Halla tekur á móti viðurkenningunni
Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti viðurkenningu sem ein af 100 kvenhetjum heims í landbúnaði og byggðaþróun. Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) veitti viðurkenningarnar til kvennanna við hátíðlega athöfn í Róm. Val á þessum fyrsta hópi kvenhetja er til að undirstrika mikilvægt framlag kvenna í landbúnaði.
Halla rekur garðyrkjustöðina Sólskins á Flúðum. Hún var nýkomin úr Vatíkaninu þegar blaðamaður náði tali af henni.
„Það var mjög áhugavert að eiga þessa stund með konum frá öllum heimshornum, sem starfa við svo ólíkar aðstæður.“ Halla segir að vegna þess hve mikið af starfi þessarar stóru alþjóðastofnunar snúist um stefnumótun og samstarf ríkja í landbúnaðar- og matvælamálum, hafi verið áhrifamikið að sjá athyglinni beint að konunum sem vinna við landbúnaðinn dagsdaglega, „hvort sem það er við ræktun og framleiðslu eða að uppbyggingu landbúnaðar í sínum samfélögum.“
Í ræðu sinni sagði QU Dongyu, forstjóri FAO, kvenhetjurnar fulltrúa milljóna kvenna um allan heim, sem í þeim töluðu orðum væru að störfum á ökrunum, við uppskeru og að tryggja að matur sé á sérhverju borði.
Yin Yuzhen frá Kína var sæmd sérstakri viðurkenningu fyrir áratuga langt starf sitt til endurheimtar örfoka lands í Kína. Þar hefur hún grætt upp 5000 hektara lands með skógrækt og þannig stutt við landbúnað og lífsviðurværi samfélaga á svæðinu. Yuzhen sagði viðurkenninguna tilheyra fjölda fólks sem hafa stutt hana í vernd náttúrunnar.
Athöfnin var haldin í höfuðstöðvum FAO og var hluti af dagskrá World Food Forum.
