Þau Sólveig María Svana Haraldsdóttir og Hallur Örn Guðjónsson í hlutverkum sínum sem Marísól og bangsinn hennar blíði.
Þau Sólveig María Svana Haraldsdóttir og Hallur Örn Guðjónsson í hlutverkum sínum sem Marísól og bangsinn hennar blíði.
Mynd / Bubbi
Menning 18. nóvember 2026

Marísól og leitin að gleðinni

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Freyvangsleikhúsið býður ungum sem öldnum í sannkallað aðventuævintýri þegar nýja, íslenska barnaleikritið Marísól og leitin að gleðinni verður frumsýnt þann 20. nóvember.

Verkið er hugarfóstur Jóhönnu S. Ingólfsdóttur, formanns félagsins, sem bæði semur og leikstýrir sýningunni, en hún hefur bæði skrifað og leikstýrt jóla- og aðventuverki fyrir yngri áhorfendur hjá félaginu síðastliðin fimm ár.

Sýningin er jafnframt einstaklega ljúf og hjartnæm þar sem hún geymir nýja tónlist eftir hinn ástsæla tónlistarmann Eirík Bóasson, sem lést í október síðastliðnum. Þetta var í fjórða sinn sem þau Jóhanna og Eiríkur leiddu saman hesta sína í leikhúsinu og fær hans einstaka tónlist því að hljóma áfram og ylja áhorfendum um hjartarætur á aðventunni.

Sagan sjálf, um hana Marísól er bæði spennandi og skemmtileg en hún fjallar um tíu ára stúlku sem er leið yfir komandi jólum því að pabbi hennar, sem er sjómaður, þarf að vera úti á sjó yfir hátíðarnar. Á Þorláksmessukvöld gerast hins vegar töfrar þegar uppáhaldsbangsinn hennar, hann Viktor, lifnar við og kippir henni með sér í ógleymanlegt ferðalag til að endurheimta jólagleðina.

Á leiðinni rekast þau á alls kyns skrautlegar persónur með ólíkar hugmyndir um gleðina en uppgötva að lokum að sönn gleði felst í litlu hlutunum, samverunni og því sem kemur beint frá hjartanu. Miðasala á þessa hlýju og bráðskemmtilegu fjölskyldusýningu er þegar hafin á Tix.is en miðaverð er 2500kr. og sýningarnar alls sex talsins. Jólasýningar Freyvangsleikhússins hafa alla tíð verið afar vinsælar og því er um að gera að drífa sig í að kaupa miða. Þegar er uppselt á frumsýninguna þann 20. nóvember, en hægt er að kaupa miða fyrir sýningar 21, 22, 28, 29 nóvember og svo 6.desember – allar klukkan 13.

Skylt efni: freyvangsleikhús

Vísnahornið
Líf og starf 18. nóvember 2026

Vísnahornið

Steingrím Thorsteinsson þarf ekki að kynna. Hann yrkir svona fallega um haustið ...

Stephan Briem með alþjóðlegan áfanga
Líf og starf 18. nóvember 2026

Stephan Briem með alþjóðlegan áfanga

Fjögur íslensk skáklið tóku þátt á Evrópumóti taflfélaga (European Club Cup), sí...

Gosi banar geimi
Líf og starf 18. nóvember 2026

Gosi banar geimi

Það var dálítið vandræðalegur spilari sem þurfti að upplýsa fyrir sveitarfélögum...

Hafmeyjan og sólskríkjan
Líf og starf 17. nóvember 2026

Hafmeyjan og sólskríkjan

Laugardaginn 29. mars 1947 hófst gos í Heklu eftir rétt rúmlega aldarlangt eldsu...

Er hár yðar óstýrilátt?
Líf og starf 13. nóvember 2026

Er hár yðar óstýrilátt?

Margir þekkja þá raun að eiga við hárið á sér, sumir fremur öðrum auðvitað og ei...

Tilmæli um ábyrga notkun gervigreindar
Líf og starf 12. nóvember 2026

Tilmæli um ábyrga notkun gervigreindar

Bandalag íslenskra listamanna (BÍL) hefur ákveðið að hrinda af stað átaki þar se...

Aldarafmæli Láru Brynhildar
Líf og starf 12. nóvember 2026

Aldarafmæli Láru Brynhildar

Lára Brynhildur Eiríksdóttir, sem býr á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð á Akurey...

Lausn á vísnagátunni úr 20 tölublaði
Líf og starf 10. nóvember 2026

Lausn á vísnagátunni úr 20 tölublaði

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtist í 20. tölublaði Bændablaðsins.