TR trónir á toppnum
Taflfélagi Reykjavíkur gekk vel í þeim sveitakeppnum sem fram fóru síðustu helgar. Íslandsmót skákfélaga var um þarsíðustu helgi í húsnæði MH og vakti staðsetningin almennt mikla lukku. Mótið var haldið þar oft í gamla daga en hefur undanfarið verið í Rimaskóla. Taflfélag Reykjavíkur er á toppnum í úrvalsdeild en félagið tapaði einni viðureign en vann hinar fjórar. Í seinni hlutanum í vor verða haldnar aðrar fimm umferðir gegn sömu liðum. Skákdeild Breiðabliks hefur einu liðsstigi minna en TR, en Blikar hafa innan sinna raða bæði Vigni Vatnar, stigahæsta skákmann landsins, og Hilmi Frey, núverandi Íslandsmeistara. Baráttan við að halda sér í deildinni er á milli Taflfélags Garðabæjar og núverandi Íslandsmeistara Taflfélags Vestmannaeyja, sem stilltu upp innlendri skáksveit í ár.
Skákfélag Akureyrar er í afar sterkri stöðu í 1. deild og mikið þarf að ganga á svo félagið komist ekki upp um deild. Einnig er B sveit félagsins efst í 2. deild. Gömlu félögin SA og TR eru í 1.–2. sæti í báðum deildum og una hag sínum vel. Skákfélag Selfoss og nágrennis ásamt 64 mislyndum biskupum eru í sérflokki í 3. deild, og Haukar hafa unnið allar viðureignir sínar í 4. deild og eru afar líklegir upp um deild.
Helgina eftir Íslandsmót skákfélaga fóru fram tvö önnur Íslandsmót, á sama tíma og fjögur íslensk lið héldu til Svartfjallalands á Evrópumót taflfélaga, þar á meðal greinarhöfundur sem er lánsmaður fyrir SA. Dagskráin er ansi ströng í íslensku skáklífi þetta haustið! Á sunnudaginn tefldu félagslið á Íslandsmóti barna- og unglingasveita, en keppt var í þremur flokkum. Einum opnum og tveimur aldursskiptum, fyrir 4.–7. bekk og 1.–3. bekk. Taflfélag Reykjavíkur, sem stillti upp A-sveit helgina áður sem var mikið til skipuð skákmönnum sem eru komnir yfir miðjan aldur, stendur sig líka vel í yngri flokkum. Félagið vann opna flokkinn, og miðjuflokkinn. Jósef Ómarsson, 1. borð maður TR, hafði einnig teflt eina skák með A-sveit félagsins á Íslandsmóti skákfélaga, og unnið hana. Skákdeild KR vann yngsta flokkinn, rétt eins og í fyrra, og það verður gaman að sjá á næstu árum afrakstur starfsins þar færast upp í eldri aldursflokka.
Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband.
Umsjón: Gauti Páll Jónsson
gauti.pj[hjá]hotmail.com
