Landsbyggðin og jafnræði
Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna það þykir eðlilegt að auknar álögur leggist þyngst á þá sem búa lengst frá þjónustunni. Ég bý vestur í bæ og telst eflaust borgarbúi samkvæmt öllum hefðbundnum skilgreiningum. Samt byggist stór hluti þeirra lífsgæða sem ég nýt á því sem verður til utan höfuðborgarsvæðisins. Ég kaupi íslenskan mat, ferðast um landið og nýt þess að búa í samfélagi þar sem framleidd eru matvæli, byggðir eru lifandi og verðmæti verða til um land allt. Þess vegna finnst mér umræðan um auknar álögur á landsbyggðina oft sérkennileg.
Fólk á landsbyggðinni greiðir sömu skatta og aðrir landsmenn. En til að sækja vinnu, heilbrigðisþjónustu, menntun, verslun eða aðra nauðsynlega þjónustu þarf það oft að fara mun lengri vegalengdir en flestir í þéttbýli. Þar eru valkostirnir einfaldlega færri. Bíllinn er ekki munaður heldur nauðsyn. Þegar kostnaður við samgöngur hækkar bitnar það því ekki jafnt á öllum.
Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er boðuð veruleg hækkun kílómetragjalds. Á sama tíma hækkar kolefnisgjaldið enn frekar. Þessi gjöld lenda ekki í einhverju tómarúmi. Þau lenda á heimilum, fyrirtækjum og þeim sem þurfa að fara lengst til að sinna daglegum erindum sínum.
Áhrifin takmarkast heldur ekki við einstaklinga. Aðföng þurfa að komast á bæi, afurðir af bæjum og þjónusta milli landshluta. Hærri flutningskostnaður þýðir hærra verð á áburði, fóðri, varahlutum og fjölmörgum öðrum aðföngum sem eru forsenda matvælaframleiðslu. Sá kostnaður hverfur ekki og hver mun á endanum bera hann uppi er augljóst.
Tilgangur kolefnisgjalds er sagður vera að hvetja fólk og fyrirtæki til að velja grænni orkugjafa. Gott og vel en hvaða val hefur bóndinn? Bændur geta einfaldlega ekki lagt dráttarvélinni og keypt rafmagnsútgáfu. Þeir geta ekki skipt út vinnuvélum fyrir tækni sem enn hefur ekki náð þeirri þróun að hún sé raunhæfur kostur við íslenskar aðstæður. Landbúnaðurinn getur ekki ákveðið orkuskipti með pennastriki þegar hvorki tæknin né innviðirnir eru tilbúnir.
Þegar gjöld eru lögð á í þeim tilgangi að breyta hegðun sem ekki er mögulegt að breyta verða þau að lokum fyrst og fremst kostnaðarauki.
Við getum ekki bæði sagt að landbúnaður skipti þjóðina máli og á sama tíma hækkað kostnaðinn við að framleiða mat, flytja aðföng og halda uppi atvinnustarfsemi um land allt. Auknar álögur á landsbyggðina eru ekki vandamál einhvers annars. Þær enda að lokum hjá okkur öllum. Fólkið á landsbyggðinni greiðir sömu skatta og aðrir landsmenn og á að geta gert sömu kröfu um aðstæður sem gera því kleift að búa, starfa og sækja nauðsynlega þjónustu.
Umræðan ætti því ekki fyrst og fremst að snúast um ný gjöld eða nýjar tekjuöflunaraðgerðir ríkisins. Hún ætti að snúast um jafnræði. Um hvort við ætlum að tryggja fólki raunhæfan möguleika til að búa, starfa og skapa verðmæti um land allt án þess að greiða sífellt hærra verð fyrir landfræðilega staðsetningu. Að lokum spyr maður sig hvort verið sé að styrkja byggðafestu eða skattleggja hana. Svarið við því er augljóst.
Höfundur er framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands.
