Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógabyggðar, sem eru um 1500, eru langt frá því að vera sáttir við þá staðreynd að það eigi að byrja að rukka erlenda ferðam enn frá 1. maí 2027 um sérstakt náttúru- og innviðagjald á Gullfossi, Geysi og Þingvöllum. „Útfærslan er bæði vanhugsuð og ósanngjörn,“ segir íbúi.
Anna Gréta Ólafsdóttir, sem býr í Laugarási og starfar sem leikskólastjóri, auk þess að sitja í sveitarstjórn Bláskógabyggðar, segir stemminguna mjög sérstaka í sveitarfélaginu vegna málsins. „Já, ég finn fyrir miklum áhyggjum og óánægju. Það er fullkomlega skiljanlegt þegar fólk sér stjórnvöld boða breytingar sem geta sett ævistörf þeirra og lífsviðurværi í uppnám. Hér hefur fólk lagt mikla vinnu áratugum saman í uppbyggingu og á skilið að tekið sé tillit til þess. Mér finnst þessi útfærsla bæði vanhugsuð og ósanngjörn. Það er óásættanlegt að fyrirhugað sé að taka áhættu með afkomu fólks án þess að áhrifin á nærsamfélagið hafi verið metin til hlítar,” segir Anna Gréta.
18.000 krónur á háannatíma
Anna Gréta segir að fjórir gjaldskyldir ferðamenn, allir 18 ára eða eldri, myndu greiða 18.000 krónur á háannatíma. Gjaldið veitir aðgang að öllum þremur stöðunum, en upphæðin er sú sama þótt aðeins sé farið á einn þeirra. „Ferðamenn, eins og annað fólk, spáir vitanlega í hvað peningarnir þeirra fara. Ég held að upphæðir sem þessar muni tvímælalaust haft áhrif á hvort fólk velji að fara um svæðið eða velji að fara annað. Ég hef verulegar áhyggjur af áhrifunum, þótt ekki sé hægt að fullyrða hversu mikil þau yrðu enda engin slík greining farið fram. Færri gestir geta þýtt færri gistinætur, minni viðskipti á veitingastöðum og minni eftirspurn eftir afþreyingu. Áhrifin geta því náð um allar uppsveitirnar og snert bæði störf og þjónustu við íbúa. Slíka áhættu þarf að meta áður en ákvörðun er tekin,” segir Anna Gréta.
Eingöngu rukkað í Bláskógabyggð
En hvað finnst Önnu Grétu um að það sé bara rukkað í Bláskógabyggð, ekki á neinum öðrum vinsælum ferðamannastöðum á Íslandi?
„Mér finnst það afar ósanngjarnt. Ferðamenn nýta náttúru og innviði um allt land, en þessi gjaldtaka á aðeins að fara fram á þremur stöðum í sama sveitarfélagi. Ríkið þarf að rökstyðja þessa afmörkun og sýna hvernig hún samræmist jafnræðissjónarmiðum og sanngjarnri samkeppni milli svæða,“ segir Anna Gréta og bætir við. „Stjórnvöld þurfa að draga þessa útfærslu til baka, vinna málið með sveitarfélögum og atvinnulífinu og meta aðrar leiðir. Í birtum drögum er miðað við 1. maí 2027, þannig að enn er tími til að endurskoða málið. Það er ábyrg stjórnun að breyta um stefnu þegar alvarlegir annmarkar koma í ljós”.
Stjórnvöld verða að hlusta
Og þetta hafði Anna Gréta að segja að lokum; „Hér hefur fólk byggt upp atvinnu og verðmæti á sviði ferðaþjónustu og skildum greinum sem samfélagið hér stendur á. Við sem samfélag verðum að standa saman í jafn alvarlegu máli eins og þessu. Stjórnvöld verða að hlusta gaumgæfilega á áhyggjur nærsamfélagsins. Fjármögnun innviða þarf að byggja á sanngirni og vönduðum undirbúningi".
