Litið inn á við í ljósi sjálfstrausts
Í skjóli þess að vera undir feldi í haustveðrunum má velta ýmsu fyrir sér. Til að mynda hvers vegna sumar manneskjur virðast sífellt í skotlínunni á meðan aðrar svífa nokkra sentimetra ofar öðrum. Hefur tískan eitthvað með þetta að gera?
Að tolla í tískunni hefur löngum þótt eftirsótt og eftir því fólki tekið sem er hvað smartast eða mest áberandi í tauinu. Þó þessar stefnur séu ekki endilega samhliða eiga þær þó að minnsta kosti eitt sameiginlegt. Það er nefnilega vel hægt að vera alveg áberandi smart en að sama skapi, ef sjarminn fylgir ekki með, er útlitið dauðadæmt. Og þarna kom lykilorðið – sjarmi. Orðið heillandi á sér hliðstæðu í þessu orði og eiga þau bæði víst betur við marga en einskær fegurð eða fullkomnun á einhvern hátt, enda lýsa bæði orðin einhverju eða einhverjum sem hefur aðdráttarafl eða er hrífandi. Þeir sem þykja sem best klæddir hafa til viðbótar nefnilega svolítið annað sem felst ekki í fötunum en eru heillandi á einhvern hátt, fullir sjálfstrausts.
Holdafar eða hugarfar
Að sama skapi, þeir sem eru hvað mest áberandi í klæðaburði hafa oftar en ekki sjálfstraustið sem þarf til að bera fatnað sem tekið er eftir. Hvort téður fatnaður gleðji augað á fagurfræðilega samansettan hátt, eða frekar sem skemmtiefni liggur milli hluta, en niðurstaðan er sú sama – þarna kemur sjarminn við sögu. Nú má jafnvel minnast sögunnar um keisarann sem í yfirlæti sínu stikaði um berrassaður – en með ofurtrú á sitt.
Í framhaldinu má velta fyrir sér hvers vegna það er að sumir hafi ríflegra af sjálfstrausti en aðrir. Hvort það byggist á holdafari eða hugarfari eða hvort mikið sé um að fólk sé að leika hlutverk svona dagsdaglega.
Venjulegt fólk með heilbrigt sjálfstraust er líklega eitt besta dæmið, þéttvaxið eða ekki. Þessu til staðfestingar má fara aðeins inn á persónulegu nóturnar og rifja upp þegar fyrsti kærastinn minn tilkynnti að hann hefði fallið fyrir mér því ég væri einmitt svo „sjarmerandi“. Þetta var árið 1994, ég nýorðin sautján ára og datt helst í hug að kasta mér fram af svölunum. Að vera sjarmerandi var ekki eitthvað sem ég tengdi við. Orðið sjálft fannst mér eiga heima hjá fólki sem lá í huggulegheitum með sérríglas í vatnsrúminu sínu og komst ekki fram úr nema að klára veigarnar. Oftar en ekki í símanum þar sem ... Jii ... svo sjarmerandi ... mátti heyra við og við á innsoginu. Enda fékk hann að heyra það að svona hugrenningar væru alls ekki eitthvað sem hann mætti láta út úr sér ef hann ætlaði að halda titlinum.
Ræktum sjarmann
Hins vegar, ef litið er til rannsókna, hafði þessi, þá ungi maður, ýmislegt fyrir sér í málunum. Það er oftar en ekki sem útgeislun fólks ræður úrslitum í samskiptum við aðra, hvernig litið er á viðkomandi sem manneskju og ekki síst hvernig fatasmekkur hennar er ígrundaður af öðrum. Nú gætu einhverjir verið ósammála, en hver þekkir ekki dæmi um áberandi manneskjur, sem heilla alla upp úr skónum en eru í raun afleitir í klæðaburði ef vel er að gáð?
Niðurstaðan er því þannig að hvernig sem á er litið, er rótgróið sjálfstraust alltaf undirstaðan og ofan á það byggir svo útgeislunin og sjarminn. Ræktum því sjálfstraustið og sjarmann með, höfum trú á að eigið ágæti og sjónræn framlenging persónuleikans muni heilla alla upp úr skónum.
Fleyg orð sjónsvarpskonunnar Maríu Sigrúnar Hilmarsdóttur í hlaðvarpsþættinum Marta María býður heim „... sá sem svíkur sjálfan sig er stærsti svikarinn,“ eiga hér vel við enda eigum við öll að vera söm sjálfum okkur, hafa trú á því sem við höfum að bera, því sem við stöndum fyrir og þar með, enn og aftur, með sjálfstraustið í lagi. Það er hæstmóðins.
