Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næstkomandi. Básar verða á sýningunni þar sem fjölbreytt fyrirtæki kynna vörur, verkefni og nýjungar.
Um 100 aðilar verða með bása á sýningunni og því er af nógu að taka. Vélar, tæki og tól, öryggisbúnaður, fræ og matvæli eru meðal þess sem gestir geta búist við. Blaðamaður hafði samband við nokkra aðila sem eru með bás í ár.
Hvetja fólk til að koma og spjalla
Land og skógur er þekkingarstofnun á sviði gróður- og jarðvegsauðlinda og er meðal þeirra sem verða með bás í ár. Markmið stofnunarinnar er að nýta land af sjálfbærni, vakta og hafa yfirsýn, stuðla að bindingu kolefnis og bæta gróður- og jarðvegsauðlindir þjóðarinnar.
Blaðamaður tók stöðuna á Pétri Halldórssyni, kynningarstjóra Lands og skógar, sem er spenntur fyrir sýningunni. „Við ætlum að leggja áherslu á stuðningsverkefni Lands og skógar, þau verkefni sem við veitum styrki til í landgræðslu, skógrækt og endurheimt votlendis. Það verður áherslan í básnum. Þarna verða ráðgjafar til skrafs við gesti og svo verðum við með eitthvað skemmtilegt til að skoða, kannski fræ og áburðarefni, sýnishorn af trjám, eitthvað sem fangar athyglina, ekki síst hjá krökkunum,“ segir Pétur.
Fyrir stuttu var ný reglugerð um hvata- og stuðningsverkefni í landgræðslu og skógrækt samþykkt. „Reglugerðin er í innleiðingu núna og í tengslum við hana erum við að hugsa hvernig við getum samræmt þessi ólíku verkefni. Þá sjáum við fyrir okkur að hægt verði bjóða bændum upp á heildstæða ráðgjöf þar sem við tökum jörðina fyrir og skoðum hana alla. Í stað þess að einungis komi einn ráðgjafi í heimsókn til að skoða ýmist möguleika á skógrækt, uppgræðslu eða endurheimt votlendis verði ráðgjöfin heildstæðari. Þá er hægt að finna hvar á jörðinni hentar að rækta nýjan skóg, hvar megi græða upp og svo er kannski framræst land sem er ekkert verið að nota og þá er hægt að breyta því í mýri. Þá fær bóndinn yfirlit yfir jörðina sína og getur séð hvaða möguleikar eru og síðan valið hvaða verkefni hann fer í af þessu,“ útskýrir Pétur.
„Þetta er svona í þróun sem stendur. Við viljum hvetja fólk til að koma í þetta spjall í básinn okkar. Við ætlum ekki að koma bara til að predika heldur viljum við endilega fá að heyra óskir og hugmyndir og heyra hljóðið í bændum og landeigendum.“
Veisla í matarhorninu
„Við vorum á sýningunni 2022 og það gekk rosalega vel, okkur fannst við vera vinsælasta stelpan á ballinu,“ segir Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Beint frá býli og Samtaka smáframleiðenda matvæla. „Fólki finnst gaman að koma á básinn okkar, smakka og fá tækifæri til að kaupa einstök matvæli og kynnast framleiðendum.“ Samtökin verða með bás fyrir sína félagsmenn og greiðir hver og einn fyrir sitt borð þá daga sem hann tekur þátt. „Smáframleiðendur hafa almennt ekki tök á að vera með eigin bás á svona sýningu, það er of kostnaðarsamt. Þetta er eitt af því sem við gerum fyrir félagsmenn og hluti af þeim ávinningi að vera í samtökunum,“ segir Oddný. „Það koma mörg þúsund manns á sýninguna svo þarna verða bæði mikil sölutækifæri og tækifæri til að kynna sig og sína framleiðslu og jafnvel taka niður pantanir ef fólk er með afurðir sem það á eftir að vinna úr í haust. En framleiðendur verða með alveg helling, flestir koma klyfjaðir af vörum til að selja.“
Á básnum er pláss fyrir tólf framleiðendur og segir Oddný að það verði fullt alla dagana. „VOR - Verndun og ræktun verður með bás við hliðina á okkur og þar verður hluti félagsmanna, þeir sem eru með lífræna vottun. Svo verður Matarkista Skagafjarðar með bás skáhallt á móti okkur og á honum verða skagfirsku félagsmenn okkar. Það verður því sannkölluð matarveisla í þessu horni salarins, bæði bændur sem vinna úr eigin afurðum og smáframleiðendur sem nýta innlendar afurðir í sínar vörur.“ „Þetta er sérstakt tækifæri fyrir framleiðendur. Ég held að það séu fáar sýningar þar sem þúsundir gesta streyma í gegn á degi hverjum. Árið 2022 var stappað og traffík á básinn allan tímann. Það er frábært að fá tækifæri til að sýna landsmönnum hluta af því sem er að gerast í matvælageiranum og þessum frumkvöðlaheimi. Þetta verður bara stuð og gleði,“ segir Oddný að lokum.
Sólarorka í sveitum
„Þetta er í fyrsta sinn sem við verðum með á Landbúnaðarsýningunni og við hlökkum til að hitta gesti,“ segir Ragnar Ragnarsson, framkvæmda- stjóri Sólspors, sem býður upp á heildarlausnir í sólarorku. „Við verðum með hina hefðbundnu sólarsellu á básnum og öflugar festingar á bárujárn. Til sýnis verða þakplötusólarsellur, þakplötur með innbyggðum sólarsellum sem eru vinsælar hjá okkur og alveg snilldarlausn.“ Ragnar segir Sólspor vera með verkefni í sveitum landsins en mikill markaður sé til staðar. „Þetta er eitthvað sem við teljum mjög spennandi fyrir bændur, þeir það sameiginlegt að eiga mikið af þökum og margir hverjir að nota mikið af rafmagni líka. En sólarorkulausnirnar eru fyrir alla þá sem vilja auka sjálfbærni og lækka rafmagnskostnaðinn hjá sér,“ segir Ragnar.
Möguleikarnir eru endalausir að sögn Ragnars en á básnum verða einnig rafhlöðulausnir til sýnis sem geta geymt umframorku og virkað sem varaafl, auk þess sem fulltrúar birgja sem framleiða búnaðinn verða á staðnum og veita ráðgjöf. „Við erum með okkar eigin kerfi til að hanna þessar lausnir og við getum því gert forhönnun fyrir fólk strax á staðnum, sem við sendum þeim í tölvupósti. Fólk getur síðan sett inn eigin notkunartölur og skoðað hvernig það kæmi út. Öll þessi vinna er fólki að kostnaðarlausu því að það er mikilvægt að fólk sjái möguleikana í þessu og hvort þetta henti vel,“ segir Ragnar og hvetur gesti til að koma við hjá þeim.
Brunavarnir alltaf búbót
Brunahólf ehf. verða einnig með bás á sýningunni í fyrsta sinn. „Við verðum bæði með vörur og ráðgjöf og viljum eiga þetta samtal um öryggi. Það vill enginn lenda í eldstjóni og það er alltaf búbót að bæta eldvarnir,“ segir Annþór Kristján Karlsson, eigandi fyrirtækisins. „Við sáum það þegar við tókum þátt í iðnsýningunni hvað það skortir þekkingu á brunaþéttingum í bæði iðnaði og búskap. Við tókum eftir því þegar við vorum að tala til dæmis við bændur sem gera margir hverjir hlutina frá grunni að þá áttar fólk sig ekki endilega á því hvað þarf að gera eða er öruggast.“ Annþór segir að samtölin sem þeir hafi átt á iðnaðarsýningunni hafi leitt til þess að þeir ákváðu að vera með á Landbúnaðarsýningunni. „Við bjóðum heildarlausnir í brunavörnum, bæði ráðgjöf og framkvæmd, og þar erum við með brunaþéttingar, brunaviðvörunarkerfi og slökkvikerfi. Það eru mikil verðmæti í búskap og okkur finnst mikilvægt að tala um þetta öryggi.“
„Yndislegt að hitta fólk“
„Við verðum bæði með nýjungar og þessar klassísku vörur sem við höfum selt í áratugi,“ segir Steindór Gunnlaugsson, framkvæmda- stjóri Dynjanda, sem hefur selt tæki og öryggisbunað til landbúnaðar og iðnaðar um áraraðir. Meðal nýjunga verða matvælavottaðar loftpressur á básnum sem að sögn Steindórs hafa verið vinsælar. Ein af þeim vörum sem Dynjandi hefur selt hvað lengst eru Peltorheyrnarhlífar en fyrirtækið hefur selt og þjónustað Peltor í 60 ár. „Við höfum verið með þetta frá því að Peltor voru bara eyrnahlífar frá Smálöndunum. Þetta var bylting á sínum tíma, þessi tæknieyru, að hægt væri að hlusta á tónlist og útvarp og vernda heyrnina. Þau ganga auðvitað út á að þú þurfir aldrei að taka hlífina af þér í hávaða, jafnvel stutt, því þá tapast allt sem er búið að verja. Núna er því hægt að gera nánast allt án þess að taka þær af, hlusta á útvarp, tónlist og tala í símann,“ segir Steindór.
„Það er alltaf gaman að taka þátt í svona viðburði,“ segir Steindór, „það er svo gaman að hitta fólk og heyra sögur, fólk sem hefur átt Peltor frá okkur í 30 ár eða loftpressu sem það keypti 1980 og eitthvað og notar enn. Við eigum góð og löng sambönd við marga bændur og það er ánægjulegt að viðhalda því á milli kynslóða því sem betur fer koma einnig nýjar kynslóðir í bændastéttina.“
Fjáröflun og verðlaunaafhending
Valur Þorsteinsson hjá markaðssviði Bændasamtakanna segir básinn þeirra verða stór- glæsilegan og skemmtilegan. „Við verðum þarna ásamt Ráð- gjafarmiðstöðinni sem stefnir á að kynna sína starfsemi með ýmsum fróðleik og samtali. Bændasamtökin og Bændablaðið verða við sama borð þar sem boðið verður upp á heita og kalda drykki, derhúfur og gott samtal. Ýmis verkefni hjá Bændasamtökunum verða til kynningar, á borð við Bændageð, öryggismál, íslenskt staðfest og markaðsmál,“ segir Valur.
Íslenska landslið kjötiðnaðarmanna verða einnig með viðveru á básnum og munu selja kjötvörur til fjáröflunar fyrir keppnisferð til Ástralíu. Á laugardaginn um klukkan þrjú verður verðlaunaafhending fyrir fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna (MFK) og segir Valur að vonandi verði gestum og gangandi boðið upp á smakk af þeim vörum sem unnu til verðlauna. „Svo er það rúsínan í pylsuendanum: myndavélin! Gestum býðst að taka mynd af sér við náttúrulegan bakgrunn. Hægt verður að líma myndina á Íslandskort til að sýna úr hvaða sveit fólkið kemur.“
Fjölmargir básar verða auk þeirra sem nefndir eru hér að ofan. Nýjar og spennandi vinnu- og dráttarvélar verða á staðnum, drónar til landbúnaðarnota, Ferguson-félagið mætir með fágæta sýningargripi og eiga allir það sameiginlegt að hlakka til að hitta gesti og gangandi til að eiga gott samtal um íslenskan landbúnað og framleiðslu.
