Álftir valda tjóni árlega
Álftir herjar á akra og valda kornbændum tjóni ár hvert. Bændur segja ástandið versna með vaxandi álftastofni og að fuglinn fælist illa með hefðbundnum leiðum.
Álftin hefur verið friðuð frá árinu 1913 og er því með öllu ólöglegt að skjóta fuglinn á Íslandi. Samkvæmt Náttúrufræðistofnun benda nýjustu tölur til þess að álftastofninn telji rúmlega 40 þúsund fugla. Sumir bændur kalla eftir því að undanþágur verði veittar svo hægt sé að skjóta álftina staðbundið og á afmörkuðu tímabili líkt og gæsir en hefur sú afstaða verið umdeild í umræðunni.
Álftin örugg með sig
Hermann Ingi Gunnarsson er bóndi á Klauf í Eyjafirði. „Þetta er nánast í veldisvexti hérna fyrir norðan. Við erum búnir að vera á útopnu að reyna að verja alla akra og nýræktir á vorin fyrir þessum vargi en það gengur bara ekkert. Álftin er ótrúlega örugg með sig, hún veit að það er ekkert gert við hana,“ segir Hermann. „Margir í umræðunni segja bændum að vera duglegri að reka þær í burtu og nota bara hunda en ég er búinn að prófa þetta allt og það skiptir ekki máli. Við keyrum inn á akrana og hún flýgur kannski upp en kemur strax aftur. Menn hér hafa líka prófað að nota fuglahræður sem hreyfast og eru með glingri eða hljóðum, og gasbyssur til að reyna að fæla þær upp, en þeim er slétt sama,“ segir Hermann. Hann hefur tapað 5 hekturum vegna álfta á þessu ári en er það 10% af ökrum Hermanns. „Samt hef ég verið með fólk í vinnu að hjálpa mér að fæla fuglinn. Ég hef þó sloppið vel miðað við marga. Ég held það verði ekkert gert í þessu fyrr en fólk finni fyrir álftinni í Reykjavík.“
Þarf að huga að álftinni í öllu ferlinu
Björgvin Þór Harðarson er bóndi í Laxárdal, hann er með akra í Gunnarsholti á Rangárvöllum þar sem er mikð af álft. „Maður þarf að vera að hugsa um álftina frá upphafi ræktunar. Við erum að gera allt sem við getum, við erum að sá út í alla kanta eins og hægt er og reynum að lágmarka lendingarsvæði og aðgengi að ökrunum með skjólbeltum og það virkar mjög vel en er ekki hægt alls staðar.“
Björgvin segir bændur á svæðinu hafa prófað flest. „Við erum með flugdreka sem fæla fugla frá og fuglahræður en álftirnar eru ekki hræddar við þær. Svo er verið að skjóta gæsir á svæðinu en engu að síður kemur álftin. Svo erum við að keyra meðfram ökrunum og fæla þannig. Ég er með um 350 hektara af korni og við erum búnir að tapa á milli 10–20 hekturum en það eru fleiri bændur á sama svæði og samtals tjón hjá okkur öllum eru um 50 hektarar.“
Hann segir stofninn augljóslega hafa tekið stökk á síðustu 5 árum. „Ég vil að það yrði hægt að fá að skjóta fuglinn bara þar sem hann veldur tjóni, ekki almennt veiðileyfi. Ef það mætti skjóta álftarunga myndi það létta veiðiálagið á grágæsina líka.“ Hann bendir á að bæði í Svíþjóð og í Þýskalandi sé leyfilegt að veiða álft sem er að valda tjóni.
Fórnaði heilum akri
Brynjólfur Þór Jóhannsson, bóndi á Kolholtshelli í Flóahreppi, segir að um 20 hektarar af hans 75 hafi orðið fyrir tjóni vegna álftarinnar. Daginn áður en blaðamaður hafði samband hafði Brynjólfur verið í einn og hálfan tíma að reka álft af einum akri. „Þetta hefur magnast mikið síðustu þrjú árin, þær eru orðnar aðgangsharðar. Mér finnst alveg ljóst að það þurfi að fækka þeim etthvað,“ segir Brynjólfur og bætir við að þau hafi fórnað heilum akri til álftarinnar í þeirri von um að önnur uppskera fengi að vera í friði. Hann bendir á að álftin sé ekki einungis að éta kornið heldur traðki hún niður plönturnar í leiðinni, enda stórir og þungir fuglar. „Mér finnst gleymast í umræðunni að þetta er að valda fjárhagslegu tjóni. Ég er að framleiða mat og það er fugl sem er að taka skatt af framleiðslunni. Þetta er orðið mjög íþyngjandi.“
Skurðir og girðingar hjálpa
Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, segir álftina ekki valda sér tjóni. „Þetta fylgir aðeins landfræðilegum aðstæðum. Hún kemst ekki í akra hjá okkur því það eru skurðir og girðingar og svo erum við búnir að taka allt kornið, við reynum að vera snemma í því að þreskja til að vera á undan veðrinu hér undir fjöllunum,“ segir Þorvaldur. „Í Gunnarsholti eru svo miklar víðáttur að hún er búin að merkja sig heim þar. Auðvitað er hún úti um allt og er að reyna að ná sér í korn einhvers staðar. En þetta er svona hjá mér, þetta eru ekki svo stórir blettir og allt afmarkað af skurðum og girðingum. Við rekum hana upp þegar hún kemur og hún þreytist þegar við erum búnir að gera það nokkrum sinnum.“
Ólafur segir það mjög alvarlegt fyrir þá bændur þar sem álftin kemur í stórum hópum. „Þegar menn lenda í þessu ár eftir ár, verða fyrir tjóni og fá engar bætur, þá þýðir það bara eitt, menn draga saman kornræktina. Menn geta ekki staðið í þessu endalaust að fá ekki að verja sig,“ segir Ólafur. „Hver sem lausnin er þá verður að setjast yfir þetta mál og finna eitthvað. Lausnin er ekki sú að menn sái korni og fái svo bætur, við viljum langvarandi lausnir.“
Rannsóknir nauðsynlegar
„Grundvallarafstaða Náttúrufræðistofnunar er sú að áður en tillögur um breytingar á veiðifyrirkomulagi einstakra tegunda eru samþykktar þurfa að liggja fyrir vel ígrundaðar og faglega unnar stjórnunar- og verndaráætlanir fyrir þær tegundir sem um ræðir, byggðar á bestu þekkingu um stöðu stofna og áhrif einstakra aðgerða á þá. Í þeim áætlunum má fjalla um ýmis álitamál, t.a.m. fyrirkomulag við mat á tjóni á túnum og ökrum, mat á árangri fæliaðgerða, hugmyndir um að beita svokölluðum tjónaveiðum til að viðhalda tiltekinni stofnstærð fyrir einstakar tegundir líkt og þekkist með gæsategundir sums staðar í Evrópu,“ segir í svari til blaðsins. „Einnig þarf við endurskoðun laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum að festa í sessi hlutverk stjórnunar- og verndaráætlana tegunda en þær eru ekki í núgildandi löggjöf. Mikilvægt er að fara í endurskoðun laganna sem fyrst.“
Í svarinu er lögð áhersla á að styrkja þurfi rannsóknir og vöktun á álftum og vinna stofnþróunarlíkön fyrir þá stofna þar sem slíkt liggi ekki fyrir. Þær upplýsingar séu nauðsynlegar til að leggja mat á ásættanlegar lágmarksstofnstærðir fugla. Auk þess þarf að auka kerfisbundnar rannsóknir á því tjóni sem álftir valda og gera greiningu á því hvaða aðgerðir séu heppilegar til að draga úr vandanum en staðbundnar aðstæður geta haft mikið um að segja hvaða aðgerðir henta hverju sinni. Þar sé lykilatriði að tryggja bæði mannauð og fjármagn fyrir þær rannsóknir.
Náttúrufræðistofnun bendir á að Ísland sé aðili að Bernarsamningnum um verndun villtra plantna og dýra í Evrópu. „Álft er alfriðuð í Evrópu og veiðar alfarið bannaðar í nær öllum Evrópulöndum. Ljóst er að ef Ísland hygðist aflétta friðun á álft þyrfti að ræða það á vettvangi Bernarsamningsins þar sem álftin er meðal tegunda á sérstökum viðauka um tegundir sem ber að vernda. Afléttun á friðun á álft utan varptíma væri lykilstefnubreyting sem skoða þarf vandlega með tilliti til ýmissa sjónarmiða og í alþjóðlegu samhengi. Fyrst og fremst þyrfti slík ákvörðun að byggja á greinargóðu vísindalegu mati á áhrifum hennar á stöðu íslenska álftastofnsins. Náttúrufræðistofnun leggur áherslu á að allar ákvarðanir um breytingar á friðunarstöðu eða veiðitíma einstakra fuglategunda þurfa að byggja á góðum rökstuðningi og þekkingu á hvaða áhrif þær munu hafa á stöðu tegundanna.“.
Fjármagn sett í stjórnunar- og verndaráætlun
Bæði fjölgun í álftastofninum og aukin kornrækt hefur leitt til aukinnar umræðu um tjón af völdum þeirra á ræktarlandi. Í svari umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins til blaðsins um málið kemur fram að ráðuneytið fundaði nýlega með Samtökum ungra bænda sem lýstu stöðunni sem margir bændur eru í vegna ágangs álfta.
„Á fundinum kom m.a. fram að ráðherra samþykkti fyrr á þessu ári að setja fjármagn í gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir álft, þar sem skoðað verði hvernig verjast megi slíku tjóni en tryggja jafnframt áframhaldandi vernd álftarinnar. Náttúruverndarstofnun, sem hefur umsjón með og stjórn á aðgerðum sem ætlað er að hafa áhrif á stofnstærð og útbreiðslu villtra dýra, hefur þegar hafið undirbúningsvinnu vegna þessara áforma og hefur ráðherra lagt áherslu á að leitað verði leiða til þess að bregðast skjótt við stöðunni, en þó þannig að gætt sé fyllstu varúðar.“
