Blái hnötturinn á svið
Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er byggt á barnabókinni Sögunni af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason og kom út árið 1999.
Um ræðir einstaklega lifandi ævintýri sem braut blað í íslenskri bókmenntasögu – varð fyrsta barnabókin til að hljóta Íslensku bókmenntaverðlaunin sama ár.
Leikritið Blái hnötturinn var í kjölfarið frumsýnt á sviði í janúar árið 2001 á Stóra sviði Þjóðleikhússins en í þeirri allra fyrstu uppsetningu var tónlistin samin og flutt af hljómsveitinni Múm.
Segir sagan frá þessum einstaka hnetti þar sem ríkir algert frelsi; þar eru engir fullorðnir, engar reglur og börnin eyða dögunum í villtum leikjum og ævintýrum í ósnortinni náttúrunni.
Líf þeirra á þó eftir að taka stakkaskiptum þegar dularfullur sölumaður, Gleði-Glaumur, brotlendir dag einn á plánetunni. Hann býður börnunum upp á áður óþekktan lúxus, tækni og flugstuð. Í staðinn krefst hann þess að þau greiði sér með litlum dropum af æsku sinni. Til þess að tryggja stanslausan leik neglir Gleði-Glaumur sólina fasta á himininn svo það verði aldrei dimmt.
Skelfilegar afleiðingar fylgja hins vegar þessari skammtímahugsun. Við það að stöðva sólina sekkur hinn helmingur plánetunnar í eilíft myrkur, frost og neyð, þar sem önnur börn búa við hungur. Aðalpersónurnar, Hulda og Brimir, átta sig á samhengi hlutanna og þurfa að leiða börnin í baráttu gegn eigin eigingirni.
Verkið er beitt ádeila á ofneyslu, umhverfisspjöll og misskiptingu auðlinda. Það sýnir fram á mikilvægi samkenndar og hvernig gjörðir eins samfélags geta haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir önnur.
Árið 2016 var verkið sett á svið Borgarleikhússins við mikinn fögnuð en þá kom enn betur í ljós hve stórt hlutverk tónlistin gegnir.
Leikstjórinn, Bergur Þór Ingólfsson, samdi söngtexta við verkið og var ákveðið að fá djasssöngkonuna og tónskáldið Kristjönu Stefánsdóttur til þess að semja tónlistina. Varð sýningin geysivinsæl og tónlistin einstaklega falleg og grípandi, en hún hlaut Ólafur Jens Sigurðsson. Grímuverðlaunin fyrir tónlist ársins ásamt því að sýningin sjálf var valin barnasýning ársins.
Og nú er það Leikhús Sauðárkróks sem mun gleðja gesti sína með uppfærslu á Bláa hnettinum, en frumsýningin er hvorki fyrr né síðar en 16. október - eftir rétt tæpa viku.
Var leikstjórinn Ólafur Jens Sigurðsson fenginn til að halda um taumana og sjálfsagt fáir sem betur geta beislað lætin og gleðina sem fylgir því að setja upp svo stórt verk. Segir Ólafur mikið stuð í húsi sem eigi eftir að skila sér á sýningum enda ríkur fjöldi afar hæfileikra barna ... nú í hlutverki villibarna!
Hann minnir á frumsýningu verksins þann 16. október kl.18, en frekari upplýsingar má nálgast á Facebooksíðu leikfélagsins. Áætlaðar eru 10 alls sýningar, allar í október og eru sem hér segir; 18.okt. kl. 14, - 19.okt. kl.18, - 20.okt. kl.18, - 21.okt. kl.18, - 23.okt. kl.18, - 24.okt. kl.14, - 25.okt. kl.14, - 27.okt. kl.18 og loks þann 28.okt. kl.18.
