmi.

Kristín Vala og Ásgeir Brynjar fjalla einnig um það og segja í bók sinni víðtækari skilning vanta á flóknum samtengdum kerfum jarðarinnar og virkni þeirra. Í því samhengi nefnir Rockström umbyltingu í matvælaframleiðslu sem mikilvægasta þáttinn, umfangsmikið kerfi með marga snertifleti, þar sem hægt er að ná miklum árangri til breytinga.

Matvælakerfið skaðvaldur og lausn

Í erindi hans kemur fram að matvælaframleiðslukerfið hefur mest að segja um hraðar breytingar. Hann segir það stærsta skaðvaldinn í minnkuðum líffræðilegum fjölbreytileika, losun gróðurhúsalofttegunda og mengunar af völdum köfnunarefnis, fosfórs og þrálátra efna úr plöntuvarnarefnum. Þessi niðurstaða byggi á ítarlegum rannsóknum og þar séu þegar til þekktar lausnir sem henta bæði á litlum og stórum skala.

Rockström segir að með því að breyta neysluvenjum, hvernig við framleiðum mat og minnka matarsóun sé hægt að hafa stórtæk áhrif. Með því að nýta þær aðferðir sem þegar eru þekktar, svo sem í lífrænum og auðgandi landbúnaði sé hægt að færa núverandi stöðu allra þolmarka aftur inn á hina bærilegu braut lífs. „Þá verðum við örugg,“ sagði Rockström.

Búvörusamningar í bígerð

Aðspurður hvort hægt sé að hugsa velsældarvísa og hvatakerfi sem byggir á þolmörkum jarðar inn í komandi samningavinnu um nýja búvörusamninga segir Ásgeir Brynjar svo vera. Hann segir það til að mynda geta aukið velsæld að miða ekki að framleiðslu einfaldlega í sem mestu magni, heldur skuli huga enn betur að framleiðsluháttum og gæðum í kerfinu.

Hann nefnir í því samhengi gæði í smáframleiðslu og staðbundinni framleiðslu. Hann segir hagsmuni milliliða vera of mikla hér á landi, sem bitni í raun á stöðu bænda.

„Við verðum að stökkva á þann vagn og vera með í þeirri umbreytingu sem Rockström talar um, frekar en að líta á hana sem kvöð.“ Ásgeir Brynjar segir „kerfisbundna einokun eða fákeppni og hugmyndafræðilega fjötra gamallar tíðar um áherslu á magn og iðnframleiðslu, þar sem gæði eru talin sjálfgefin, en þau geta tapast í raun með því hvernig ferlinu er háttað“. Hann segir frumframleiðendur frekar eiga að stýra þróuninni heldur en milliliðirnir. „Hér er klárt tækifæri fyrir bændur á Íslandi þar sem hin raunverulegu gæði vaxa.“

Skylt efni: velsældarhagkerfi

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára
Viðtal 26. apríl 2022

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára

Baldur Sæmundsson, áfanga­stjóri í Menntaskólanum í Kópa­vogi, þar sem Hótel- og...

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein
Viðtal 8. apríl 2022

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein

Garðyrkjunám sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Su...

Fann mína ástríðu í þessu starfi
Viðtal 8. desember 2021

Fann mína ástríðu í þessu starfi

„Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu þessu fólki í sveitunum, notið gestri...

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“
Viðtal 8. nóvember 2021

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“

„Erfðaskrá er til þess fallin að leysa úr mörgum málum sem annars tæki tíma og o...

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“
Viðtal 13. júní 2021

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“

Talið er að harmonikkur hafi fyrst komið til Íslands með frönskum sjómönnum sem ...

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur
Viðtal 19. mars 2021

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum
Viðtal 12. febrúar 2021

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
Viðtal 12. janúar 2021

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt