Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir
Unnið er að því að innleiða íslenska losunarstuðla fyrir framræst votlendi inn í losunarbókhald Íslands.
Losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstu landi er sú langmesta í losunarbókhaldinu, en fram til þessa hafa verið notaðir sjálfgefnir losunarstuðlar fyrir framræst land, sem gefnir eru upp í leiðbeiningum milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (IPCC).
Land og skógur stefnir á að við næstu bókhaldsskil verði notaður innlendur stuðull fyrir framræst votlendi sem ekki er í ræktun og byggir á nýlegum rannsóknum. Talið er líklegt að metin losun frá þess konar landi minnki við þessa yfirfærslu í innlenda stuðla. En eftir sem áður verði framræst votlendi áfram stærsti losunarþáttur bókhaldsins og endurheimt votlendis áfram ein skilvirkasta aðferðin til að draga úr losun á Íslandi.
Innlendir stuðlar fyrir ýmsa flokka
Fyrir það framræsta land sem er óræktað, graslendi á lífrænum jarðvegi, hefur þannig verið gert ráð fyrir 5,7 tonna kolefnislosun á hektara á ári og fyrir framræst land sem er ræktað, á lífrænum jarðvegi, hefur verið gert ráð fyrir 7,9 tonna kolefnislosun á hektara á ári.
Hjá Landi og skógi er unnið að viðamiklum rannsóknum á bæði votlendi, framræstu votlendi og þurrlendi á fleiri hundruð reitum vítt og breitt um landið til að geta metið losun og bindingu í landi með nákvæmari hætti en nú er gert. Þannig verði á næstu árum hægt að útbúa innlenda stuðla fyrir ýmsa flokka í losunarbókhaldinu.
Nettólosun landnotkunar 58% af heildarlosun
Losunarbókhald þjóða fylgir ströngu regluverki og er losun frá mismunandi landsflokkum reiknuð út ýmist með sjálfgefnum losunarstuðlum sem gefnir eru upp í leiðbeiningum IPCC, innlendum stuðlum byggðum á innlendum rannsóknum eða líkönum þar sem losun eða binding á svæðum er metin út frá staðbundnum aðstæðum.
Í síðasta losunarbókhaldi var nettólosun sem fellur undir landnotkunarflokkinn, sem framræst votlendi tilheyrir, metin vera rúmar sex milljónir tonna koltvísýringsígilda árið 2025, sem er um 58% af heildarlosun Íslands.
