Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Skoðun 9. október 2026

Að lifa áhugaverða tíma

Höfundur: Trausti Hjálmarsson

Einhvers staðar á það að vera hin versta bölvun að óska óvini sínum þess að hann muni lifa á áhugaverðum tímum. Þessi trú endurspeglar að sjálfsögðu svartsýni á háu stigi, því sá sem bölvar svona sér allar breytingar sem ógn við sig og sína, en það er samt sem áður svo að öllum breytingum – áhugaverðum sem óáhugaverðum – fylgja jafnt tækifæri og áskoranir.

Ef við byrjum á að horfa út fyrir landsteinana þá hefur óvissa óumdeilanlega aukist þar undanfarin misseri og ár. Alþjóðaviðskipti eru mun áhættusamari en áður, hvort sem það er vegna tollahækkana, eða hótana í þær áttir, stríðsátaka og árása á flutningaskip eða hækkandi olíuverðs.

Allt þetta er hættulegt eyþjóð eins og okkar, því þótt við séum blessunarlega fjarri átakasvæðum heimsins hefur þetta allt áhrif á aðföng okkar og velmegun, því eins og við höfum komist að í hverri krísunni á fætur annarri, þá er ekki alltaf gott að sjá fyrir hvar aðfangakeðjur bresta.

Þegar ekki er lengur hægt að treysta því að frjálst flæði vara, þjónustu og fjármagns milli ríkja haldist ótruflað, er eðlilegt að ríki leiti leiða til að tryggja eigið öryggi – ekki síst í mikilvægustu atvinnugreinunum. Þar vega þungt matvælaframleiðsla og landbúnaður og við verðum að efla eigin framleiðslu – hvort sem er í korni, grænmeti eða dýraafurðum – því einmitt á tímum ófriðar og óróa skiptir máli að geta staðið á eigin fótum.

Ég sagði í upphafi þessa pistils að áhugaverðu tímabilin væru ekki aðeins tími áskorana, heldur einnig tækifæra og ég er sjálfur þannig úr garði gerður að ég vil frekar horfa á tækifærin. Og það eru raunveruleg tækifæri fram undan fyrir íslenskan landbúnað ef okkur sem þjóð ber gæfa til þess að móta hér metnaðarfulla stefnu um uppbyggingu til framtíðar á okkar eigin forsendum.

Íslensk matvælaframleiðsla er aldrei að fara að keppa við ódýrustu innfluttu matvælin í verði, hvort sem er á alþjóðamörkuðum eða í íslenskum matvörubúðum. Til þess er launakostnaður of hár og kröfur varðandi dýravelferð og matvælaöryggi eru of ríkar. En í því felast líka tækifærin. Hvergi er sýklalyfjanotkun minni en í íslenskum landbúnaði og einstök staða íslensku búfjárstofnanna býr til tækifæri til aðgreiningar og markaðssóknar á innanlandsmarkaði, en einnig til útflutnings.

Rétt eins og Íslendingar eru tilbúnir að greiða hærra verð fyrir íslenskar vörur þá er fólk erlendis tilbúið að greiða hærra verð fyrir einstaka framleiðslu á borð við okkar. Og það er vel hægt að gera íslenskan landbúnað að útflutningsgrein á heimsmælikvarða ef þannig er búið um hnútana að bændur hafi fjárhagslegt svigrúm til fjárfestingar og uppbyggingar. Öflug innlend matvælaframleiðsla er vissulega leið til að halda aftur af sveiflum og verðhækkunum á matvörumarkaði – eins og dæmin sýna, en markmið okkar í útflutningi á ekki að vera að keppa við lægstu verðin, heldur að fá eðlilegt verð fyrir okkar framúrskarandi framleiðslu og því markmiði getum við betur náð þegar heimurinn allur, en ekki bara Evrópa, er okkar markaðssvæði.

En hvernig sem fer þá er okkar allra nánasta framtíð afar áhugaverð, því landbúnaður í heimi breytinga verður einmitt til umræðu á degi landbúnaðarins þann 8. október næstkomandi og hvet ég sem flest til að sækja málþingið.

Þá má ekki gleyma stóru Landbúnaðarsýningunni sem haldin verður í Laugardalshöllinni um helgina, en þar verður ótalmargt áhugavert að sjá og vona ég að þau ykkar sem sækja ráðstefnuna komi við í bás Bændasamtakanna og heilsið upp á okkur.

Höfundur er formaður Bændasamtaka Íslands.

Skylt efni: pistill formanns

Ræða við opnun Landbúnaðarsýningarinnar
Skoðun 17. nóvember 2026

Ræða við opnun Landbúnaðarsýningarinnar

Herhvöt Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands, í ljóði sínu Aldamótin er en...

Ef við værum Kjarval, væri þá hlustað?
Skoðun 16. nóvember 2026

Ef við værum Kjarval, væri þá hlustað?

Jóhannes S. Kjarval hafði vinnustofur á ólíkum stöðum á sínum langa myndlistarfe...

Fæðuöryggi byrjar í moldinni
Skoðun 13. nóvember 2026

Fæðuöryggi byrjar í moldinni

Á loftslagsdeginum í Hörpu tók ég þátt í málstofu um fæðuöryggi þar sem ég fjall...

Hvað þarf Ísland mörg gagnaver?
Skoðun 13. nóvember 2026

Hvað þarf Ísland mörg gagnaver?

Fréttir af veldisvexti gagnavera og vaxandi ásókn í náttúru nágrannalanda fyrir ...

Bóndinn á landið – en hver á ábatann?
Skoðun 12. nóvember 2026

Bóndinn á landið – en hver á ábatann?

Íslensk stjórnvöld hafa sett sér metnaðarfull markmið um endurheimt votlendis. Á...

Ríkisstjórnin og landsbyggðin
Skoðun 10. nóvember 2026

Ríkisstjórnin og landsbyggðin

Undanfarna daga hefur skapast mikil umræða um málefni landsbyggðarinnar. Sameini...

Vilji einstaklings
Skoðun 6. nóvember 2026

Vilji einstaklings

Í október fékk ég einstakt tækifæri til að taka þátt í viðburði á vegum Matvæla-...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 6. nóvember 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Í framhaldi af Jarmi síðasta blaðs var forvitnilegt að heyra svör Daða Más Krist...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f