Nýjasta þjóðaríþróttin
Skoðun 21. október 2026

Nýjasta þjóðaríþróttin

Höfundur: Reynir Valgeirsson
Reynir Valgeirsson.

Það er farið að verða erfitt fyrir Seyðfirðinga að verjast þeirri tilfinningu að nýjasta þjóðaríþrótt íslenskra stjórnvalda sé að níðast á þeim.

Lífshagsmunir samfélagsins virðast hvað eftir annað mega víkja, vilji heimamanna er hafður að engu og þegar eitt höggið er afstaðið virðist stutt í það næsta.

Marghöggvið er í sama knérunn.

Seyðfirðingar eru enn að reyna að kyngja og melta svikin varðandi Fjarðarheiðargöng þegar nýtt högg ríður yfir. Þann 11. september síðastliðinn gaf Matvælastofnun Kaldvík hf. rekstrarleyfi til allt að 10.000 tonna laxeldis í sjókvíum í Seyðisfirði. Samhliða liggur fyrir starfsleyfi Umhverfis- og Orkustofnunar.

Þetta gerist þrátt fyrir gríðarlega mikla og óvenjulega andstöðu Seyðfirðinga við sjókvíaeldi. Þegar rekstrarsaga Kaldvíkur á Austfjörðum er síðan tengd við málið verður niðurstaðan að mínu mati nánast súrrealísk.

Matvælastofnun, önnur þeirra stofnana sem nú heimilar Kaldvík stórfellt laxeldi í Seyðisfirði, kærði sama fyrirtæki til lögreglu árið 2025 vegna gruns um alvarleg brot gegn lögum um velferð dýra.

Þá vaknar óhjákvæmilega spurning:

Hvað alvarleg þarf rekstrarsaga fiskeldisfyrirtækis eiginlega að verða áður en hún hefur áhrif á veitingu leyfis til stórfelldrar nýrrar og gríðarlega umdeildrar starfsemi í öðrum firði?

Það er sú spurning sem ég ætla að reyna að svara.

Samskiptasaga MAST og Kaldvíkur í stuttu máli

Matvælastofnun kærði Kaldvík til lögreglu í mars 2025 vegna gruns um alvarleg brot á lögum um velferð dýra. Málið varðaði útsetningu laxaseiða í Fáskrúðsfirði í nóvember og desember árið áður.

Yfir 700 þúsund seiði drápust. MAST taldi að forsvarsmönnum fyrirtækisins hefði átt að vera ljóst að lífslíkur seiðanna væru litlar við þær aðstæður sem ríktu og óskaði eftir lögreglurannsókn.

Sama vor kom annað dýravelferðarmál upp í Berufirði. Þar sektaði MAST Kaldvík um 500 þúsund krónur vegna vanrækslu við að fjarlægja og aflífa veika og þróttlitla fiska, svokallaða sveimara.

Í eftirlitsskýrslu MAST kom fram að jafnaði hefðu verið 1.0003.000 illa farnir sveimarar í hverri kví í Svarthamarsvík. MAST gerði einnig alvarlegar athugasemdir við aðgerðir fyrirtækisins og taldi að grípa hefði átt fyrr inn í.

Kæran vegna seiðadauðans var send til Lögreglunnar á Austurlandi. Málið var enn sagt í rannsókn í ágúst 2025. Nú, í september 2026, liggur ekki fyrir opinber niðurstaða sem mér er kunnugt um.

Nýtt leyfi

Þrátt fyrir þessa rekstrarsögu og harða andstöðu almennings gaf MAST út fyrir skömmu nýtt rekstrarleyfi til Kaldvíkur fyrir allt að 10.000 tonna hámarks lífmassa í Seyðisfirði.

Niðurstaða MAST var sú að fyrirtækið uppfyllti lagaleg skilyrði fyrir útgáfu leyfisins og að stofnunin hefði ekki heimild til að synja því á grundvelli þeirra sjónarmiða sem andstæðingar eldisins héldu fram.

Umhverfis- og orkustofnun gaf jafnframt út starfsleyfi.

Leyfin eru bundin ýmsum skilyrðum. Og þar vaknar önnur spurning sem skiptir Seyðfirðinga miklu máli:

Hver hefur eftirlit með hverjum?

Í starfsleyfisgögnum vegna Seyðisfjarðar kemur fram að rekstraraðili skuli hafa vöktunaráætlun og framkvæma þá vöktun sem þar er tilgreind.

Rekstraraðilinn ber ábyrgð á mikilvægum hluta mælinga, gagnaöflunar og árlegra yfirlita sem síðan eru send eftirlitsstofnuninni. Mælingarnar geta verið framkvæmdar af rekstraraðilanum sjálfum eða aðila sem hann tilnefnir og stjórnvaldið samþykkir.

Formlega er hið opinbera eftirlit hjá Umhverfis- og orkustofnun, sem getur farið í vettvangsskoðanir, yfirfarið gögn, tekið sýni og gripið til úrræða.

En spurningin sem stendur eftir er:

Hve óháð er vöktunin þegar sá sem hefur beina fjárhagslega hagsmuni af niðurstöðunni aflar sjálfur mikilvægs hluta þeirra gagna sem eftirlitið byggir á?

Þetta fyrirkomulag er heldur ekki nýtt. Í umhverfismatsferlinu var það Fiskeldi Austfjarða, nú Kaldvík, sem svaraði athugasemdum sem fram komu og lagði fram upplýsingar um fyrirhugaðar rannsóknir, vöktun og viðbrögð fyrirtækisins.

Vantraust á stjórnsýslu sjókvíaeldis verður því vart afgreitt sem sérviska Seyðfirðinga.

Ríkisendurskoðun sagði árið 2023 að stjórnsýsla og eftirlit með sjókvíaeldi hefðu verið „veikburða og brotakennd“ og vart í stakk búin til að mæta auknum umsvifum greinarinnar.

Í sömu úttekt var sérstaklega fjallað um umsókn Fiskeldis Austfjarða um 10.000 tonna eldi í Seyðisfirði og stjórnsýslu í tengslum við lagabreytingar. Ríkisendurskoðun sagði að frestun á gildistöku laga hefði verið til þess fallin að grafa undan tiltrú almennings á jafnræði og gagnsæi og að ásýndin væri sú að tiltekin fyrirtæki hefðu fengið „óeðlilegt svigrúm“.

Og eftir allt sem undan er gengið er nýja leyfið þó staðreynd.

MAST segir að 186 athugasemdir hafi borist við tillöguna. Engu að síður var gefið grænt ljós á allt að 10.000 tonna eldi í Seyðisfirði.

Eins og sjá má af framansögðu er stjórnsýslan í þessu máli með slíkum endemum að hún slær jafnvel við hugmyndaflugi þeirra sem gerðu kvikmyndina Apaplánetuna. Þótt stjórnvöld í þeirri sögu næðu okkar engan veginn í furðulegheitum miðað við þessa atburðarás.

Hér heima þurfum við því að leita skýringanna í okkar eigin stjórnkerfi.

Öll frammistaðan í þessu máli jaðrar, að mínu mati, við stjórnsýslulegt hneyksli.

Höfundur er iðnmeistari.

Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði
Skoðun 21. október 2026

Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði

Öldum saman hafa íbúar fjarðarins búið við margs konar hættur sem náið sambýli v...

Nýjasta þjóðaríþróttin
Skoðun 21. október 2026

Nýjasta þjóðaríþróttin

Það er farið að verða erfitt fyrir Seyðfirðinga að verjast þeirri tilfinningu að...

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna
Skoðun 16. október 2026

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna

Í umfjöllun Bændablaðsins um innflutning frjóvgaðra laxahrogna frá AquaGen Profu...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 13. október 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Íslenskur landbúnaður hefur um langt árabil glímt við þá þversögn að geta framle...

Nóg til og meira frammi?
Skoðun 12. október 2026

Nóg til og meira frammi?

Það getur verið erfitt að taka umræðuna um fæðuöryggi alvarlega þegar hillur mat...

Að lifa áhugaverða tíma
Skoðun 9. október 2026

Að lifa áhugaverða tíma

Einhvers staðar á það að vera hin versta bölvun að óska óvini sínum þess að hann...

Landgræðsluskóli GRÓ á þingi Eyðimerkursamningsins
Skoðun 7. október 2026

Landgræðsluskóli GRÓ á þingi Eyðimerkursamningsins

Ísland tók þátt í 17. þingi aðildarríkja Samnings Sameinuðu þjóðanna um varnir g...

Lárublómin í Færeyjum
Skoðun 2. október 2026

Lárublómin í Færeyjum

Arnþrúður Lára Pétursdóttir var fædd 6. apríl 1898 á Fremrihlíð, Hofssókn á Vopn...